Vikan - 24.11.1966, Page 7
daginn eftir og hún var lengi að
ná sér. Nú langar mig til að
spyrja eins og sá sem ekki veit:
Er þetta rétt framkoma gagnvart
manni, sem að vísu hefur verið
tekinn fastur eina nótt — eða
er þetta skepnuskapur. Það finnst
mér að minnsta kosti.
Virðingarfyllst
H.J.H.
Sammála. Þeir laganna þjónar,
sem þannig haga sér, ættu fremur
a'ð gefa sig að öðrum störfum.
Það er þjösnaskapur að leyfa
ekki manni að hringja til kon-
unnar sinnar undir þessum kring-
umstæöum — þjösnaskapur sem
er lítt skiljanlegur, en verður
því miöur of oft vart við. Það er
varla þörf á því að meðhöndla
drukkna menn eins og skepnur.
FUGLAUNNANDI SKRIFAR.
Kæra Vika.
Ég er lesandi Vikunnar. Hún
er að verða nokkuð gott blað,
sérstaklega Pósturinn þótt hann
fjalli að mestu um ástina og
vandamál hennar frá táningum
til ömmunnar.
Og nú kem ég með það sem
ég ætla að biðja ykkur náðar-
samlegast að leysa úr fyrir mig
og það er hvernig á að losa kjöt
og bein innan úr hamnum og
hvaða efni á að setja í þá áður
en þeir eru stoppaðir, er það
kannski leyndarmál þeirra sem
vinna að þessu.
Mér hefur aldrei tekizt að fá
þessar upplýsingar. Ég er mikill
fuglaunnandi og mig iangar til
þess í frístundum að glíma við
að koma mér upp safni því alltaf
er maður að rekast á eitthvað
nýtt í dýraríkinu. Hvernig er
skriftin.
Fuglaunnandi.
Kennslubækur um fuglastopp-
un mun vera liægt að fá í bóka-
búðum, svo reynandi væri fyrir
þig að þreifa þar fyrir þér. Því
miður erum við á Póstinum fá-
fróðir um þetta efni, en þó er
okkur kunnugt um að fuglarnir
eru flegnir með hnífum og í ham-
ina borið efni sem nefnt er bórax,
og mun fást í öllum lyfjabúðum.
Skriftin er falleg og sérkennileg.
HVER ER MATTHÍAS?
Kæra Vika.
Margt virðist þið vita og úr
mörgu greiða hér í póstinum. Ég
hef ekki leitað til ykkar áður og
tilefnið er ekki stórvægilegt. Svo
er mál með vexti, að við hjónin
fengum málverk í brúðargjöf,
þegar við giftum okkur fyrir nær
tuttugu árum. Það er eftir ein-
hvern Matthías og núna nýlega
datt mér í hug, hvort það mundi
vera eftir Matthías Johannessen,
ritstjóra Morgunbaðsins. Maður-
inn minn heldur, að svo muni
ekki vera, en vinkona mín er
alveg viss um að það sé eftir
hann. Getur pósturinn frætt mig
eitthvað um þetta?
Svo þakka ég fyrir framhalds-
sögurnar, sem eru einhverjar þær
beztu, sem ég les og fylgist ég þó
með mörgum.
Húsmóðir á Akranesi.
Við sýknum Morgunblaðsrit-
stjórann af þessu verki. Hann
yrkir ljóð, atómljóð meira að
segja, en pensil hefur hann ekki
tekið upp nema þá að hann hafi
einhverntíma málað hjá sér stof-
una. Málverkið mun vera eftir
Matthías Sigfússon, sem er einn
mestur afkastamaður sem um
getur á þessu sviði og er víst
næstum búinn að „myndvæða“
landið, svo notað sé þekkt tízku-
liugtak úr stjórnmálaumræðum.
LABB-RABB.
Kæra Vika.
Það er að sjá á svörum hjá
þér að þú vitir flest sem þú ert
spurð að, svo mér dettur í hug
að leggja nokkrar spurningar
fyrir þig.
Eru seldar hér á landi litlar
talstöðvar svokölluð, Labb-Rabb
tæki? Ef svo er, hvað draga þær
langt?
Hvar fást þær?
Þarf að borga af þeim?(ef svo
er hvað mikið) Og hvað munu
þær kosta?
P.S. Vonast eftir góðu og skýru
svari, enga útúrsnúninga.
