Vikan - 24.11.1966, Qupperneq 9
Toyota Crown 2000
færanleg fram og aftur og í svo
ríkum mæli að jafnvel allra stærstu
menn ættu að geta rétt úr skönk-
unum. Einnig er hægt að stilla
hallann á bökunum á einfaldan
hátt og leggja þau alveg niður.
Aftursætið var venjulegur sófi með
skiptingu í miðjunni, prýðilegt
sæti og fótarými í betra lagi. Hand-
föng rúðuupphalarar og annar frá-
gangur innan á hurðum var með
ágætum. Mælaborðið er miklu
síðra í útliti en í ódýrari útgáfunni,
Toyota Corona, sem minnir óneit-
anlega mikið á þann bíl, sem Jap-
anir virðast einkum hafa haft f
huga, þegar þessum var hleypt af
stokkunurh: Cevrolet Chevy II.
Mælaborðið í þeim bíl hefur alla tíð
verið fátæklegt og fremur Ijótt og
Japanir hefðu gjarnan mátt stæla
einhvern annan. En það hefur samt
þann ótvíræða kost, að þar eru ekki
aðeins Ijós heldur mælar fyrir
smurning og hleðslu fyrir utan
bensín, hraðamæli og teljara.
Hólfið fyrir útvarpið er eins og
illa gerður hlutur, hanzkahólfið lít-
ið, en sæmileg hilla fyrir smádót
undir mælaborðinu. Þessi bíll var
búinn gólfskiptingu með einkar
fallegri gírstöng og skiptingin ann-
ars sæmileg, ég hef að vísu oft
tekið í margfalt skemmtilegri gólf-
skiptingu en hún er samt engan-
veginn slæm. Svellþykkt teppi er á
gólfinu og drifskaftshryggurinn aft-
ur eftir bílnum er óvenju lágur.
Það er athyglisvert að margt
það sem hægt er að fá með auka-
kostnaði í bfla, svo sem rúðu-
sprauta, teljari, Ijós f afturhurðum,
skyggðar rúður, armur í baksæti
o.fl., er allt standard í Toyota og
fylgir hverju einasta eintaki af
bílnum.
Bíllinn er búinn borðabremsum
á öllum hjólum en ástigið á
bremsupedalann er mjög gott og
bremsurnar vinna framúrskarandi
vel og þægilega. Vélin er sex
strokka og liggur f sjö höfuðleg-
um, 110 hestöfl og hámarkshrað-
inn er 155 kílómetrar. Viðbragðið
frá kyrrstöðu og upp í 80 kílómetra
hraða er 12,2 sek. Það er í slak-
asta lagi af sex strokka vél að vera,
en þess ber einnig að geta, að fá-
ar eða engar sex strokka vélar
munu eyða eins litlu og þessi gerir.
Ef marka má það sem menn segja,
eyðir vélin um 10 Iftrum í innan-
bæjarakstri og það er ótrúlega
gott. Hinsvegar virðist bensfneyðsl-
an ævinlega standa að verulegu
leyti f sambandi við viðbragðsork-
una og samkvæmt þessu getur
Framhald á bls. 53.
47. tblj VIIvAN 9