Vikan


Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 41

Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 41
förum. Það hefði verið gaman, ei' Alyia hefði verið hér.... Þá hefðuð þér getað tekið góðar myndir. . . . Kannski seinna! Baunir Framhald af bls. 46 fylltur með negulnöglum, svolítið mir- iam, og timian, V2 kg. saltað flesk, 2 gulrætur, 1 súrt efli. Leggið baunirnar í bleyti í 3—12 tíma og sjóðið í sama vatni. Fleytið froðuna burt og bætið lauk og kryddi í, sömuleiðis kjötinu. Sjóðið undir loki þar til bæði baunir og kjöt er soðið. Nokkru áður er eplið skorið í teninga, sömuleiðis gulræturnar og því bætt í. Bera má kjötið með bauna- súpunni eða skera það í litla bita og bæta út í hana. Soðnar linsubaunir. Skolið baunirnar og setjið í sjóðandi saltað vatn þar til þær eru mjúkar eða ca. IV2—2 tíma. Látið renna vél af þeim. Setjið í pott með svolitlu kjötsoði af tening, salti, pipar smjör- klatta og töluverðu af saxaðri per- silju. Hristið pottinn þar til smjörið hefur bráðnað. Góðar með kjöti. Gratineraðar grænar baunir. Hér má nota hraðfrystar grænar baunir, 1 pk., vatn, salt, 2 dl. mjúkur ostur eða smurostur, 1 dl. rjómi, salt, svartur pipar og paprikuduft. Sjóðið baunirnar eins og stendur á pakkanum og setjið þær svo í eld- fast fat. Blandið saman osti og rjóma og hrærið yfir hita í slétta sósu. Kryddið með salti, pipar og papriku. Hellið yfir baunirnar og bakið 1 ofni 250 gr. heitum í ca. 5—10 mín. eða þar til osturinn hefur tekið á sig lit og rétturinn er gegnheitur. Öðruvísi ostasósu má gera með því að blanda saman 1 dl rifnum osti, 3 matsk. af bræddu smjöri og 1 dl. rjóma, krydda með salti og pipar. Hvít baunasúpa. 2V2—3 dl. hvítar baunir, IV2 1- vatn, salt, 5—6 kartöflur, 2 laukar, 2 púrrur, 2 súputeningar, svartur pipar, söxuð persilja. Leggið baunirnar í bleyti yfir nótt. Flysjið og skerið kartöflurnar og lauk í bita. Sjóðið baunirnar í léttsöltu vatni með kartöflubitunum, lauknum og púrrunni. Látið allt sjóða undir loki í 2—3 tíma. Setjið súputening- ana í rétt áður en súpan er fullsoðin. Kryddið með svörtum pipar og berið súpuna fram vel heita með saxaðri persilju ofan á. Odýr og góð hvers- dagssúpa. Hnefafylli.... Framhald af ls. 15. gluggan. — Þa<5 er íkorni í trénu þarna, sagði hann og teygði úr sér til að horfa á litla angann í furunni. — Færðu ekki svolítið fast í hverri viku? — Jú, en hann verður að taka af mér aftur til að borga með gluggan sem ég braut. Ég missti líka prýðilegan krikettbolta. Hr. Shingler vill ekki láta mig fá hann aftur. Það væri hægt að setja hann í fangelsi fyrir að stela honum, það er ég viss um, — að taka svona annarra manna bolta. KRISTJÁNSSON h.f. Ingólfsstrœti 12 Símar: 12800 — 14878 — Úr því þú þarft endilega að brjóta glugga færðu líka að borga fyrir það. — Ég gerði það alls ekki vilj- andi. Hefði hann látið gluggan standa opinn, hefði rúðan ekki brotnað. Þau eru rík eins og mill- jónerar, en ég verð að borga þeim tólf hundruð og fimmtíu krónur fyrir þennan gamla, mokkaglugga. Nú andvarpaði hann svo djúpt að það kom móða á framrúðuna fyrir framan hann. — Ég verð orðin fullorðinn áður en það er borgað, bætti hann við meö dramatískum blæ. — Pabbi gefur mér bara fimmtíu krónur á viku og það er ekki ennþá búið að borga fyrir viðgerðina á ritvélinni heldur. — Taktu þetta ekki svona nærri þér. Adrienne sleppli ann- arri hönd á stýrinu og lagði hana hughreystandi á hné hans. — Pabbi þinn mildast áreiðanlega og gefur þér þetta eftir, smátt og smátt, svo þú verðir ekki al- veg vasapeningalaus. — Það gerir hann áreiðanlega UNGFRU YNDISFRIÐ býður yður hið landsþekkta konfekt frá N Ó A . HVAR E R ÖRKIN HANS NOA? I>afí cr alltaf saml leikurinn i hennl Ynd- isfrífl okkar. Hún hcfur falið örkina hans Nóa elnhvers staðar í blaðinu og heltlr góðum verðlaunum handa þe|m, sem getur fundlð örkina. Verðlaúnin eru stór 'kon- fektkassi, fullur af bezta konfekti, og framleiðandinn er auðvitað Sælgætisgcrð- ln Nól. Nafn llelinill Örkin er & bls. Siðast er dreglð var hlaut verðlaunin: Eyjólfur Jóharuiesson, Skaftahlíð 12, Reykjavík. Vinninganna má vitja í skrifstofu Vikunnar. 43. 43. tw. VIKAN 41

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.