Vikan


Vikan - 24.11.1966, Side 28

Vikan - 24.11.1966, Side 28
I STÆRSTI leikfangamarkaOur landsins! Leikföng og viðleguútbúnaður á tveim hæðum. Leikföng telpna á fyrstu hæð (130 m2 gólfflötur). Leikföng drengja og viðleguútbúnaður á annarri hæði (400 m2). Jólagiafir fyrir alla fjölskylduna. Leikföng frá helztu leikfangainnflytjendum landsins. sími 17270 TÓMSTUNDABÚÐIN sími 21901 NÓATÚNI — Hvernig hefur viðrað þarna í sumar? — Það var frekar leiðinlegt veður framan af, en heldur skárra seinni partinn. — Það er lítið skýlt þarna? — Já, það má segja það. Annars komst Páll Bergþórsson að því að Vestmannaeyjar væru veðursælasti staður á landinu. — En það er ekkert, sem dreg- ur úr þarna? — Nei, þetta er alveg opið fyrir hafinu, og það er yfirleitt meiri alda þarna við Surtsey, en við Heimaey og norðlægari eyjarnar, sem eru nær landi. Það er oft skjól af jöklinum í Vestmannaeyjum, t.d. í norðaustan átt, er oft logn í Eyj- um. Nú stendur til að koma upp í Surtsey sjálfri veðurathugunartækj- um, sem eiga þá líklega að vera sjálfvirk og var ætlunin að þau yrðu komin fyrir veturinn, mjög góð- um tækjum, sem taka yfir flest svið veðurfræðinnar. — Verður enginn þar í vetur? — Nei, nei. Það verður gengið frá húsinu og því öllu, nána fyrir mánaðamótin. Svo verður reynt að fara út, svona einu sinni í mánuði. — Til þess að lesa á mæla og þessháttar? — Já. Ef einhverjar stórvægilegar breytingar yrðu, eins og á gosi og þessháttar, þá sézt það fyrr en seinna frá Heimaey sjálfri. — Já, já. — Og svo eru alltaf flugvélar þarna yfir og það er fylgzt með því líka þannig. — Hvernig er nú að vera fyrsti og eini íbúinn á svona eyju? — Það er ekkert neitt sérstakt. — Engin Róbison Crúsó tilfinn- ing? — Nei, alls ekki. Maður hefur ekki komizt í þá aðstöðu. Það hefði nú getað orðið skemmtilegt, ef mað- ur hefði ekki vitað að maður myndi finnast. Það er auðvitað sérkenni- legt að vera einn í eyju, það er að sínu leyti eins og að vera einn á báti úti á rúmsjó. Það er ekkert óþægileg tilfinning. — Nei þetta er svo ung eyja að það eru ekki komnir neinir reim- leikar. — Nei, nei, það eru alls ekki reimleikar, en það eru vættir þarna. Það eru í öllum Vestmannaeyjum, einhverjar vættir. — Gera þær vart við sig? — Þær sjá um að allt sé í lagi. — Og friði og spekt. — Já, já. Til dæmis í einni eynni eru alltaf færðar fórnir, í Súlnaskeri. Það er skerprestur, sem býr í vörðu, og þar færa allir fórnir, sem koma í skerið. — Og hvernig eru þær fórnir? — Það er eitthvað glingur, eða einhverjir smápeningar, það þarf ekki að vera mikið. — Hent í vörðuna? — Já. Sagan er sú, að Súlnasker er ein þeirra eyja, sem erfiðast er að klífa. Sagt er, að þegar fyrstu tveir mennirnir voru komnir upp, sagði annar, að þeir hefðu komizt upp með guðs hjálp, en hinn sagði, að þeir hefðu komizt þetta, hvort sem guð vildi eða vildi ekki. Þá hristi skerið sig og kastaði þeim er síðar mælti í sjóinn. Síðan hall- ar það til suðurs. Þá var reist varða þarna í skerinu og síðan færa menn alltaf fórnir. — Þá er líklega orðinn álitlegur fórnarhaugurinn? — Nei, hann hverfur alltaf. Það er sagt, að skerpresturinn taki sjóð- inn, svo eru líka smáfuglarnir gjarn- ir á að hirða svona í hreiður sín og líka hrafninn. • — Verðurðu i Surtsey næsta sum- ar? — Ég veit ekkert um það, hvað ég geri. Hvað verður næsta sumar, það er ómögulegt að segja. Það er ekkert ákveðið i sambandi við' Surtsey, það á eftir að skipuleggja allt þar og allar rannsóknir, ef þeim verður haldið áfram. En það hefur verið gaman að kynnast mönnunum, sem hafa unnið þarna og komast aðeins inn í það, sem þeir hafa verið að fjatla við. Það hefur verið ákaflega gott að vinna með þeim. — Það hefur verið ansi gest- kvæmt, er það ekki? — Jú, jú, það má segja það, bæði af visindamönnum og áhuga- mönnum, sem hafa komið þarna við, það hefur verið þarna hörku- lið oft og tíðum. 'Ar Dey ríkur, dey glaður Framhald af bls. 25 Hún leit á hann, reyndi að tala, en gat það ekki. Svo tók hún að skjálfa. — Farðu út, sagði hún að lokum. — Komdu þér út. Hann fór undir eins. Naxos sat þar sem hann hafði skilið hann eft- ir, horfði niður í salinn, án þess að sjá. Yfir honum var stór, gullin hvelfing, en nú var hluti af henni dimmur, næturdimmur, stjörnum settur. Craig bölvaði og hljóp upp stigann, sem lá upp á þakið. Þakgarðurinn var dimmur og auð- ur. Bar, borð, dansgólf, allt autt og yfirgefið, og neðsti hluti hvelfingar- innar glampaði hvítur af birtunni að neðan. Craig gekk varlega í áttina þangað, laut áfram til að finna spor- ið, sem hún hafði verið dregin burt eftir, stirðnaði síðan upp, skynjaði hreyfingu hægra megin við sig. Hann leit til hliðar og hin yndis- mærin stóð þar, hjúpuð skýi eins og draumur í myrkrinu. — Pia, sagði Craig. — Hvern andskotann? Augu yndismærinnar minnkuðu þá, munnur hennar opnaðist í ópi og Craig sneri sér við, allt of seint, þegar nóttin féll yfir hann og hann stakkst ofan í myrkrið, þar sem engar stjörnur eru. 28 VIKAN 47-tbL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.