Vikan

Eksemplar

Vikan - 16.12.1965, Side 29

Vikan - 16.12.1965, Side 29
eykst notkun þeirra engu síður ört í einkalífinu. Ofangreindur fróðleikur er allur fenginn frá Margréti Matthíasdóttur, sem er eini útlærði hárkollumeist- arinn á fslandi í dag, og það eru hennar handverk, sem við sjáum á höfðum leikaranna í musterinu við Hverfisgötu. Margrét var fyrst til aðstoðar fyrrverandi hárkollumeist- ara Þjóðleikhússins, en fullnumaði sig í faginu í London, þar sem hún telur hárkollugerð vandaðasta í heiminum, en e.t.v. óþarflega í- haldssama, eins og raunin er um fleira af brezkum toga. Þegar ég var að spjalla við Mar- gréti í ríkidæmi hennar í Þjóðleik- húsinu, veitti ég því athygli, að hún horfði yfirleitt ekki í augu mér eða á varirnar, eins og fólki er þó tam- ast, heldur á hárið. •— Þetta er orðin árátta hjá mér, sagði Margrét. Þegar við hjónin er- um innan um fólk, sé ég oft, hvar maðurinn minn er allt í einu far- inn að gretta sig framan í mig. Þá veit ég, að ég hef gleymt mér við að stúdera hár á einhverri mann- eskju. — Hvers konar hár notarðu í koll- ur á leikarana? — Næstum því eingöngu manns- hár. Við kaupum hár aðallega frá Englandi, en einnig kaupi ég allt íslenzkt hár, sem ég kemst yfir. Mér lék hugur á að vita, hvort -Q- Og Brynja er ekki við eina fjölina felld. Hér fær hún á sig annan dökkan topp. það gæti ekki verið gróðavænlegt að safna hári og selja. — Fólk heldur almennt, að það geti fengið háar upp- hæðir fyrir hár, serri það býður mér til kaups. En það er misskilningur. Hárið er þá fyrst orðið dýrt, þegar búið er að vinna það. Fyrst þarf að sótthreinsa það, síðan kemba það og aðgreina, en hár af einni manneskju hefur allt frá 6 og upp í tólf mismunandi lengdir. Og að þessu loknu getur maður loks farið að vinna kolluna sjálfa, toppinn eða hvað maður ætlar að gera úr hárinu. — Hvað ertu lengi að búa til eina hárkollu með venju- legum dagvinnutíma? — Þrjár vikur. — Gerirðu engar kollur eða toppa fyrir fólk til einka- nota? — Ég hef nú ekki mikinn tíma aflögu til þess. Þó reyni ég ofurlítið að vinna heima, hef m.a. algjörlega lagt undir mig húsbóndaherbergið í því skyni, því að það er útilok- að að vera með hár innan um aðra hluti. En það væri gaman að geta unnið meira fyrir fólk til einkanota, það er afar þakklátt starf. Ég gerði t.d. einn mjög vandaðan topp fyrir konu, sem tekur mikinn þátt í skemmtanalífinu, og hún skilur alls ekki núna, hvernig hún fór að því að vera án hans hér áður. En viljirðu fá að vita eitthvað um hár- kollunotkun í daglega lífinu, skaltu snúa þér til Guðrúnar Magnúsdóttur, sem rekur G.M. búðina í Þingholtsstræti, einu búðina, sem verzlar með hárkollur hér á landi. Þegar ég gekk upp tröppurnar að G.M.-búðinni, mætti ég konu á leið út þaðan. Við litum flóttalega hvor á aðra, og sennilega hafa báðar hugsað: Nú, svo að hún þarf þá hár- kollu, þessi! Þannig er nú eflaust hugsunarhátturinn hjá mörgum hér. Guðrún Magnúsdóttir tók mér ljúflega og sýndi mér gersemar sínar. — Eru viðskiptin fjörug? spurði ég. — Ég hefði aldrei trúað því, að hér væri svona mikill Framhald á bls. 38. O Og loks fáum við að sjá Brynju ljóshæröa. Hér her hún heila hárkollu. \

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.