Vikan


Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 24

Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 24
Lét stjórnast af spenningi Framhald af bls. 11. þetta fylgdi honum æ síðan, ekki krampi beinlínis, heldur óskapleg- ur taugaóstyrkur. Jafnvel rétt eftir að við kynntumst var honum róð- lagt að taka sér árshvíld frá leik- störfum. En hvernig átti hann að geta það? Þetta var hans líf, þessi sífelldi gangur á taugum. Hann var alveg eins og reyr af vindi skekinn. Taugaóstyrkurinn var að sjálfsögðu mismikill, en oft hræði- legur. En þegar hann kom fram á sviðið var eins og hann leystist úr viðjum, þótt hann væri allur titr- andi áður en hann fór inn. Þá fann hann, hve honum var innilega fagn- að og hve fólkið var elskulegt. — Hann þurfti svo mikið á því að halda... Það er fólkinu, er var svona gott við hann, sem hann mundi mest þakka fyrir þær ánægiustundir, sem hann hafði af þessu." Lárus Sigurbiörnsson segir f grein sinni í Eimreiðinni, að Alfred hafi átt vinsældir sínar því að þakka fyrst og fremst, að hann hafi kom- ið öllum mönnum betur fyrir á sviði. „Hann er hlédrægur að eðl- isfari," heldur Lárus áfram, ,,hæ- verskur í framkomu og viðmótið einkar þægilegt. í raun og veru er hann feiminn og þarf ýmist að sigrast á óstyrk í taugunum, áður en hann kemur inn á leiksviðið, eða hann treystir á þensluþol taug- anna og lætur stjórnast af spenn- ingi augnabliksins. Hið síðara er ef +il vill greinilegast, þegar Alfred syngur gamanvísur. Þá sleppir hann sér oft á hinn hlægilegasta hátt, en aldrei út í neinar öfgar, sem þó er háttur feiminna manna, þegar svo ber undir, að þeir eiga að sýna eða lýsa broslegum hlutum." EINHÆF HLUTVERK OG UTANFERÐ. Það mun vera sameiginlegt með mörgum góðum gamanleikurum, að þeir eiga þá ósk heitasta að fá að leika hluverk alvarlegs eðlis. En það getur reynzt erfitt þeim, sem hefur öðlazt frægð í gamanleikium og vekur hlátur um leið og hann birtist. Þannig var þessu varið með Alfred. Þegar hann gekk eftir götu í miðbænum, hlógu margir í laumi, einkum þeir sem þekktu hann ekki nema af sviðinu. Honum leiddist þetta, og hann langaði til að spreyta sig á alvarlegri verkefnum. En fólkið vildi ekki taka þennan alvörumann alvarlega. Brynjólfur Jóhannesson segir um þetta í minn- ingum sínum: ,,En eins og fleiri gamanleikar- ar átti hann erfitt um vik í alvar- legum hlutverkum, sem stundum varð honum til leiðinda. í Öldum eftir séra Jakob Jónsson lék hann ungan sjómann, sem drukknar í leiknum. En þegar Alfred var bor- inn inn á sviðið fóru allir að hlæja um leið og sá í fæturna á honum. Svipuð voru viðbrögð áhorfenda, þegar hann lék Crooks hestakarl í Músum og mönnum... Hann tók þetta nærri sér. En menn voru orðn- ir því svo vanir að hlæja að Alfred, að enginn gat tekið honum öðru- vísi.' Þar við bættist, að hlutverk Al- freds í revýum og gamanleikjum voru farin að líkjast hvert öðru. Sigurður Grímsson sagði í leik- dómi: „Það leyndi sér ekki, er Alfred Andrésson kom hér á leiksvið fyrst, að hann var gæddur miklum eðl- isgáfum sem leikari. En fyrir ein- hæf hlutverk, — aðallega í revýum hin síðari ár, og ef til vill of ein- hliða leikstjórn hefur hann staðnað í ákveðnum formum, svo að lítill- ar t!lbreytni og „nýsköpunar" gæt- ir í leik hans. Persónan er í raun- inni æ hin sama í hvaða hlutverki sem er. Er þetta illa farið og ómak- legt, og er þess að vænta að Al- fred láti ekki við svo búið standa og „hristi af sér klafann". Er það honum knýjand' nauðsyn, ef hann hyggst ná verulegum þroska í list sinni." Alfred var þetta sjálfum vel Ijóst. Hann hafði lengi ætlað sér að fara utan til náms í listgrein sinni, en styrjöldin skall á, svo að sú ráðagerð strandaði af sjálfu sér. En þegar stríðið var loks um garð gengið og friður kominn á; þegar aðrir listamenn leitu.