Vikan - 14.10.1965, Page 46
Snyrting eftir aldri
FALLEG OG HENTUG
KÁPA
Mig langaði bara til þess að sýna
ykkur þessa regnkápu. Þið sjáið
að það er þó ekki eingöngu hugs-
að um útlitið, þótt kápan sé nógu
góð líka í því tilliti. Á hettunni
er smágluggi með gegnsæju plasti,
þannig að hægt er að líta út til
hliðar og fylgjast með umferðinni,
Á úlnliðnum er líka kringlóttur
gluggi, svo hægt er að líta á úrið
sitt, án þess að fletta upp erminni
í úrhellisrigningunni, enda er erm-
in tekin saman um úlnliðinn og
notalega þröng á þeim stað, þannig
að rigningin streymi ekki upp eft-
ir öllum handlegg. Vasinn er gegn-
sær, svo að ekki þarf að gramsa
eftir neinu í óvissu þar.
HUÐIN
Áður en byrjað er að snyrta sig, verður húðin að' vera alveg hrein — sama ó hvaða aldri
konan er.
SÚ UNGA á að bera á sig vökvakrem, en sé húðin mjög feit kringum nefið og á hökunni,
má sleppa því þar. Sé húðin yfirleitt mjög feit, má nota húðlitað og sótthreinsandi undirlags
krem, sem einnig dregur svitaholurnar örlítið saman. Það heldur húðinni mattri og varnar því
nokkuð að bólur og fílapenslar myndist.
SÚ FULLORÐNA á líka að nota ólitað vökvakrem.
ELDRI KONAN verður að gera húðina ferskari með því að nota andlitsvatn áður en undirlags
kremið er borið á. Það má líka gjarnan vera vökvakrem. Margar konur halda, að það þurfi
feitt krem undir púður sé húðin þurr, en það er misskilningur, því að þá sýgur húðin það mik-
ið í sig af kreminu, að það leitar upp aftur, þegar líður á daginn, og gerir húðina glansandi.
PÚÐURUNDIRLAG
Þá er komið að hinu raunveru-
lega kremi, sem á að binda púðrið.
Það er um að gera að strjúka það
jafnt og léttilega inn í húðina.
SÚ UNGA ætti að vara sig á
að nudda húðina of mikið um
leið og kremið er borið á, því að
það er venjulega fremur stirt í
notkun og getur þannig myndað
hrukkur. Gleymið ekki að bera
það á kringum augun og upp að
hárrótinni. Liturinn fyrir ungar
konur ætti að vera aðeins dekkri
en húðin.
SÚ FULLORÐNA ætti að velja
sér hálfgegnsætt krem og eins líkt
húðarlitnum og hægt er. Gott er
að bera það á meðan húðin er
aðeins vot og strjúka það út snöggt
og jafnt. Gleymið ekki hálsinum.
ELDRI KONAN verður að hafa
dálítið litað krem, oft er það
mjög fegrandi fyrir hana, ef lit-
urinn er bleikleitur eða svokallað-
ur „rósa“ litur. Hafi hún sjálf
rauðleita húð, er það auðvitað ekki
heppilegt, þá ætti liturinn að vera
svolítið brúnleitari.
KINNALITUR
SÚ UNGA ætti ekki að nota kinna-
lit nema hún sé mjög fölleit, og
þá aðeins vott efst á kinnbeinin.
Honum er svo jafnað út með bóm-
ull.
SÚ FULLORÐNA litur oft betur
út með kinnalit, sérstaklega gef-
ur hann augunum aukinn glans.
En það er vandi að leggja hann
á. Notið brúnbleikan lit, annað-
hvort fljótandi eða sem krem og
blandið honum saman við litað
púðurundirlag. Berið það á ofar-
lega á kinnbeinin og uppeftir, og
varizt að láta sjást hvar það byrj-
ar eða hættir. Sé kinnalitur not-
aður i púðursformi, á að bera hann
á eftir að konan hefur púðrað sig.
E’LDRI KONAN ætti að nota
mjög ljósan kinnalit, beigelitan
eða aðeins róslitan. Athuga má,
að séu augnalokin mjög dökk, get-
ur verið gott að bera svolítinn
kinnalit á þau eða e.t.v. ijóst dag-
krem, eða í þriðja iagi svolitinn
hvítan augnskugga.
PÚÐUR
SÚ UNGA þarf ekki að púðra sig
mikið og þá aðeins með lausu
púðri, heldur ijósara en undir-
lagskremið. Þerrið yfir með bóm-
ull á eftir. Oft er nóg fyrir ungar
stúlkur að púðra aðeins lauslega
yfir nefið og þá hluta andlitsins,
sem helzt vilja glansa.
SÚ FULLORÐNA velur líka
laust púður og hefur það í sama
lit og undirlagið. Púðurkvastinn
þarf að vera mjúkur og púðra á
laust yfir andlit og háls, en bursta
það mesta af með mjúkum bursta
á eftir, niður eftir andlitinu.
ELDRI KONAN ætti að nota
ijósara púður en undirlagið. Hún
má púðra sig nokkuð fastar en
þær yngri og nota til þess bómull,
sem hún klappar húðinni þéttings-
fast með. Gott er að nota mikið
púður meðan verið er að púðra sig,
en bursta Það heldur af á eftir,
niður eftir andlitinu. Þannig fest-
ist púðrið ekki í andlitshárunum,
en það mundi gera þau meira á-
berandi. Púður með svolítið fjólu-
litum blæ fer oft vel á eldri kon-
um. Gott er að hafa í huga, að
ekki sé mikill litarmunur á and-
liti og höndum, sé kona dálítið
farin að eldast.
AUGNSKUGGI
SÚ UNGA velur sér skugga í
svipuðum lit og augun, dregur strik
meðfram augnhárarótinni og jafn-
ar þvi upp i átt út að brúnunum.
SÚ FULLORÐNA getur notfært
sér augnskugga á margan hátt.
Sé hún mjög dökk i kringum aug-
un, getur ljós-beige skuggi (eða
ijóst púðurundirlag) hulið það vel.
Reyndar má mynda alls konar
skugga í andlitinu með dökku og
ljósu steinpúðri —gera andlitið
grennra og holdugra að vild, en
e.t.v. lýsum við því nánar seinna.
En augnskugginn á að vera mjög
litdaufur liggi augun djúpt, sterk-
ari og dekkri séu þau útstandandi.
Hann á að liggja í átt að hárrót-
inni ef augun eiga að sýnast lengra
frá hvort öðru en þau eru, en séu
augun of langt frá hvort öðru, má
laga það með því að láta skuggann
vera nær augnkróknum.
ELDRI KONAN ætti að nota
augnskugga i púðurformi, ljósan
pastellit, t.d. ijósgrátt. Á kvöldin
er fallegt að hafa silfurkorn í
honum.
Næst mun svo verða talað um
augnstrikin, augnhárin og brúnirn-
ar, varalitinn og þvott húðarinnar
fyrir svefninn. ★