Vikan


Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 48

Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 48
OSRAM LJÓS úr hverjum glugga lega ærleg, herra Weslbury, verð ég :<ð viðurkenna að ég gel ekki varizt gruns um að þér hafið ef til vill ekki gefið yður tækifæri til að kynnast Jamie. Hvernig getið þér vænst þess að hann opni sig, þegar hann hefur á tillfinningunni, að þér látið yður engu varða hvað hann gerir? Hann er tilfinningaríkt bam, og ég held að hann sé einmana. Haf- ið þér til dæmis nokkurn tíma hvatt hann til að bjóða jafnöldr- um sínum heim. Hann þarfnast félagsskaps jafnaldra sinna, ekki bara tilfallandi duttlungum af hendi frú Garstone. Ég efast ekki um að hún er dugleg, en veitir hún Jamie þá umhugsun og um- hyggju sem hann þarfnast? Þar að auki hef ég á tilfinningunni að hún sé ekki sérlega vönd að því sem hún segir, svo hann hevrir. Hún þagnaði og gerði sér Ijóst að umhyggja hennar fyrir Jamie hafði leitt hana til að vera ókurteis. Hún sá að það stríkkaði á kjálkavöðvum manns- ins. — Fyrirgefið, ég hefði ekki átt að segja þetta, sagði hún stirðlega. — Mig langar til þess að vita hvaðan þér hafið fróðleik yðar. Martin leit snöggt upp og sá hvað lá bak við andlitssvip henn- ar. •— Frá strákanganum sjálfum, auðvitað. Hann strauk sér um hnakkann og brosti afurlítið skakkt. — Þér hafið rétt fyrir yður í því, ungfrú Bair, að Jamie er tilfinningaríkt barn, hann er líka vel gefinp og hefur auðugt ímyndunarafl. Sú er oft raunin með einkabörn, að ég hef heyrt, en það er einkar áberandi með hann. Þér hafið rétt fyrir yður, þegar þér segið að frú Garston sé slæm með að fara með kjafta- sögur, en það sem Jamie vantar í raunveruleikanum, bætir hann sér strax upp í hinum ímyndaða heimi. Þvert á móti því, sem þér kannski álítið hegni ég honum ekki líkt því eins mikið og hann á '■kilið. Ég hef heldur aldrei svipt hann neinu sem er til gagns eða gleði fyrir hann. Adrienne leit aftur á höfuð Brackens. Hann las strax hugs- anir hennar. — Jamie er alveg ær í að fá hund. Það er hann sjálf- sagt búin að segja yður, en hann er ekki orðinn nógu gamall til að valda þeirri ábyrgð. — Ég veit vel að ég á ekki að skipta mér af því, en ég er ekki sammála yður. Jamie er vel skynugur og hundur væri prýði- legur félagsskapur fyrir hann. — Ég hef mínar eigin ástæður til þess að hann fær ekki hund. Svarið var vísvitandi stutt- aralegt og fráhrindandi. en Adrienne sat á sér. — Þér þurf- ið ekki að hafa áhyggjur út af því, herra Westbury, ég hef ekki í hyggju að hvetja Jamie til að hafa óskir yðar að engu. — Gott. Ég .... Ég vil ekki að við þurfum að vera óvinir. Það fór honum eðlilega að vera — Fn elsku Magda mín, þú hefðir ekki ótt að bíða eftir mér alla nóttina! — En góða Emma, þú veizt að reynslutíminn hennar er ekki út- runninn fyrr en á morgun .... — Kæra frú, leyfið þér að maður- inn yðar opni munninn? 48 VIKAN 43-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.