ðu heim úr langri útlegð, tók Alfred sig upp og fór utan ásamt eiginkonu sinni, sem þá var einnig orðin kunn leikkona. „Okkur Alfred langaði alltaf mikið til að fara utan og læra," segir Inga Þórðardóttir. „Loks ákváðum við að gera alvöru úr því haustið 1946, þegar við höfðum verið gift í átta ár. „En fyrir hvaða peninga, elskan," spurði ég. Hann hafði ekki viljað með nokkru móti að ég ynni úti. Við lifðum mest á leikstörfum hans, og það var eng- in gullnáma. „Það bjargast ein- hvern veginn," segir hann, „ég get haldið skemmtun." Þcð voru nokkrir mánuðir til stefnu, og ég hugsaði með mér: Nú ætla ég að leika svolítið á hann og sauma svo sem einn og einn kjól fyrir borgun, án þess að hann viti, og safna í varasjóð til að eiga, þegar við komum aftur heim. Haustið kom. Skemmtunin var haldin og gekk mjög vel. Og svo seldum við húsgögnin okkar. Al- fred segir mér að fara að heiman á meðan, og þegar ég kem aftur, er allt, galtómt. „Já, ég lét litla borðið í kaupbæti með útvarpinu og þetta þarna í kaupbæti með þessu," segir hann alsæll. „Og nú getum við farið." Ég var búin að vinna mér inn um níu þúsund krónur með sauma- skaD án þess að hann vissi, og bað sysfur mína að geyma það á meðan við værum í burtu. Síðan fórum við til Kaupmanna- hafnar. Sigurður Nordal kom okk- ur í samband við Forchhammer- fjölskylduna, sem er mikið leikhús- fólk, og við lærðum leik, raddbeit- ingu, afslöppun, sminkun, sálfræði og svo framvegis. Mér finnst af- slöppun mikils virði til þess að ná eðlilegum viðbrögðum og spara orku. Sálfræðin eykur mannþekk- ingu leikarans og er mjög skemmti- leg. Við höfðum mikið gagn af þess- um vetri, en auðvitað varð námið dýrt, því að við gátum ekki sezt inn í venjulegan byrjendaskóla, — heldur vorum í einkatímum. Að áliðnum vetri kom vinur okk- ar, Vilhelm Norðfjörð, í heimsókn. Eg var frammi í eldhúsi að malla eitthvað, þegar ég heyrði innan úr stofu, að hann sagði við Alfred, að nú vofðu yfir seðlaskipti á íslandi. ,Guð minn almáttugur," æpti ég og æddi inn til þeirra, „þá verða peningarnir mínir ónýtir." „Hvaða peningar?" sagði Alfred alveg undrandi Og nú varð ég að segja honum upp alla söguna. Það var svo sann- erlega mikil gleði í Betlehem þetta kvöldið." Mörg verkefni biðu þeirra hjóna, er bau komu aftur heim frá nám- inu. Fyrst léku þau í gamanleikn- um „Grænu lyftunni" hlutverk skötuhjúanna, Blanny Wheeler og Billv Bartlett. Gagnrýnendur luku miklu lofsorði á frammistöðu þeirra beggja. Þótti sýnt, að dvölin er- lendis hafði orðið þeim til mikils gagns. Um þetta leyti komu hingað í heimsókn norskir leikarar, þar á meðal frú Agnes Mowinckel. Heim- komin sagði hún í blaðaviðtali við Dagbledet í Oslo: „Þeir (þ. e. íslenzku leikararnir) þurfa allir að fara til vinnu sinnar á daginn, í banka, skrifstofur o. s. frv — og svo nota þeir kvöldin og næturnar til æfinga. Það er engin viðvaningsbragur á leiksýningum þeirra. Þær eru prýðilegar. Sjálf sá ég bara „Grænu lyftuna" — en