Vikan - 16.12.1965, Síða 6
NILFISK
verndar gólfteppin -
þvf að hún hefur nægilegt sogafl og afburða
teppasogstykki, sem rennur mjúklega yfir
teppin, kemst undir lægstu húsgögn og
DJÚPHREINSAR jafnvel þykkstu teppi full-
komlega, þ.e. nær upp sandi, steinkornum,
glersalla og öðrum grófum óhreinindum, sem
berast inn, setjast djúpt í teppin, renna til,
þegar gengið er á þeim, sarga undirvefnað-
inn og slíta þannig teppunum ótrúlega fljótt.
NILFISK slítur alls ekki teppunum, þar sem
hún hvorki burstar né bankar, en hreinsar
aðeins með rétt gerðu sogstykki og nægilegu
sogafli.
hreinsar hátt og lágt -
því henni fylgja fleiri og betri sog-
stykki, sem nó til ryksins, hvar sem
það sezt, fró gólfi til lofts, og auka-
lega fóst bónkústur, hórþurrka,
mólningarsprauta, fatabursti o.m.fl.
þægilegri -
því hún hefur stillanlegt sogafl, hljóðan gang,
hentuga óhaldahillu, létta, lipra og sterka
slöngu, gúmmístuðara og gúmmíhjólavagn, sem
„eltir" vel, en hægt er að taka undan, t.d. f
stigum.
hreinlegri —
þvf tæmingin er 100% hreinleg og auðveld,
þar sem nota mó jöfnum höndum tvo hreinleg-
ustu rykgeyma, sem þekkjast f ryksugum, málm-
fötu eða pappírspoka.
traustari -
því vandaðra tæki fæst ekki — það vita þær,
sem eiga NILFISK — og jafnvel langömmur, sem
fengu hana fyrir mörgum áratugum og nota
hana enn, geta ennþá fengið alla varahluti á
stundinni, því þá höfum við og önnumst við-
gerðir á eigin verkstæði. Gömlu NILFISK ryk-
sugurnar voru góðar, en þær nýju eru ennþá
betri.
NILFISK
HEIMSiNS BEZTA RYKSUGA!
Yegleg jólagjöf
- nytsöm og varanleg.
Sendum
um allt
land.
O KORAIERIJ P
S IMI 2-44-20 - SUÐURGATA 10 - REYKJAVÍK
Undirrit. óskar að fá sendan NILFISK myndalista með upplýsingum
um verð og greiðsluskilmála.
Nafn: .
Heimili:
Tfl: FÖNIX S.F. Pósthólf 1421, Reykjavfk.
g VIKAN 50. tbl.
V-50
VOND STAFSETNING.
Kæri Póstur!
Ég á í svo litlum erfiðleikum
með sjálfan mig og mitt skóla-
nám. Enn það er svo lítið erfitt
að skýra það út svo að rétt mynd
komi framm. En ég ættla að
reina að gra það svo þér getið
gert yður hugmnd um mig. Ég
er ómuglegur í stafsetningu, en
ef ég er spurður um eitt einstagt
orð get ég stafað það rétt, eða
um það bil 95 af 100, og þar á ég
við orð sem eru frekar villu-
gjörn hjá mér, og mér betri
mönnum.
í stærðfræði finst mér ég skilja
flóknar reglur og formulur en
fæ oftast ranga útkomu vegna
þess að ég hef t.d. sagt að 2x2 = 5
(2x2 = 4) eða ekvað því um líkt.
NB. Hef reint að hæja á mér,
dugr ekki.
Haldið þér að sálfræðingur
geti hjálpað mér?
Mér liggur á svari.
Virðingarfyllst
Nemi.
Hugsaðu alltaf um hvert einstakt
orð, áður en þú skrifar það. Sé
það rétt hjá þér, að þú sért glúr-
inn í stafsetningu þannig, hlýt-
urðu að ná þér á strik. Annars
er sjálfsagt fyrir þig að leita til
sálfræöings. Þeir eru svo skratti
klárir í stafsetningu.
ÁVÍSANIR.
Kæri Póstur!
Mig langar til að spyrja þig
nokkurra spurninga, varðandi
„tékkhefti“. Hvað þarf maður að
vera gamall til að fá tékkhefti
út á innistæðu í banka, og hvað
er gefið út fyrir „minnstu upp-
hæð“?
Virðingarfyllst
X—4 + A—9.
Til að opna ávísanareikning
þurfa menn að vera orðnir 21
árs. Ég held, að enginn nenni að
gefa út ávísun á minna en 100
krónur, en ég býst við að ávísun
á eina krónu yrði tekin gild.
BORÐAR AF SÉR FINGURNA.
Kæra Vika!
Svo er mál með vexti að ég
naga neglurnar alveg voðalega,
svo ég ríf stundum út úr og það
blæðir og ég er með sár á fingr-
unum. Góða Vika, þú gefur nú
svo mörgum svo góð ráð — hvað
á ég að gera?
Með fyrirfram þökk fyrir svar-
ið. 1
Ein með 10 fingur og 10 tær.
Gamalt húsráð mun vera að r jóða
ögn af tjöru eða einhverju öðru
ólystugu efni á neglumar. Ann-
ars er sagt að orsökin sé tauga-
óstyrkur og eitthvert innra ör-
yggisleysi svo það væri kannske
ekki úr vegi, að þú leitaðir til
taugasérfræðings.
13 ÁRA ÁST.
Kæri Póstur!
Ég er 13 ára gömul og alveg
hræðilega hrifin af einum strák
og veit að hann er hrifinn af
mér. Ég hef oft dansað við hann
í Lídó en við höfum ekkert verið
saman.
Hvað á ég að gera, geturðu
ekki hjálpað mér eitthvað?
Gúddý.
Hvað þú átt að gera? Alls ekkert
næstu 5 árin!
UNGPÍUR Á SJÓ.
Kæri Póstur!
Mig langar til að spyrja þig
hvað maður þarf að'vera gamall
til að geta komist þerna á eitt-
hvað millilandaskip, eða kokkur.
Ég vonast svo eftir svarifljótlega.
Kærar þakkir.
Ein fyrir sjóinn.
Aldurslágmarkið er dálítið óá-
kveðið, en skipafélögin taka helzt
ekki nema rosknar og áhyrgar
konur I ábyrgðarstöður á skips-
fjöl.
AF ÞVÍ BARA.
Kæri Póstur!
Af hverju skrifa allir „Kæri
Póstur“, „Kæra Vika“, „Góði
Póstur“ eða „Góða Vika“. Af
hverju er strsetó alltaf of seinn?
Af hverju er útsendir útvarpsins
á tónlist alltaf mun hærri en á
tali? Af hverju ganga flestir
karlmenn alltaf í óburstuðum
skóm? Af hvorju er löggan aldr-
ei þar sem hún á að vera? Af
hverju er maturinn á veitinga-
húsum borgarinnar oftast óætur?
Af hverju snýrðu alltaf út úr
öllum bréfum? Af hverju seg-
irðu, að skriftin mín sé Ijót?
Gunna tunna.
Af því hara.
SJÓNVARP Á ÞJÖÐARHEIMILIÐ.
Pósturinn, Vikíin, Heykjavík.