Við höfum frétt um að minnsta
kosti eina raftækjaverzlun, sem
útvegar labb-rabbtæki, verzlun
Júlíusar Björnssonar, Austur-
stræti 12, Reykjavík. En um leyfi
til til að eiga slík tæki verður
að sækja til Landssímans. Hversu
langt stöðvarnar draga mun vera
mjög mismunandi eftir aðstæð-
um, en hámarkið mun þó varla
fara yfir fimm kílómetra. Allar
nánari upplýsingar varðandi
þetta efni mun vera hægt að
fá hjá verzlun Júlíusar og öðrum
þeim fyrirtækjum, sem kunna að
geta útvegað tækin.
“ianí-ett
VIFTAN YFIR ELDAVÉLINA
Hreint og hressandi! Það er gaman að matreiða í nýtízku eldhúsi, þar sem loftið
er hreint og ferskt. i>að skapar létta lund, vinnugleði og vellíðan, hvetur hug-
myndaflugið — og matarlykt og gufa setjast ekki í nýlagt hárið né óhreinka föt
og gluggatjöld; málning og heimilistæki gulna ekki og hreingerningum fækkar.
Raunveruleg loftræsting! Með Bahco Bankett fáið þér raunverulega loftræstingu,
því auk þess að soga að sér og hlása út gufu og matarlykt, sér hún um eðlilega
og heilnæma endurnýjun andrúmsloftsins í cldhúsinu og næstu herbergjum. Sog-
getan er ein af ástæðunum fyrir vinsældum Bahco Bankett.
Hljóð! Þrátt fyrir soggetuna heyrist varla í viftunni. Bahco Bankett er sennilega
hljóðasta viftan á markaðnum.
Engin endurnýjun á síum! kthugið sérstaklega, að Bahco Bankett þarfnast engrar
endurnýjunar á lykt- og gufueyðandi síum, sem dofna með tímanum. Bahco Bank-
ett hefur engar slíkar, en heldur alltaf fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Fitusíur úr riðfríu stáli! Bahco Bankett hefur hins vegar 2 stórar, varanlegar fitu-
síur úr ryðfríu stáli, sem ekki einungis varna hví, að fita setjist innan í útblásturs-
stokkinn, heldur halda viftunni sjálfri hreinni að innan, því að loftið fer fyrst
gegnum síurnar. Fitusíurnar eru losaðar með einu handtaki og einfaldlega skolaðar
úr heitu vatni stöku sinnum.
Rétt vinnuhæð, innbyggt Ijós og rofar! Lögun Bahco Bankett skapar óþvingað
svigrúm og sýn yfir eldavélina. Innbyggt ljós veitir þægilega lýsingu og rofarnir
fyrir ljós og viftu eru vel og fallega staðsettir,
Falleg, stílhrein og vönduð — fer alls staðar vel! Bahco Bankett er teiknuð af
hinum fræga Sigvard Bernadotte, eins og mörg fallegustu heimilistækin í dag, og
er sænsk úrvalsframleiðsla frá einum stærstu, reyndustu og nýtízkulegustu loft-
ræstitækjaverksmiðjum álfunnar.
BAHCO ER BETRI. Það er einróma álit ncytendasamtaka og rcynslustofnana ná-
grannaríkjanna, að útblástursviftur cinar veiti raunveruiega loftræstingu. Hagsýnir
húsbyggjendur gera þvi ráð fyrir útblástursgati cða scrstökum loftháfi. Þeir, sem
endurnýja eldri eldhús, brjóta einfaldlcga gat á útvegg eða ónotaðan reykháf. Sú
fyrirhöfn margborgar sig.
NÝJUNG: Bahco raSstokkar. Við liöfum nú á boðstólum Iétta og sterka, hvíta
plaststokka með beygjum og öðru tilhcyrandi, scm hver og cinn getur raðað saman,
án minnsta crfiðis eða sérstakra verkfæra.
Veljið því rétt, vcljið viftu, sem veitir
raunverulega loftræstingu og heldur allt-
af fullum afköstum — kostnaðarlaust.
VeljiS BAHCO BANKETT.
Komið, skrifið eða útfyllið úrklipp-
una og fóið alla rupplýsingar um
Bahco Bankett, stokka, uppsetningu,
verð og greiðsluskilmóla.
FÖNIX
SÍMI 24420. SUÐURGÖTU 10. RVfK.
Sendið undirrit. Bahco Bankett myndlista með öllum upplýsingum:-
Nafn: ..............................................................
Heimilisfcng: ......................................................
Til Fönix s.f., pósthólf 1421, Reyk]avík.
47. tbi. VIKAN 7