hún var svo vel leikin, að hrein unun var á að horfa." Lárus Sigurbjörnsson segir í lok greinar sinnar: „Um Alfred verður því með sanni sagt: Sigldi skopleikari of saltan sjá, — kom heim fullgildur skap- gerðarleikari. Haldist honum nú á hnossinu, — sjálfum honum til brautargengis, en oss öllum til ánægju." Sú ósk var að rætast, blóma- skeið hins fullþroska listamanns að hefjcst, — þegar skyndilega syrti ( lofti. TJALDIÐ FELLUR í HINZTA SINN. 7. janúar 1954 var tjaldið látið falla í miðjum fyrsta þætti gaman- leiksins „Skóli fyrir skattgreiðend- ur" Áhorfendum var tilkynnt, að leiknum yrði ekki haldið áfram. — Alfred Andrésson, sem lék aðal- hlutverkið, hafði veikzt skyndilega. Á þeirri stundu féll tjaldið í raun og veru í hinzta sinn. Alfred lék aldrei upp frá því. Hann hlaut að vísu nokkurn bata, en var bannað að leika. ,,Á leiksviðinu í Iðnó brast hjarta hans," segir Lárus Sigurbjörnsson. „Við þetta gamla leiksvið eru tengdar allar beztu minningarnar um leikafrek Alfreds Andréssonar. Þar magnaði hann lífi hlutverk, sem mundu hverjum manni gleymd, ef hann, og einmitt hann, hefði ekki gerzt túlkandi þeirra." „Það kemur svo greinilega í Ijós af bréfum frá honum úr síðustu lækningaferðinni," segir Inga Þórð- ardóttir, „hvað hann hefur hugsað innilega heim, hvað honum hefur leiðzt, hvað hann hefur í rauninni þráð að vera heima og undir niðri vitað að hverju stefndi. Hann var veikur í fimm ár, og læknar voru búnir að segja mér, að hann mundi lifa svona í þrjú ár. Þetta var að sjálfsögðu óskaplegt áfall. Það er ekkert að vera veikur sjálfur á móti því að sjá sína nánustu líða og geta ekkert gert. Það var margt vonlítið og erfitt í veikindum Al- freds. Þess vegna var það í raun- inni dásamlegt. að hann skyldi fá rólega hvíld að lokum. Hann dó í sveíni og hafði ekki í langan tíma verið jafn hress og síðustu vikurn- ar sem hann lifði. Einhvern veginn hafði viljað svo blessunarlega til, að hann hafði ekki fengið hjartaköst á sviðinu, — nema ( þetta eina skipti, þegar hann lék í síðasta sinn. Það var mest á nóttunni, eftir erfiðan vinnu- dag, sem hann fékk köstin. Fyrsta kastið fékk hann veturinn 1949—'50. Hann var þá að leika í kvikmynd hjá Lofti Guðmunds- syni. Hann kom heim seint um kvöld og gat ekki komizt upp stig- ann. Hcnn hafði áður hríðhorazt og hnignað mikið Þessari kvikmynd var aldrei lokið, en hins vegar var sýndur úr henni kafli. Síðar sagði Loftur við mig: „Ef hann Alli hefði dáið, þá hefði ég aldrei sýnt þessa filmu." Þannig fór honum stöðugt hrak- andi, en þó bráði ögn af honum á milli. í síðustu lækningaferðinni fékk hann nýjar pillur, sem hann notaði síðasta árið. Mér fannst honum eiginlega líða ekki verr þetta ár. Eða kannski hefur maður bara vanizt þessu. — Ég held að bæði honum og mér hafi orðið mest um fyrstu köstin. En við töluðum aldrei hvorki um hættuna né dauða. Það var aðdáunarvert, þegar maður hugsar um það eftir á, hvað hann tók þessu með mikilli hógværð og stillingu. I rauninni hefði ég aldrei trúað því fyrr en á reyndi." Alfred Andrésson lézt á aðfanga- dag 1955, aðeins 47 ára gamall. Þar með hneig í valinn mesti gam- anleikari, sem leikið hefur á sviði hérlendis. Að öðrum ólöstuðum má segja, að enn hafi engum tekizt að gerast arftaki hans. Alfreds var minnzt í öllum dag- Framhald á bls. 31. 24 VIICAN 43- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.