Vikan


Vikan - 22.03.1967, Page 39

Vikan - 22.03.1967, Page 39
FRIÐAUTURNINN, OTTAWA, KANADA. Á kortinu spannar land okkar yfir efri helming Norður-Ameríku — nærri Þfjórar milljónir fermílna — land, sem náttúran hefur sýnt einstakt örlæti. A KT TVT T/"Sem þjóð áætlum við að halda aldar afmæli okkar hátíð- legt með því að bjóða heiminum þátttöku í 100 ára af rr ER mælisfagnaðinum. í upphafi komu forfeður okkar hingað í leit að \jC A TVT A T"\ A auði og nýjum lífsviðhorfum. Fyrst Frakkar, síðan Bretar. Jrl 1 \ JL/ X*. Hvorir fyrir sig tóku þeir að kanna og kortleggja þetta víðáttumikla og óþekkta land. Síðan sameinuðu þeir orku sína við samningaborðið. Það var fyrir 100 árum — 1. júlí 1867. Nú ráðum við landinu saman undir merki hlynlaufsins, tákni hins mikla skógar, sem við höfum í samein- ingu lagt að velli. Ollum, sem koma, er jafn vel fagnað, — og milljónir hafa komið, frá flestum hlutum heims, af margvíslegum kynþáttum. Þeir hafa fært okkur hendur og heila, snilligáfu og hug- myndir. Þeir hafa hjálpað okkur að uppfylla landflæmið — auðugt af hvers konar tegundum loftslags og næstum öllum hugsanlegum auðlindum. Samgöngur eru nú með járnbrautum, ak- vegum, loftleiðum og skipaskurðum . . . og fjarskipti fara fram gegnum útvarp, sjónvarp og slma. Við erum líka innbyrðis tengd af þeirri vitneskju, — sem menn og konur af mörgum kynþáttum hafa kennt okkur — að samræmi þarf ekki að vera sama og einhæfing. Nú leljum við tuttugu milljónir, Kanadamenn, helmingurinn innan við tuttugu og fimm ára. Við erum vinir og næstu nágrannar Bandaríkja Norður- Ameríku. Rætur okkar standa yfir höf heim til gömlu föðurlandanna en Kanada á okkar órofa tryggð. Við erum hluti af brezka samveldinu, :igum einnig sæti meðal Sameinuðu þjóðanna og tökum þátt í ábyrgð þeirra og björt- um vonum. Auðugt land — fjögur þúsund mílur á breidd — og við trúum á blessun þess að deila því, sem okkur er gefið, með meðbræðum okkar — mann- kyninu. Við erum þakklát fortíðinni, stælt af framförum nútíðarinnar, örvuð af ikorun komandi ára. Kanada varð þriðja þjóðin, sem kom gervitungli á loft. Sannar- lega höfum við mörgu að fagna árið 1967. Afmælisárið verður mikilfeng- leg hátíð. Hvergi munu Ijósin skína svo bjart né svo margt fólk safnast söman sem í Montreal, þar sem skógur bygginga og glæsilegra mannvirkja rís í nýskapaðri borg upp af eyjum og lónum. Þar vonumst við til að geta, með hjálp 70 þjóða, gert HEIMSSÝNINvSUNA 1967 — EXPO 67 — að stærstu og stórfenglegustu heimssýningu, sem haldin hefur verið, að sannri spegilmynd þess, sem maðurinn hefur áorkað. Um gervalt landið erum við að undirbúa viðburði, ævintýri, staði — allt, sem glatt getur augu og eyru. Það verður margt að gerast í Kanada . . . fyrir okkur, fyrir ykkur. Við vonum, að þið komið og takið þátt í því með okkur. Aldarafmælisnefndin, Ottawa, Kanada. 1*1 J

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.