Vikan


Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 34

Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 34
f fullri alvöru Framhald af ls. 2. hlut iðnaðarmanna í honum, svo sýnilega verður eitthvað gert á næstunni til að koma þeim mál- um í skynsamlegra horf. Þar yrði eitt fyrsta skrefið strangt gæða- mat á vinnu iðnaðarmanna. Iðnaðarmönnum ætti sjálfum að vera margháttaður akkur í gæðamati, og þó meiri, ef það kæmi frá þeim sjálfum. Víst eru þeir iðnaðarmenn ófáir, sem bet- ur fer, sem vinna vel, dyggilega og snyrtilega. En hroðvirkni sóð- inn, sem sullar verkinu einhvern veginn af og skapar vinnuveit- anda sínum erfiði og kostnað vegna sóðaskapar síns og vondra vinnubragða, hann ber jafn mik- ið úr býtum og snyrtimennið. Er þetta réttlátt iðnaðarmenn góð- ir? Takið húsgagnasmiði til fyrir- myndar: — Ábyrgðarmerking þeirra er virðingarvert spor í rétta átt. S. H. Hljómar Framhald af bls. 16. bert syngur tvö fyrrnefndu lög- in en Rúnar hið síðastnefnda. Annars skipta Hljómar söngnum bróðurlega á milli sín, og í beztu formi eru þeir í fjórradda söngn- um. Það er næsta fátítt að heyra hérlendar hljómsveitir á þessari bylgjulengd syngja fjórraddað. Lag Þóris Baldurssonar nefnist „Miðsumarnótt", og hefur Þor- steinn Eggertsson gert mjög fall- egan texta við það. Rúnar syng- ur þetta lag, en hér koma flauta og orgel við sögu. Lag Rúnars Gunnarssonar nefnist „Pening- ar‘‘. Af erlendu lögunum ber fyrst að nefna lagið “Um hvað hugsar einmana snót?“, sem er sennilega bezta lag plötunnar. Bandaríska hljómsveitin Loving Spoonfool gerði þetta lag vinsælt á sínum tíma undir heitinu „Rain on the roof“, en það hefur lítið eða ekkert heyrzt hér fyrr. Gunn- ar Þórðarson syngur þetta lag, og gerir það með miklum ágæt- um. Gunnar leikur einnig á auto- hörpu í þessu lagi, sem er mjög skemmtilega útsett og þar á of- an bættist bráðskemmtilegur texti Ómars Ragnarssonar. Þá er lagið „Sveitapiltsins draumur", en þetta lag kannast víst flestir við undir heitinu „California Dreaming". Hljómar hafa lengi haft þetta lag á efnisskrá sinni enda einmitt á þeirra línu, þar sem söngurinn fær mjög vel að njóta sín. Engilbert syngur lögin „Hringdu" (Call me) og „Æsandi fögur“ (Little by little) og allir syngja í laginu „Þú ein“, en þetta lag sungu The Everly Brothers upprunalega. Þá er að- eins eftir að geta laganna „Einn á ferð“ og „Gefðu mér síðasta dans“. Bæði lögin eru velþekkt, hið fyrra eftir bítlana (Nowhere man), en hið síðara (Save the last dance for me) hafa margar hljómsveitir leikið á plötu. Þess má að lokum geta, að upptaka þessarar plötu hefur tek- izt með miklum ágætum, en plat- an er tekin upp í stereo, eins og fyrr segir. Kápumynd á plötu- umslagi er fremur óvenjuleg, og ber vott um ágæta dráttlistar- hæfileika Hilmars Helgasonar. ☆ Dalurinn hennar Framhald af ls. 13. við liðþjólfann- — Þú verður að kenna Harris þetta. — Ég heiti Farris, sagði ég, en hann var farinn á eftir lækninum. Liðþjálfinn hissaði rifilinn hærra upp á öxl sér, svo hann væri ekki ( vegi, greip duftpumpuna, og gekk inn í dimmt húsið. — DDT, sagði hann, hárri rödd. Hann hélt pumpunni hátt á lofti, svo allir gætu séð hana, og svo þrýsti hann á handfangið. Hvítt duftið úðaðist um herbergið og fyllti loftið. — DDT, endurtók hann. — Fyrir skordýrin, — drepur skor- dýrin. Það var ekkert merki þess að nokkur hefði skilið það sem hann sagði, en öll hljóð þögnuðu og allra augu störðu á hann, þegar hann gekk um allt herbergið, úð- aði inn í rifur, milli gólfs og veggja, út í öll horn og á fatahrúgur á gólfinu. Ég horfði á hann og tók svo til hinum megin ( herberginu, og eftir nokkrar mínútur höfðum við lokið þessu verki. — Nú eigum við það versta eftir, sagði liðþjálfinn, og honum þótti sýnilega fyrir því að þurfa að yrða á mig. — Þú verður alltaf að byrja á karlmönnunum. Konurnar á eftir, svo þær haldi ekki að þú ætlir að misþyrma þeim. — Misþyrma þeim? — Ertu frá þér? — Það kemur fyrir, sagði liðþjálf- inn, án frekari skýringar. — Það er bezt að byrja á þeim yngri, það er sennilegra að þeir viti hvað um er að vera. En það eru varla nokkr- ir ungir menn eftir! Miðaldra bóndi, með þunnt, sítt skegg, sat upp við vegg, og svit- inn bogaði af enni hans. Hann reyndi að skjóta sér undan, þegar liðþjálfinn þreif til hans, og reyndi að lyfta upp ermunum á treyju- garminum, til að koma duftinu upp eftir handlegg hans. — Sjáðu, sagði liðþjálfinn, — ég: meiði þig ekki. Með hröðum, æfð- um handtökum úðaði hann upp- undir ermarnar, niður með hálsmál- inu á óhreinni skyrtunni, niður meS 34 VIKAN 43. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.