Vikan - 14.10.1965, Síða 10
Rolluskrattinn mæðist. Helvítis stíg-
vélin hvað þau þung. Frostkuldinn
bítur í lungun. Bara herzlumunur svo
gríp ég hana. Nokkur skref af öllum
kröftum, svo kastarðu þér. Nei. Mis-
tókst. Of langt. Laus í ullinni bölvuð.
Ætlarðu að láta hana snúa á þig. Þeir
hlupu uppi fráfærulömb í eina tíð þess-
ir kallar sem nú eru að hökta þarna
niðri við rétt. Nei, aldrei að eilífu.
Ég skal hlaupa þangað til lungun koma
uppúr mér. Þótt ég verði að skríða á
höndunum síðasta spölinn þá skal ég
ná henni helvískri. Til hvers þurftu
þeir að fæla allt féð með þessum and-
skotans djöflagangi. Ég skal slíta af
henni hausinn með berum höndunum
og þveita honum í smettið á þeim.
Nú er annaðhvort að hundurinn skell'-
enni eða hún sleppur. Hann er ónýtur
árans kvikindið! Þarna er Gvendar-
hundurinn,- hann er grimmur. Irr Trygg-
ur irrdan-bíttann . . . Hana, þar lá hún.
Þú staulast síðustu skrefin að bráð
þinni sem liggur afvelta af mæði og
skelfingu á jörðinni og teygir fram
hausinn handa þér til þess að slíta
hann af. Augun eru að springa út úr
höfðinu og fljúga langt út á frjálsa
auðnina sem þið bæði tróðuð í gær.
Hundurinn gapir yfir. Þú ert tómur.
„Hvað hef ég gert ykkur, menn og
hundar".
„Svona Kolla mín, komdu nú kell-
íngin. Ég ætla að leða þig til lambs-
ins þíns, heyrirðu ekki, það er að
kalla á þig, me, me-me, segir það. —
Farðu til andskotans hunddjöfull".
Sól í hádegisstað.
Þeir rétta úr sér, líta upp frá drætt-
inum, smeygja tveim fingrum í vas-
ann, rétta hvor öðrum, banka strunt-
unni við tappann og taka tal saman:
— Hann ætlar að hreinsa þetta af
sér held ég. Fyrirgefðu, hvuddn fjand-
ann er ég að dónast, hérna, blessað-
ur fáðu þér.
— Þú ert ekki með þann úr fíla-
beininu?
— Ja, það er nú ekki fílabein reynd-
ar, maður er nú ekki alveg dottinn í
flottræfilsháttinn þótt glöggt hafi það
nú kannski staðið stundum.
— Ha, ha, ha.
— Nei þetta er tannbaukur. Krakk-
arnir voru að skenkja manni þetta.
— Og kíki, ha, var ekki líka kíkir
að þau gáfu'ðér?
— Já og kíki. Kíkinn, það er nú
líkast til.
— Það er ekki hjá öllum barna-
lánið.
— Onei, það vill ganga með það
einsog annað.
Ekkert gerist.
— Hohj, hohj.
Ekkert gerist.
En allt í einu og óforvandis er
einsog sprengja hafi fallið. Allir
eru farnir að lemja um sig jökkum
svipum og hríslum, jafnvel furðu-
legustu hlutum einsog ístöðum og
gaddavírsrúllum, æpa hver í kapp
við annan og stökkva í loft upp,
hver eftir því sem aldur leyfir. Nú
ríður á að sýna sig sem góðan
aðrekningsmann. í fénu upphefst
jarmur og óðagot, kndurnar hlaupa
hver um aðra þvera, áfram, afturá-
bak og í hring.
Áfram! áfram! Fariði hægt! Fyrir
alla muni hægt! Látt'ann ekki
sleppa! Hohj! irrdan bíttann! Bara
hægt, bara hægt! Og allir æpa,-
bara hægt, bara hægt, og stökkva
hæð sína í loft upp. Fé tekur að
sleppa úr hringnum, en það er allt
í lagi á meðan ekki er komið út
úr gerðinu. Það hleypur og menn
hlaupa. Það hefur gleymzt að opna
hliðið! Hvernig dettur ykkur í hug
að skepnurnar fari gegnum lokað
hliðið! Andskotans auladómur!
Aldrei komið nálægt kind nema
soðinni eða hvað! Ekkj í gegnum
safnið, ekki í gegnumða. Jahja.
Andskoti er að sjá til þín strákur.
Haltu bara kjafti kallskratti, sem
aldrei getur hreyft þig. Veriðið upp-
við girðinguna einhverjr en ekki
allir að snúast í kringum eina
blæsma rollu. Það rennur í gegnum
ykkur féð. Svei mér þá! Það vant-
ar kannski ekki kjaftinn á þetta
sem ekki stendur út úr hnefa. Aððí
nú! Aððí. Fylgja því eftir. Neineinei,
varðig maður! Ahh þarslappún,
bönnvuð boran. Hlauptu, hlauptu
elskan mín áður en hún kemst
uffyrir hólinn, þá sézt hún aldrei
meirl Irrdan Snati, irrrrdan! Svei
þér Tryggur, svei þér helvítið þitt.
Var hann ekki að bít'ana? Jú það
máttu bóka! Skammastín! Nei ekki
þú blessað fíflið, irrdan á þig. Er
ekki strákurinn búinn að ná'enni?
Fjandi knár! Já hvað heldurðu, nú
er ekki hreyft sig! Nei hvur asskot-
inn, það er bara komið inn! Þetta
gekk nú vel. Þetta gekk nú mikið
vel.
Þú stendur yfir henni þar sem
hún liggur [ lynginu. Gapandi hund-
urinn við hálsinn. Það geta ekki
allir hlaupið upp kind. Það er heið-
ur að vera mikill upphlaupings-
maður.
Það er verið að reka inn, einsog
nú. Alltí einu smýgur hún, sú
stygga. Þeir keppast um það ungu
mennrnir hver verði fyrstur á eftir
henni. Þú verður fyrstur. Og þú
hleypur. Kastar af þér jakkanum
og hleypur. Stundum eru stelpur að
horfa á, en það læturðu þig nú
heldur litlu skifta. Hún stingur sér
gegnum runna. Þú stekkur yfir á
eftir. Irrdan Snati, takt'ana. Þú
hleypur svo vindurinn þýtur við eyr-
un, upp brekkur, niður brekkur.
JQ VIKAN 41. tbl.