Vikan

Útgáva

Vikan - 14.10.1965, Síða 33

Vikan - 14.10.1965, Síða 33
#*§% SUMARAUKI Til þess að auðvelda íslendingum að lengja hið stutta sumaf með dvöl í sólarlöndum bjóða Loftleiðir ó tímabilinu 15. sept. til 31. okt. og 15. marz til 15. maí eftirgreind gjöld: Gerið svo vel að bera þessar tölur samon við fluggjöldin á öðrum órstímum, og þó verður augljóst hve ótrúleg kostakjör eru boðin ó þessum tímabilum. Fargjöldin eru hóð þeim skilmólum, að kaupa verður farseðil bóðar lciðir. Ferð verður að Ijúka innan eins mónaðar fró brottfarardcgi, og fargjöldin gilda aðeins fró Reykjavík og til baka. Við gjöldin bætist 7’/2% söluskattur. Vegna góðrar samvinnu við önnur flugfélög geta Loftleiðir útvegað farseðla til allra flugstöðva. Sækið sumaraukann með Loftleiðum. ÞÆGILEGAR HRAÐFERÐIR HEIMAN OG HEIM. 1 MOFTlEIDm gildrur þeirra. Það eru ekki að- eins „venjulegir“ menn, heldur ekkert síður lögfræðingar og lög- reglumenn. Þúsundir manna lenda í þessu á hverri nóttu. En eitt gera stúlkurnar ekki... þær leggjast ekki í sæng með mann- inum“. Lögreglan aðvarar og aðvarar, en árangurslítið. ★ Ameríska konan Framhald af bls. 25. Undir sautjón óra aldri hafa amerískar stúlkur yfirleitt ekki önn- ur kynni af óstamálum en það sem kallað er „Light petting", það er saklaus blíðuatlot. Um sautján ára aldur er samband unglinganna orð- g ákveðnara og atlotin heitari, en þó reyna þeir yfirleitt ekki kynmök á þeim aldri. En milli sautján og tuttugu ára hafa flestar stúlkur prófað kynferðilegt samlíf. Þrátt fyrir gífurlegar umræður í Bandaríkjunum, og háfleygar skoð- anir unglinganna um frelsi og rétt til að ráða sínum málum, er það staðreynd að flestar stúlkur þar hallast að hreinlífi, þegar til kast- anna kemur. Kinsey birti sína frægu skýrslu um kynferðismál árið 1953, pró- fessor Ehrman nýjar skýrslur árið 1959, og nú síðast prófessor Freed- man árið 1965. Allir komast þeir að sömu niðurstöðu, að fjórar af hverjum fimm stúlkum hafi haft kynmök um tvítugsaldur. Þetta sýnir að tuttugu prósent stúlknanna eru hreinar meyjar um tvítugt. Líf Sue gekk eiginlega alveg eft- ir þessari snúru. Hún fór í gagn- fræðaskóla, þar sem hún fór að Kta í kringum sig eftir eiginmanni. Þrátt fyrir allt umtal um framtíðar- starf og annað slíkt, hugsuðu Sue og foreldrar hennar sér ósjálfrátt menntaskólann sem ágætan vett- vang til að kynnast framtíðareigin- manni. Þannig hugsa hundruð þús- unda stúlkur og foreldrar þeirra í Bandaríkjunum í dag. Þegar Sue kom heim um helgar, eða hringdi til mömmu sinnar i vikulokin, voru spurningarnarvenju- legast þær sömu: — Hvað hefurðu verið að gera? Hefurðu hitt nokk- urn skemmtilegan ungan pilt? Jú, það hafði hún gert, og einu sinni, í miðri viku hringdi hún heim og sagðist vera búin að hitta þann eina rétta. Nokkrum vikum síðar sat hún heima hjá foreldrum sín- um og sagði þeim grátandi frá þv( að hún væri með barni og ætlaði að gifta sig strax. Hún giftist Steven, sem var á síðasta ári í skóla. Þau eignuðust barnið sitt, og Sue hætti í skólan- um, án prófs. Því að auðvitað varð hún að giftast honum, því að það er ennþá hræðilegri skömm í Bandaríkjunum að eignast óskilget- ið barn. Það er ennþá álitin það mikil hneisa, að fáar stúlkur eða mæður þeirra geta afborið það. Hvað framtíðin ber í skauti sínu fyrir Sue, Steven og litlu hrokkin- hærðu dóttur þeirra, er ekki gott að segja. Rosie er 28 ára, ógift, en hefir fullan hug á að ná sér í eiginmann Svo er það Rosie, ein af þeim óhamingjusömu, sem ekki hafa náð í lífsförunaut og það vita bæði guð og menn að hún hefir reynt hvað hægt var. Hún er tuttugu og átta ára og situr á móti mér við borð á veitingahúsi, með tárin í augunum. Veizlan hjá bróður henn- ar, sem er tannlæknir og mjög kvennakær, er á enda og við sitj- um á fremur ósnyrtilegri veitinga- stofu í miðri New York borg. Gegn- um gluggana sjáum við Ijósadýrð- ina á Times Square, og fyrir utan streyma áfram þúsundir manna, sem eru að koma frá leikhúsum og skemmtistöðum í kringum Broad- way. Þessi laglega dökkhærða smábarnakennslukona er mikið máluð og dálítið undir áhrifum af viskýinu í veizlu bróður síns. I raun og veru ætti hún að vera löngu sofnuð, heima í litlu íbúðinni sinni, en hún er angurvær og bitur og vill gjarnan segja mér, útlendum blaðamanni frá erfiðleikum og vandamálum amerísku konunnar: — Sástu þessar fjórar gæsir, sem slógust um bróður minn? Jú, ég hafði séð þær. Fjórar lag- legar stúlkur, sem hver um aðra þvera, kreistu og kysstu unga lag- lega tannlækninn. Ein eftir aðra dönsuðu þær vangadans við hann, og allar reyndu að ná honum útaf fyrir sig. En hann smaug undan, hló og drakk. Það var alltaf hægt að ná sér í félagsskap fyrir kvöld- ið. — Veiztu hvað þær vildu? Veiztu hversvegna þær vo'ru að reyna að veiða hann? Smátt og smátt rann þetta upp fyrir mér. Þetta var ekki eingöngu vegna þess að þær væru svona áfjáðar ( að ná í mann. Þær höfðu drukkið of mikið og svo var Ernie, tannlæknirinn líka mjög laglegur, eftirsóttur og hafði ágætis atvinnu VIKAN 41. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.