Vikan - 24.11.1966, Side 24
Craig, horfðu á mig, gerðu
það, sagði hún. -
Ég þarf að fá heroin. Eg
verð að fá skammt. Hún
rétti fram fallega
lagaða hönd með fíngerð-
um beinum, og meðan
hann horfði tók höndin að
titra og varð að Ijótri,
örvæntingafullri kló.
Eftlr James Munro
lO. hiuti
— Það eru fleiri sem við þurfum
að hafa auga með. sagði Grierson.
— Hljómsveitin lék tyrkneskan marz
eftir Mósart af miklum móði, og
Grierson kipptist við, þegar Naxos
kom inn og leiddi Flip við hönd sér.
— Henni, sagði Grierson. — Hinni
goðumlíku Zeno-krötu. Þarna. Henni
virðist ekki geðjast að þér, Craig.
Craig hugsaði um sýruna. — Ég
skal fylgjast með henni, sagði hann.
— Þú skal fylgjast með honum.
Hann kinkaði kolli þangað sem
Byron lóvarður Swyven bróst hlut-
verki sínu og hneigði sig fyrir gest-
gjöfunum.
— Þú ætlar að hafa alla skemmt-
unina, sagði Grierseon.
Craig gekk fram, óvarpaði Naxos
og Flip og spurði um Piu.
— O, hún kemur, sagði Flip. Þú
veizt ,að hún verður klædd sem
tvíburasystir mín — vesalingurinnl
Þegar hún sá mig, langaði hana að
fara í eitthvað annað, — en ég
sagði nei. Það er alltaf fleiri en
ein í kvennabúri, er það ekki, elsk-
an?
— Allt sem þú segir, ástin, sagði
Naxos. — Hvernig líst þér á sam-
kvæmið, John?
— Stórkostlegt, sagði Craig. —
24 VIKAN 47-tbl-
Þú gleymdir að gefa mér prógramm-
ið fyrir leikina uppi.
— Leikina, sagði Flip. Við verð-
um að fara þangað núna.
— Nei, sagði Craig. — Þið farið
upp með mér — bæði saman.
— Við getum ekki farið strax,
hvort sem er, sagði Naxos. — Við
verðum að koma hópnum af stað.
Hann hnykkti höfðinu í áttina að
sívaxandi gestahópnum. — Við skul-
um gera eins og þú segir, John.
Hittu okkur hér. Klukkan tvö.
Craig kinkaði kolli og gekk upp
á svalirnar yfir salnum. Það voru
þegar um fimmtíu manns niðri á
gólfinu, og öllum varð starsýnt á
hálfnakinn líkama Flip. Meðal
þeirra sá hann hirðmann í rauðum
flauelsfötum á tali við sjóliðsfor-
ingja ( sjóher hans hágöfgi Georgs
III af Bretlandi. Hann gekk áfram
upp á aðra hæð, í gegnum herbergi
full af leikurum og dönsurum, daðr-
andi í hálfkæringi, dansandi nokk-
ur skref, gefandi hverjum óðrum (
nefið, meðan Pucci tísti og flökti
um í miðjum hópnum. Tveir skylm-
ingamenn voru að undirbúa skylm-
inguna eins og ballett og töluðu
um knattspyrnu. Aðeins harpsikord-
leikarinn virtist niðursokkinn. Hann
var að leika fúgu eftir Bach. — Nei,
nei, æpti Pucci. — Það á að vera
Scarlatti. Harpsikordleikarinn lét
sem hann heyrði ekki í honum og
tónlistin streymdi af fingrum hans.
Craig gekk aftur niður á svalirn-
ar, vék sér undan árekstri við- Kól-
umbínu, tvær sígaunakonur og
þrjár Desmónur, ein þeirra í
náttkjól. Nú voru að minnsta kosti
þrjú hundruð manns niðri, en hann
sá Naxos þegar í stað. Að þessu
sinni var hann með tvær yndismeyj-
ar hjá sér, báðar eins klæddar. Pia
var þá komin. Hann leit að barn-
um og stirðnaði upp.
Þar bar mest á gríðarstórum
höfðingja, svartklæddum. Svört
skikkja, svartar buxur, svört stíg-
vél, svartir hanzkar. Svört hetta
huldi höfuðið og andlitið var hulið
frá hársrótum niður á háls, bak við
svarta grímu, en ekkert gat falið
stærðina. Með honum voru þrfr
stríðsmenn, glæsilegir glæpamenn,
klæddir í purpurarautt og svart
með bjúgsverð og rýtinga við belti
sér. Þeir drukku kampavín, en hend-
ur svarta höfðingjans voru kyrrar
og tómar. Hann horfði á Naxos.
Grierson kom upp í stigann, nam
staðar hjá Craig og kveikti f síga-
rettu.
— Ég sé að við höfum fengið fé-
lagsskap, sagði hann.
Craig kinkaði kolli og rétti úr
sér. — Farðu og fylgstu með Pucci,
sagði hann. — Ég á þennan.
Tólfti kafli.
Grierson fór og hópur af dans-
andi fólki bylgjaðist af stað, huldi
Naxos og stúlkur hans. Þegar hóp-
urinn færðist til hliðar, stóð önn-
ur yndismærin alein, hin dansaði
við Naxos. Craig gekk niður stig-
ann og skauzt eins og ör í gegnum
mannfjöldann. Konan stóð graf-
kyrr og dansfólkið forðaðist að
koma nærri henni eins og Naxos
hefði reist ósýnilegan múr um-
hverfis hana. Hún stóð þannig að
mjúkar línurnar, brjóst, kviður og
læri, komu glöggt í Ijós; frá mjúk-
um sorta hársins niður á skarlats-
rauðlakkaða tána, var hún hinn
mikli kyndraumur Hollywood holdi
klæddur, unnusta Ali Baba, með
töfrateppið f hægagangi og bfð-
andi. Og þó, hugsaði Craig, var
henni þetta allt ómeðvitað. Hún
stóð þannig af þvf að henni hafði
verið kennt að standa þannig. Ef
hún settist, myndi hún krossleggja
fæturna nákvæmlega svo þeir nytu
sín bezt, anda að sér til að lyfta