Vikan

Tölublað

Vikan - 16.12.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 16.12.1965, Blaðsíða 32
Fyrir 400,00 krónur á mánuði getið þér eign- azt stóru ALFRÆÐI0RDA8ÚHINA NORDISK KONVERSATIONS LEKSIKON sem nú kemur út að nýju á svo 6- trúlega lágu verði ásamt svo hag- stæðum greiðsluskilmálum, að allir hafa efni á að eignast hana. Verkið samanstendur af: Stórum bindum 1 skrautlegasta bandi, sem völ er á. Hvert bindi er yfir 500 síður, innbundið í ekta ,,Fablea“, prýtt 22 karata gulli og búið ekta gullsniði. í bókina rita um 150 þekkt- ustu vísindamenn og ritsnillingar Dan- merkur. Stór, rafmagnaður ljóshnöttur með ca. 5000 borga- og staðanöfnum, fljót- um, fjöllum, hafdjúpum, hafstraum- um o.s.frv. fyljir bókinni, en það er hlutur sem hvert heimili þarf að eignast. Auk þess er slíkur ljóshnöttur vegna hinna fögru lita, hin mesta stofuprýði. VIÐBÆTIR: Nordisk Konversation Leksikon fylgist ætíð með tímanum og því verður að sjálfsögðu framhald á þessari útgáfu. Verð alls verksins er aðeins krónur 5.900,00, ljóshnötturinn innifalinn. GREIÐSLUSKILMÁLAR: Við móttöku bókarinnar skulu greidd- ar kr. 700,00 en sían kr. 400,00 mánað- arlega, unz verkið er að fullu greitt. Gegn staðgreiðslu er gefinn 10% af- sláttur, kr. 590,00. Bókabúð N 0 RÐ RA Hafnarstræti 4, sími 14281. Undirrit....., sem er 21 árs og íjár- ráða, óskar að gerast kaupandi að Nordisk Konversation Leksikon — með afborgunum — gegn staðgreiðslu. Dags................... Nafn ................................. Heimili Simi undarlegt sé það að ekki skuli vera hægt að fó sérpakkað, íslenzkt smjör í Bretlandi. Nú skal ég segja þér, hversvegna það er ekki hægt. Þegar einhverri vöru er dreift á markaðinn í sérstakri pakkningu, þá er það ekki til neins, nema til komi auglýsingar á vörunni um leið. Það verður að auglýsa í blöðum og helzt sjónvarpi og segja neytend- um, að íslenzkt smjör sé gæðavara og þess virði að kaupa það. Þess- konar auglýsingaherferð kostar of fjár og það væri út í bláinn að reyna eitthvað slíkt fyrir svona lít- ið magn. Auk þess yrði að vera hægt að ábyrgjast að íslenzkt smjör væri ætíð fáanlegt, en slíkt er auð- vitað ekki fyrir hendi. — Og hvernig eru þá þessi 500 tonn seld? — Það eru hér á markaðnum ákveðin merki eins og danska smjör- ið og það nýsjálenzka. Þar að auki eru ýmis merki hérlendra fyrirtækja, sem blanda saman smjöri viðsveg- ar. að og pakka í eigin umbúðir. Ég myndi gizka á að fast að helm- ingi innflutta smjörsins lenti í slík- um umbúðum og svo er auðvitað talsvert mikið magn af smjöri not- að ( bakstur og sælgætisgerð. Fyrir- tækin sem pakka blandaða smjör- inu rannsaka eigindir smjörs frá ýmsum framleiðendum og komast að raun um í hverskonar blöndur íslenzka smjörið hentar, til dæmis. Yfirleitt er heldur lægra verð á smjöri sem notað er til blöndunar, heldur en því danska og nýsjá- lenzka, en þó fer það mikið eftir því hvernig smjörmarkaðurinn er. Til dæmis var markaðurinn fyrir blöndunar-smjör hagstæður seinni helming ársins 1964, eða þegar meiri hlutinn af okkar smjöri var seldur og tókst því að fá mun hærra verð fyrir okkar smjör heldur en það nýsjálenzka var selt fyrir á sama tíma. Fleira kemur þó þarna til, sem of flókið yrði að skýra í smáatriðum, en segja má að fyrsti útflutningur íslenzks smjörs á Bret- landsmarkað hafi tekizt vel, því að smjörið líkaði vel og verðið sem fyrir það fékkst verður að teljast mjög hagstætt miðað við smjörverð á þessum markaði. A þessu ári hafa líka verið flutt hingað um 350 tonn af ostum frá íslandi og meira var flutt til Þýzkalands, en það má geta þess að heildarinnflutningur til Bretlands á ostum er árlega um 140 þúsund tonn. — Þetta voru landbúnaðarafurð- irnar. En nú er Sambandið annar stærsti aðilinn í fiskútflutningi og mér skilst, að þú annist þá sölu einnig. — Það er rétt, að það heyrir líka undir þessa skrifstofu að selja fiskafurðir fyrir þau 30 frystihús, sem eru á vegum SIS. Það er að sjálfsögðu aðallega freðfiskur, en líka fiski- og síldarmjöl, hrogn, humar, skreið og smáatriði eins og gellur og skötuselur. Nú er vert að taka það fram strax, að þessi sala, sem fram fer hjá okkur í London, hún nær bara til 25 — 30% af heildar freðfiskmagni Sambands- frystihúsanna. Hitt fer til Bandaríkj- anna og nokkuð til Austur-Evrópu- landa. En af þessu magni, sem við fáum til sölumeðferðar, seljum við tvo þriðju hluta hér í Bretlandi og þriðjunginn í Frakklandi, eða því sem næst. — Og þér finnst þetta skemmti- legt verkefni? — Mjög svo. Það er í senn heill- andi og lærdómsrlkt og maður kynnist mörgum skemmtilegum hlut- um. Annars er höfuðvandamálið það, að fá ekki miklu meiri fisk til að selja. Af þeim ástæðum er út í bláinn að gera mikið til að leita eftir fleiri kaupendum; það mundi þá einungis koma niður á þeim, sem þegar kaupa af okkur. — A hvern hátt fara greiðslur fram fyrir fiskinn til dæmis? — I Frakklandi höfum við tíu til fimmtán reglulega viðskiptavíni, sem flestir eru í Boulogne-sur-Mer og fiski til þeirra er skipað upp í Calais. Þeir greiða með „letter of g2 VIKAN 50. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.