Vikan - 16.12.1965, Blaðsíða 24
VIKAN OG HEIMILIÐ
ritstjóri:
Gucíridur Gisladóttir.
Ef þið saumið einlitan dúk má
nota hann allan ársins hring,
en sé keypt heldur meira af
efninu, er hægt með lítilli fyr-
irhöfn að gera hann að jóla-
dúk á jólunum. Dúkurinn sjálf-
ur á myndinni er ætlaður á
kringlótt borð og sniðinn eftir
því. Á kantana er saumað 33
cm. breið pífa, sniðin a.m.k.
helmingi lengri en kanturinn,
þannig að hún smáfellist vel.
Þannig er dúkurinn, en litla
svuntan er kringlótt, 25 — 30
cm. í þvermál, eða eftir smekk
og stærð borðsins. Brúnirnar
eru bryddaðar með skábandi.
Fallegt er að dúkurinn sé
grænn og svuntan þá í sama
lit. í»á eiga hjörtun að vera úr
appelsínurauðu, rauðu og rauð-
og hvítröndóttu efni. Snið af
þeim er hér fyrir neðan. Klipp-
ið hjarta úr appelsínurauða
... en hvenær koma kærí minn
kakan þín og jólin.
Þetta litla munstur má nota á margan hátt
til jólagjafa, sauma það í dúka, barnaföt o.fl.
Jólasvunta á dúkinn
Framhald á bls. 24.
Sjá snið á bls. 40.
Hárgreiðslan
Þær sem klipptar eru svipað þessu, eins og' marg-
ar eru núna, geta gert hárgreiðsluna hátíðlegri,
þegar það á við. Á annarri myndinni hefur stúlk-
an bundið slaufu um stutta hárið í hnakkanum
og rúllað því í skárúllu, en neðst er hnakkahárið
krullað í stóra, opna Iokka aftur af hnakkanum,
en flauelsband frá hliðum og yfir hnakka, með
skrautlegu meni í hliðunum. Hárið tollir auðvit-
að ekki í hnakkanum, nema það sé lakkað vel.
Gleymið ekki útlitinu í jólaönnunum
Fæturnir
Hendurnar
Séu fæturnir þreyttir í jólaönnunum getur
verið gott að hvila þá með æfingum. Þær
fjórar æfingar, sem lýst verður hér á eftir,
eru allar auðveldar og fljótlegar.
Til þess að styrkja kálfana og koma í veg
fyrir sinadrátt af þreytu, sem oft kemur,
hafi verið staðið og gengið mikið á háum
hælum, er gott að ganga á hælunum og snúa
um leið tánum dálítið inn á við.
Til þess að styrkja iljarnar skuluð þið
standa með fæturna beint fram svolítið hvor
frá öðrum. Veltið svo fótunum út á við, þann-
ig að þið standið á ytri hlið iljarinnar og á
hlið táarinnar, snúið svo tánum inn á við
og reisið ykkur upp á tær um leið. Þetta
er góð æfing við þreytu eftir miklar stöður,
en helzt þarf að iðka hana reglulega, og
þær sem hafa signar iljar ættu að gera þetta
þrisvar sinnum á dag í tíu skipti í senn.
Til þess að styrkja liðamótin er ráðlagt að
standa á þykkri bók með tærnar svolítið út
af. Beygið svo tærnar, eins og þið séuð að
reyna að ná i blaðsíðurnar og teygið úr þeim
aftur. Endurtakið þetta nokkrum sinnum.
Til þcss að styrkja fæturna í heild er rétt
að standa dálítið frá skáp, sem þið getið
stutt ykkur við, rísa upp á tærnar og svo
velta fætinum yfir á hælinn, síðan aftur upp
á tær og þannig áfram.
Séu hendurnar hrjúfar er gott að gefa þeim olíu-
bað. Hitið olivuoliu þar til hún er volg og blandið
örlitlum sykri í. Látið hendurnar liggja um stund
á hverju kvöldi í oliunni, en á eftir eru þær þvegnar
í volgu vatni og feitri sápu og handáburður nudd-
aður vel inn i húðina á eftir. Bezt er að bera hand-
áburðinn á strax eftir að hendurnar eru þurrkaðar
og nudda hann eins og verið sé að fara í hanzka.
Mjög heitt vatn þurrkar hendurnar og gerir þær
hrjúfar, en kuldi er lika slæmur fyrir þær. Farið
því aldrei berhentar út í kulda. Notið eingöngu
pappírsþjöl á neglurnar, og hægt er að styrkja þær
þegar mikið reynir á þær vegna vinnu með því að *
lakka undir þær um lelð og þær eru lakkaðar að of-
an. í snyrtivöruverzlunum eru á boðstólum efni til
að styrkja neglurnar og mýkja naglböndin, en gott %
heilsufar almennt er líka mikilvægt fyrir styrkleika
naglanna. Kalk og B-bætiefni má reyna. Séu lita-
blettir á höndunum af saft eða einhverju öðru eru
sitrónur og haframjöl helztu ráðin. Hendurnar eru
nuddaðar innan úr sítrónuberki, en haframjölsað-
ferðin er þannig, að fyrst eru hendurnar látnar í
gufubað og síðan nuddaðar með hráu haframjöli.
í mjög gróf störf er sjálfsagt að nota gúmmíhanzka
eða kremið, sem verður að ósýnilegum hanzka og
fæst 1 apotekum. Sé hvorugt fyrir hendi verður að
þvo hendurnar sem allra fyrst eftir störfin og ágætt
er að klóra vel í sápu áður en byrjað er, þannig
að óhreinindin safnist ekki undir neglurnar.