Vikan - 16.12.1965, Síða 45
Verstu menn veraldar
Framhald af bls. 17.
sýnn og skilningslaus, en eina
gáfu hafði hann þó umfram flesta
aðra: nærri yfirnáttúrlegan skiln-
ing á hópsálinni, sál fjöldans.
Hann gerði sér fullkomlega ljóst,
hve miklu veikari menn eru fyr-
ir áróðri, hve illa rökstuddur og
fáránlegur sem hann kann að
vera, sé honum beint til þeirra
í hóp, heldur en þegar talað er
til þeirra sem einstaklinga. í sam-
ræmi við þetta notaði hann áróð-
ursgáfur sínar, sem hann vissu-
lega hafði í ríkari mæli en flest-
ir aðrir kjaftaskúmar og lýð-
skrumarar sögunnar, og með
þeim vann hann sína stærstu
sigra.
Lífsskoðanir hans virðast hafa
mótazt meðan hann lá í göturæs-
unum í Vínarborg, þar á meðal
Gyðingahatrið, sem töluvert bar
á í borginni um þær mundir.
Sjálfsagt hefur minnimáttar-
kennd þessa stolta töframanns
gagnvart auðugum og menntuð-
um borgurum af kynþætti, sem
hann taldi framandi, átt sinn þátt
í að efla þessa tilfinningu, sem
átti eftir að hafa heldur en ekki
afdrifaríkar afleiðingar. Þær
urðu, sem kunnugt er, líflát fjög-
urra til sex milljóna Gyðinga,
karla, kvenna og barna, og ger-
ir sú slátrun heldur lítið úr af-
rekum Torquemada þess, er um
var rætt í 47. tbl. Vikunnar.
Hugmyndakerfi sitt byggði
Hitler á þeirri trú, að til væri
einn kynstofn öllum æðri, sá ar-
íski, og virðist hann hafa haft
þar norræna kynþáttinn í huga,
þótt hugmyndir hans um mann-
fræði væru raunar næsta rugl-
kenndar og bæru mikilli fáfræði
vitni. Gyðinga og fleira fólk, svo
sem Slava, taldi hann af óæðra
kyni, og því bráðnauðsynlegt að
útrýma þeim til að þeir yrðu ekki
herraþjóðinni til ónæðis og leið-
inda. Aðfarir hinna þýzku her-
námsyfirvalda í Póllandi, Tékkó-
slóvakíu, Rússlandi og Júgóslav-
íu sýndu ljóslega, að þetta var
ekkert spaug hjá foringjanum.
Þegar allt er talið, er gizkað á
að færa megi á reikning hans
dauða hátt í tuttugu milljóna
karla, kvenna og barna, sem ým-
ist féllu í orrustum, stiknuðu í
loftárásum, köfnuðu í gasklefum,
urðu hungri og sjúkdómum að
bráð eða dóu kvaladauða í pynd-
ingaklefum SS og Gestapomanna,
sem reyndust verðugir lærisvein-
ar, og raunar snjallari fyrir-
rennurum sínum hjá Rannsókn-
arréttinum.
Þrátt fyrir þessa valkesti vott-
ar ekki fyrir neinu stórbrotnu í
sambandi við skepnuskap Hitl-
ers. Þvert á mót er grínfígúra
Chaplins óafmáanlega tengd
mynd hans í vitund okkar. Þrátt
fyrir öll sín hrikalegu fjölda-
morð og stórsvik, varð þessi aust-
urríski liðþjálfi aldrei annað en
ómenntaður og þröngsýnn kot-
ungur, jafn grútarlegur og
skammsýnn í alþjóðapólitík og
fyrr í þrætum við félaga sína,
rónana í Vínarborg. Sem betur
fer, getum við kannski sagt, því
annars er ekki að vita nema
honum og glæpalýð hans hefði
orðið meira úr þeim tækifærum,
sem lágu þeim í höndum meðan
vegur þeirra var hvað mestur.
Stalín.
Hafi jafn stórgáfuð og há-
menntuð þjóð sem Þjóðverjar á-
stæðu til að skammast sín fyrir
að gera fáfróðan og hálfruglaðan
flæking sér að leiðtoga og fylgja
honum út í ein brjálæðislegustu
illvirki sögunnar, þá mega göf-
ugustu menntamenn og húman-
istar Vesturlanda *— og þá ekki
sízt íslands — ekki síður roðna
vegna þeirrar háðulegu og sorg-
legu staðreyndar, að áratugum
saman létu þeir hafa sig til að
sleikja tær frumstæðs stigamanns
7/alcá
nylon teygjusokkarnir
eru beztu sokkarnir
fyrir konur sem standa
mikið við störf sín
- þeir gefa fótunum
alhliða stuðning og eru
auk þess jafnfallegir
■t
og venjulegir
nylonsokkar
tízkulegir
- ofþreytondi
100 prósent nylon
'Ualcá
^ nylon
teygjusokkar
EFNAGERÐ REYKJAVIKUR H.F
inqui hratn
VIKAN 50. tbl.