Vikan


Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 46

Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 46
BAUNIR Margir kvarta undan tilbreytingarleysi í fæðutegundum hér á landi, en vitið þið, að í NLF-búðinni á Týsgötu 8 fást hvorki meira né minna en yfir 10 tegund- ir af alls konar baunum, hvítum, brúnum, flötum og stórum og smáum, en baunir eru eins og kunnugt er næringarríkur matur. Þarna er möguleiki til að auka fjölbreytnina í hversdagsmatnum, því að þetta er ódýr vara, kostar yfir- leitt um 20 kr. >/2 kg. poki. Þar fæst líka ágætis matreiðslubók, sem heitir Matreiðslubók Náttúrulækningafélags fslands og kostar hún 35.00 kr. Hér verða birtar nokkrar mataruppskriftir með baunum í, þó ekki teknar úr um- ræddri bók, heldur svona héðan og þaðan. Brúnar baunir mcð fleski. 4 dl brúnar baunir, 1—IV2 i vatn, 2—4 matsk. sýróp, 1—2 matsk. edik, 2—3 tsk. salt, e. t. v. svolítið lcart- öflumjöl. Skolið baunirnar og látið liggja yfir nótt vatninu. Sjóðið i sama vatni þar til þær eru mjúkar, ca. IV2—2 tíma. Bragðbætið með sýrópi, ediki og salti, og séu þær of þunnar, má hræra svolitlu kartöflumjöli saman við. Ber- ið fram með harðsteiktu bacon. Hvítar baunir með tómatbragði. 4 dl (350 gr) hvítar baunir, IV2 1 vatn, 2 tsk. salt, 1 lárviðarlauf, stykki úr hvítiauk, 2—3 matsk. matarolía, 1 dós niðursoðnir tómatar. Skolið og leggið baunirnar í bleyti yfir nótt og sjóðið í sama vatni með lárviðarlauf- inu, hvítlauknum og saltinu í 2—2*,4 tíma, eða þar til þær eru meyrar, en detta ekki I sundur. Takið lárviðar- iaufið burt og heilið vatninu af þeim. Blandið einni dós af niðursoðnum tóm- ötum (hef séð þá hjá Silla og Valda) saman við. — Góðar með pylsum og fleski. Mauk úr hvítum baunum. 3 ,dl hvítar baunir, 2 laukar, 200 gr reykt skinka í bitum, persilja, lárvið- arlauf, timian, feiti, salt, pipar, rifið brauð eða brauðmylsna. 46 VIKAN 43-tbl- Leggið baunirnar í bleyti nokkra tíma. Saxið laukinn smátt og sjóðið, ekki brúnið, í feitinni. Skolið baun- irnar og setjið í kalt vatn, ca. % 1, til að byrja með og sjóðið í u. þ. b. hálftíma. Bætið þá skinkunni, laukn- um, persiijunni, lárviðarlaufinu og svolitlu timian í og haldið áfram að sjóða, þar til baunirnar eru mjúkar og farnar að detta í sundur. Bætið meira vatni á ef þarf. Takið síðan skinkuna upp úr og lárviðarlaufið og merjið baunirnar gegnum sigti með lauknum. Setjið svo góðan smjör- bita og skinkuna saman við og bragð- bætið með salti og pipar. Ef jafning- urinn er of þykkur, má þynna hann svolítið með soðinu. Hellið í eldfast form og dálitlu bræddu smjöri yfir og rifna brauðinu ofan á og bakið í fremur lítið heitum ofni í 10—15 mín. Gott með alls konar kjöti. Mauk úr grænum baunum. 4 dl þurrkaðar, grænar baunir, 1 i vatn, matsk. smjör eða önnur feiti, salt pipar, lauksalt, V2—I dl kjötsoð af tening. Skolið baunirnar og látið liggja yf- ir nótt, sjóðið í sama vatni þar til þær eru orðnar að mauki, merjið gegnum sigti. Sjóðið maukið og feit- ina saman iitla stund, hrærið soðinu í og bragðbætið- Berið ristaða brauð- teninga með. Chili con carne. V2 1 brúnar baunir, vatn, salt. — Sósa: 1 stór, smásaxaður laukur, 1 marið hvítlaukslauf, 300—400 gr gróf- hakkað nautakjöt, 3—4 tómatar eða tómatpurré, 2 dl soð af teningum, salt, pipar, 1 tsk. blandaðar kryddjurtir, chiliduft. Skreyting: Tómatbátar. Leggið baunirnar í bleyti yfir nótt og sjóðið síðan þar til þær eru mjúk- ar. Sjóðið lauk og hvítlauk í tiltölu- lega mikilli feiti, bætið hakkaða kjöt- inu í (smámyljið það) og látið steikj- ast þar til það er ljósbrúnt. Kryddið með salti, pipar, kryddjurtunum, chili- dufti og e. t. v. lárviðarlaufi. Chili- duftið er mjög sterkt, svo að það verður að fara eftir smekk, hve mik- ið er látið af því. Hrærið með soðinu og tómötunum og látið malla í 15 mín. Takið baunirnar með gataskeið úr soð- inu og látið renna vel af þeim og hrærið þeim varlega saman við sós- una. Skreytið með tómatstykkjum. Marineraðar hvítar baunir með túnfisk. 3—4 dl. hvítar baunir, vatn, salt, 1 laukur, 112 - 2 dl. matarolfa, salt, svart- ur pipar, 1—2 dósir túnfiskur, smá- söxuð' persilja. Skolið og leggið baunirnar í bleyti yfir nótt, saltið og sjóðið í nægu vatni í 2—3 klukkutíma. Hellið soðinu af baununum. Blandið saman oliu, salti, pipar, söxuðum lauknum og hellið yfir baunirnar meðan þær eru heitar. Látið kólna og túnfiskur og persilja sett ofan á. Salat úr hvítum baunum. 2—3 dl. litlar hvítar baunir, vatn, salt, 1 matsk. olía. Sósan: ‘/i sítrónu- safi eða edik, !/s matarolía, salt, pipar, svolftið sinnep, smásaxaður laukur eða graslaukur, persilja. Leggið i bleyti í nokkra tíma, sjóð- ið í nægu vatni, en gerið það hægt við lítinn hita. Setjið matsk. af olí- unni í frá byrjun og saltið þegar þær eru hálfsoðnar. Látið vatnið renna vel af þeim, eftir að þær hafa verið soðnar í llá—2>/2 tíma, fer eftir stærð og þvi hve nýjar þær eru. Blandið sósuna og kryddið og hellið yfir baun- irnar meðan þær eru heitar, svo að þær drekki sósuna betur í sig. Born- ar fiam vel kaldar og þykja góðar með lambakjöti. Gular baunir. Þessar eru soðnar á dálítið annan hátt en við erum vön. 4—5 dl. gular baunir, 2 1. vatn. 1 púrra, 1 laukur Framhald á bls. 41.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.