Vikan


Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 5

Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 5
Á þessari mynd er eit- urlyfjasalinn Olysses Tanncr, en hann var hinn síðasti, sem I-.ind- sey klófesti, áður en liann var sjálfur afhjúp- aður sem eiturlyfjaneyt- andi. Smátt og smátt óx notkun Lindseys á eiturlyfjum. í fyrstu lét hann sér nægja að sprauta lyfinu undir húðina, en þegar hann var tekinn, var hann farinn að sprauta því beint inn í blóðrásina. í hvert skipti laldi ég sjálfum mér trú um, að nú skyldi ég hætta. Þetta væri í síðasta skiptið sem ég tæki eiturlyf. En þetta var herfileg sjálfsblekking. Ég þurfti stöðugt stærri og stærri skammta. Lindsey sagði, að hann hefði aldrei útvegað sér eiturlyf nema af birgðum lögreglunnar. Hann kvaðst aldrei hafa haft neitt samband við þaff fólk, sem hann var að eltast við og reyna að koma undir lás og slá. Hann hafði heldur aldrei selt neitt af því sem hann stal frá lögreglunni. Þegar ég hafði stolið eiturlyfjum frá lögreglunni í fyrsta sinn, og tekið þau í dálítinn tíma, gerði ég mér ljósa grein fyrir, hvað ég hafði gert og í hvílíkri hættu ég var staddur. Ég leilaði hjálpar hjá lækni, því að ég vissi, að fyrr eða síðar hlyti að komast upp um mig og ég mátti ekki hugsa til þess hversu mikla skömm ég gerði starfsbræðrum mínum og lögreglunni í heild með framferði mínu. í fleiri daga gekk ég í gegnum sannkall- að víti, en mér tókst ekki að sigrast á veikleika mínum — jefnvel ekki undir handleiðslu læknis. Foreldra mína grunaði hvers kyns væri, en auk þeirra og læknisins vissi enginn hvernig komið var fyrir mér. Þegar ég var tekinn að léttast og farið var að sjá á útliti mínu, varð ég að grípa til lyginnar, þegar félagar mínir spurðu, hvað að mér gengi. Þegar heilsa mín var í hvað verstu ástandi, boðaði ég veikindaforföll. Ég var niðurbrotinn 43 tbl- VIKAN 5 maður og kvalinn af ótta og samvizkubiti. Lindsey var að sjálfsögðu leiddur fyrir rétt. Hann var sakaður um innbrot og fyrir að hafa eiturlyf með höndum. Hann játaði sekt sína og reyndi ekki hið minnsta að verja sig. — Hann hlaut fimm ára fangelsisvist, en var jafnframt skipað að ieggjast inn á sjúkrahús til þess að venja sig af eiturlyfjanautninni. Tveimur dög- um eftir að dómurinn var kveðinn upp lagðist hann á sjúkrahúsið í Lexington, sem hefur sér- hæft sig í meðferð eiturlyfjasjúklinga. Þegar hann kvaddi félaga sína á lögreglustöðinni, sagði hann eftirfarandi, sem er hvort tveggja í senn: neyðaróp og aðvörun: — Ef til vill getur hrösun mín orðið til góðs. Ef til vill getur ógæfa mín hjálpað lögreglu- mönnum og öðrum til þess að vara sig á þeirri hræðilegu gildru, sem eiturlyfin eru. Ég hef orðið mér til skammar og brugðizt trausti þeirra manna, sem höfðu álit á mér og vildu mér vel. Ég hélt, að ég hefði reynslu og þekkingu á þessu fyrirbrigði fram yfir aðra og þess vegna væri mér óhætt. Það hvarflaði ekki að mér nokkurn tíma, að ég gæti orðið eiturlyfjaneytandi á sama hátt og þeir menn, sem ég hafði með að gera. Mér skjátlaðist. — Þetta hefur verið mér stang- ur skóli. Ég vona, að aðrir læri af mistökum mínum og láti víti mitt sér til varnaðar verða. * , ■ Hér cr vinnustofan. J)ar sem Lind- sey brauzt inn til þess aS stela eiturlyfjum, sem lögreglan hafði tekið í sína vörzlu. Lögreglufulltrúinn Jam- es Lindsey (til hægri) ásamt einum starfsbróð- ur sínum. Þeir eru með peningaseðla, sem fund- ust í fórum eiturlyfja- hrings, scm þeim félög- um tókst að koma upp um. Þcgar þetta gerðist var Lindsey sjálfur orð- inn citurlyfjancytandi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.