Vikan

Tölublað

Vikan - 18.11.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 18.11.1965, Blaðsíða 32
Nútíma kona notar Yardley fegrunarvörur Yardley fegrunarvörur eru fram- leiddar fyrir yður samkvæmt nýjustu tækni og vísindum, eftir margra ára rannsóknir og til- raunir í rannsóknarstofum Yardl- ey í London og New York. Yardley veit að þess er vænst af yður, sem nútíma konu, að þér lítið sem bezt út, án tillits til hvar þér eruð eða hvernig yður líður. Þess vegna býður Yardley yður aðeins hin réttu andlitsvötn og krem, hvernig svo sem húð yðar er og Yardley tízkulitirnir f vatalitum, augnskuggum og make up, sem fara yður bezt. BIÐJIÐ UM YARDLEY í NÝJUSTU PAKKNINGUNUM. Innflytjandi GLÓBUS h.f. StjÖrnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Allt bendir til þess ;?.ð þú eigir erfiðara með að koma verkum þínum af en undanfarið og einnig að þú verðir fyrir eiiiðleikum á fleiri sviðum. Gættu þín á einum samstarfsmanna þinna, hann er mjög afbrýðisamur í þinn garð. Nautsmerkið 21. apríl — 21. maí): Það verður mjög mikið jafnvægi yfir öllum gerð- um þínum og háttalagi í vikunni. Ekkert óvenju- legt mun reka á fjörur þínar, en dagarnir verða einkar þægilegir. Vertu heima á miðvikudags- kvöld. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Einn nágranni þinn og íélagi gerir þig aö nokkurs- konar trúnaðarmanni sínum. Sýndu að þú sért þess verður að þér sé trúað fyrir leyndarmáli. Skipu- lagsgáfur þínar ættu að geta notið sín vel. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Líkur eru á að þú veröir fengin til að stilla til friðar milli fólks sem þú þekkir ekki mikið til. Þú færð kærkomið tækifæri til vissra framkvæmda. Farið gætilega með fjármálin á þriðjudag. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú ættir að gæta þess vel aö halda fram rétti þín- um á vinnustað og að á þig verði ekki hallað, þess- vegna skaltu alltaf halda kröfum þínum við, en gættu þess að leika ekki af þér. Heillatala er fjórir. @Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Hugur þinn verður mjög rómantískt stemmdur og þú munt leita félagsskapar þeirra sem láta hverjum degi nægja sína þjáningu. Þú færð fréttir af kunn- ingjum þínum sem koma flatt upp á þig. Heilla- litur er grænn. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú munt ekki eiga mjög annríkt þessa viku og skaltu þessvegna unna þér hvíldar, því framundan er mikið annatímabil. Fyrri hluti vikunnar er eink- ar hagstæður til ýmissa viðskipta. Vertu lieima á sunnudagskvöld. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú færð einhverri félagssamþykkt eða reglugerð breytt með harðfylgi þínu. Félagsstarfsemi öll verð- ur með miklum blóma. Láttu framar öllu öðru at- vinnu þína ganga fyrir öðrum verkefnum. Bogamannsmerkið (23. nóveinber — 21. desember): Þú ættir að sýna kunningjum þínum og vinum meiri tillitssemi og trúnað en undanfariö. Dragðu þig ekki um of út úr kunningjahópnum. Þeir sem fæddir eru síðustu vikuna í nóvember ættu að skemmta sér vel um helgina. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Vikan verður mjög hagstæð til ýmissa framkvæmda, en þú ættir að hafa þér reyndari mann með í ráð- um. Notaðu frístundirr.ar til að auka þekkingu þína. Vertu ekki mikið utan heimilisins. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Láttu ekkert raska rósemi þinni þótt þér undir niðri finnist full ástæða til uppreisnar. Þú leggur drög að framkvæmdum sem verða til mikilla hags- bóta fyrir þig og þína nánustu. Þú skemmtir þér vel á laugardagskvöld. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Það mun ýmislegt þægilegt gerast í vikunni en þó ekkert sem þér verður minnisstætt. Það verður nokkuð um heimboð og félagsstarfsemi. Þú urn- gengst kunningja þína mikiö og ert lítið heimavið. 32 VIKAN 46. tbL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.