Vikan

Útgáva

Vikan - 16.12.1965, Síða 54

Vikan - 16.12.1965, Síða 54
ið með sigur af hólmi, og tll þess hafði hann drepið þrjó menn. Sér til skelfingar fann Loomis, að hann var farinn að reiða sig ó hann. Linton vissi mjög lítið um Grier- son, allra sízt að hann hafði drep- ið. Það var starf Loomis að sjá um, að slíkt síaðist ekki út, og hann vann störf sín aðdáunarlega vel. Þessvegna var það, sem hann hafði stýrt þessari mjög svo sérstæðu deild í níu ár, án þess að svo mik- ið sem ein spurning hefði verið lögð fram á opinberum vettvangi. Linton vissi, eins og allir aðrir í sérdeildinni, að orðið „sér" náði yfir sérstök störf í víðum skilningi. Hann vissi, að Grierson hafði það til að bera, sem skýrði orðið í flestum orðabókum: sérstakur, ein- stakur, fram úr skarandi, maður eða hlutur, sem skarar fram úr. Hann vissi einnig að það var gott að vinna með honum, og hann var ólíklegur til að stofna til vandræða. Þeir heimsóttu klúbbinn, sem Craig hafði komið til, Lucky Seven, í bíl Griersons, gömlum Lagonda, sem eyddi svo miklu bensíni, að það olli endalausum þrætum við reikningadeildina, og endrum og eins framkallaði orðahríð frá íhaldssamari lögreglumönnum. Orr- ustuvöllurinn var friðsamur og auð- ur og klúbburinn hafði opnað fyrir kvöldið, þegar þá bar að garði. Linton sýndi fýlulegri barþjónustu lögregluskilríki sín, og fýlan hvarf þegar í stað, þegar henni varð Ijóst, að hér voru komnir tveir menn I viðbót, sem nenntu að hlusta á sögu hennar. Linton og Grierson hlustuðu með góðum vilja atvinnumannanna, hlustuðu á það hvernig maður að nafni Reynolds hafði litið út og hvernig hann hefði verið klæddur og hvað hann hefði drukkið mikið af viskíi og síðan reynt að stramma sig af með kaffi. Þegar þeir báðu hana að lýsa honum nákvæmlega, sagði þjónustustúlkan, að hann væri sætur, og þegar hún var beðin um að lýsa honum nánar, sagði hún, að hann hefði verið svolítið líkur Grierson, en ekki eins dökkur. Grierson var ánægður eins og ævin- lega, þegar honum voru slegnir slíkir gullhamrar; en Linton fann, að maðurinn hefði í raun og veru verið hættulegur allt kvöldið, en dulið það vel eins og Grierson. Eftir að Linton hafði ógnað, en Grierson veitt samúð, sagði bar- þjónustan þeim mjög hikandi, hvar þeir gætu fundið Tessu. Svo kom klúbbeigandinn fram á sjónarsviðið, bauð þeim til skrifstofu sinnar, hellti ómælt viskíi í glös handa þeim og hélt langa ræðu um kyrr- látt og löghlýðið eðli klúbbfélag- anna og benti þeim á, að það hefði verið gestur, meira að segja óþekktur, sem hefði gengið af göflunum með þessum árangri. Glugginn, sem hann hafði horft á bardagann út um, var hægra meg- in við borðið hans, og síminn, sem hann hafði ekki notað til að hringja Sunftesh HVERFISGÖTU 16 A UNDRAPÚÐINN APPELSfN SfTRÚN UME Svalandi - ómissandi á hver'u heimili SNUG sssr J Ó MÖLLER & CO., Kirkjuhvoli, Sími 16845. -----------------/ sem festir tanngóminn, dregur úr eymslum, límist viS góminn, þarf ekki að skipta daglega. SNUG er sérstaklega mjúkur plast- ic-púði, sem sýgur góminn fastan, þannig að þér getið talað, borðað og hlegið án taugaóstyrks. SNUG er ætlað bæði efri- og neðrigóm. Þér getið auðveldlega sjálf sett púð- ann á, hann situr fastur og hreins- ast um leið og tennurnar. — SNUG er skaðlaus tannholdi og gómnum. Endist lengi og þarf ekki að skipta daglega. ÍA /H/^MT^FT^n SKARTGRIPIR UV/UM^WLi^ U=iU=i trúlofunarhrlngar m~' uun á lögregluna þegar f stað, var beint fyrir framan hann. Linton benti honum á þetta, en eigandinn hélt því fram að hann væri jafn rólyndur og meðlimir klúbbs hans, og honum hafði brugðið svo við að horfa á þetta, að hann hefði hvorki mátt hræra legg né lið, hefði í rauninni verið alveg stjarfur. Hann hafði tvo skurði eftir rakvél á hægri kinn. Grierson og Linton drukku meira af viskiinu hans og fóru svo að hitta Tessu Harling. Hún var vel snyrt og falleg í nælonslopp, sat í eldhúsinu sínu og horfði á Craig éta glóðarsteikt beikon og eggjahræru, sem hún hafði borið fram handa honum. Allt í einu datt henni [ hug, henni til mikillar undrunar, að hún elsk- aði þennan mann. Kvöldið áður hafði hún horft á hann slást við einn af heimsins mestu drullusokk- um og særa hann þar sem hann, öðrum fremur, átti skilið að vera særður. Tessa vissi, að hann hafði gert það fyrir sjálfan sig, að hann hafði ekki vitað, eða látið sig engu skipta að hún var þarna, en þrátt fyrir það elskaði hún hann. Hann var hættulegur og sjálfum sér nóg- ur og næstum örugglega glæpa- maður. Ekkert af þessu skipti máli. Bráðlega, ef til vill mjög bráðlega, myndi hann yfirgefa hana, vegna þess að hún var ekki nógu gáfuð né fögur til að halda í hann, vegna þess að hann lifði í leynum eins og þeir verða að gera sem ofsótt- ir eru. Þetta skipti allt miklu máli, en það gat ekki komið í veg fyrir, að hún elskaði hann. Ekkert gat gert það. Hún hafði séð hann slást. Horft á orkuna, sem leystist úr læðingi, hina slyngu, þjálfuðu eyði- leggingarorku. Hvar sem Craig fór, bar hann hættuna með sér eins og sprengju, en meðan hann leyfði henni myndi hún fara líka. Craig lauk við að borða og bauð henni sígarettu. — Þetta var góður matur, Tessa, sagði hann. — Bezti matur, sem ég hef fengið svo vik- um skiptir. Hún brosti þakklát, en augu hans voru ennþá köld og vökul. Hún vissi, að hann var að velta því fyrir sér, hvernig bezt væri að yfir- gefa hana og komast burt. — Mig langar að hjálpa þér. Ég vil, að þú verðir kyrr hérna, sagði hún. Jafnvel í gærkvöldi, hugsaði hún, meðan hann var drukkinn, á þenn- an varfærna hátt, jafnvel þá, þegar ég hélt að hann væri endurskoð- andi eða eitthvað þessháttar, gat ég ekki látið hann f friði, ég varð að elta ólar við hann, jafnvel þótt vesalings Mike Diamond sæti þarna og Mike hefur eytt miklu í mig og mér Kkar vel við hann. En ég lét sem ég vissi ekki af honum. Þessi maður fyllti heiminn fyrir mér. — Þeir munu hafa upp á mér, sagði Craig. — Þeir munu reyna að drepa mig. Hún efaðist ekki andartak um það sem hann sagði. Framhald f næsta blaði. VIKAN 50. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.