Vikan - 28.10.1965, Blaðsíða 32
Zanussi heimilistækin eru
árangur af löngu samstarfi og
rannsóknum tæknifræöinga og
skipulagsfræðinga á þörfum
heimila og húsmæðra, ásamt
áralangri reynslu á fjölmörgum
sviðum tækninnar.
Hin sívaxandi sala á Zanussi
heimilistækjum hér á landi
sýnir að það er óhætt að treysta
hinum þroskaða smekk og
gæðamati íslenzkra húsmæðra.
apiu
©Vinur þinn hleypur undir bagga með þér þegar
mest á reynir. Þú átt kost á að gera einhverjum
vina þinna dagamun, en það þvælist mikið fyrir
þér hver á að verða fyrir valinu. Það verður nokk-
uð um veikindi í kringum þig.
TvfburamerklR (22. maf — 21. Júni):
Af einhverjum ástæðum ertu nokkuð miður þín og
getur ekki notað starfskrafta þína sem skyldi. Þú
færð tækifæri til að koma upp um óheiðarleik ann-
arra, en farðu samt varlega í sakirnar.
Krabbamerklð (22. Júnf — 23. Júlí):
Varastu að tala mikið um nánustu samstarfsmenn
þína út á við, það gæti verið að einhver væri á
hnotskóg eftir þessum umsögnum um þá. Kunningj-
ar þínir koma þér á óvart og létta af þér verki sem
þú átt erfitt með að leysa af hendi.
LJónsmerklð (24. JÚU — 23. igúst):
Vegna utanaðkomandi áhrifa verðurðu að draga
ýmsar persónulegar framkvæmdir. Þér er bezt að
hætta að hugsa um væntanlega aðstoð frá vissri
persónu, þú færð áreiðanlega einhvern annan til
hjálpar.
Meyjarmerklð (24. igúst — 23. september):
Þú lendir í dálítilli klípu en úr henni rætist samt á
bezta veg ef þú heldur fast við þitt. Varastu að
hiaða upp verkefnum þinum, það eru ýmsir hlutir
sem þú verður að láta ganga fyrir hvað sem hver
segir.
Vogarmerkið (24. eeptember — 23. október):
Þú átt því láni að fagna að þú losar þig við tvo
skuldunauta sem þú hefur haft nokkrar áhyggjur
af. Þú gerir nokkrar skynsamlegar framtiðaróætl-
anir í samráði við þér eldri og reyndari persónu.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember).
Kunningi sem þú hefur oft rétt hjálparhönd sýnir
nú þakklæti sitt i verki. Þér verður boðið á vinsæl-
an skemmtistað, þar sem nokkuð óvænt ber fyrir
sjónir þínar. Heillalitur er rauður.
BogmannsmerkiS 23. nóvember — 21. desember):
Að líkindum verður eitthvað um lasleika á heimíli
þínu eða í kringum þig á vinnustað. 'Þú hefur nokkr-
ar áhyggjur af því að geta ekki afkastað verkefnum
" þínum. Þú færð kunningjaheimsókn.
StelngeitarmerklS (22. desember — 20. janúar):
Það er ýmislegt í fari kunningja þinna sem þér fell-
ur ekki við og fer það einstaklega í taugarnar á
Þér eins og sakir standa. Ef þú vilt forðast ill-
deilur af þeim sökum ættirðu að halda þér sem
mest út af fyrir þig-
VatnsberamerkiS (21. Janúar — 19. febrúar):
Þú stendur í þakkarskuld við nákomna persónu, en
þér til mikillar ánægju kemstu-að því að hún ætl-
ast ekki til neins endurgjalds af þinni hálfu. Eldri
maður ber upp vandræði sín við þig.
FískamerkiS (20. febrúar — 20. marz):
Þú gerir nokkrar tilraunir til að fá leyst úr spurn-
ingu sem hefur valdið þér nokkrum ónotum. Þú
færð fréttir af vinum þínum sem þú veizt ekki al-
mennilega hvernig þú átt að bregðast við.
Stjornugpain gildir frá fiMtmtudegi til fimmtadacs.
©
félaga.
HrútsmerkiS (21. marz — 20. aprfl):
Eins og undanfarið halda verkefnin áfram að hlaðast
á þig, en þér nýtist tíminn ótrúlega vel og þú kem-
ur furðu mörgu af á skömmum tima. Þú nýtur um
stund aðstoðar gamals kunningja þíns og vinnu-
32 VXKAK 43. tbL