Vikan - 26.10.1967, Page 6
ENSKAR instBlRisvegstiísar
★
Mi ÉM Mðra a m,
sftr 30 Rfir.
tíspi M iiasstæðara.
LIIAlfER If.
Grensósvegi 22 og 24 (horni Miklubrautar). — Símar 30280 og 32262.
HORNGRÝTIS PRÓFIN.
Kæra Vika!
Ég var að lesa áðan, mér til
mikiilar ánægju, frásögn af fundi
menntamálaráðherra Evrópuráðs-
ins, þar sem segir, að prófin séu
hæpinn mælikvarði á þekkingu
nemenda, og sitthvað fleira er
rétlilega fundið að þeim.
Þetta er svo sannarlega engin
ný speki. Ég hef til dæmis hald-
ið þessu fram, allt síðan ég var
sjálfur í skóla og var þrautpínd-
ur með stöðugu prófafargani. —
Þetta kom sér sérstaklega illa
fyrir mig, því að ég þjáðist af
sjúkdómi sem nefnist prófskrekk-
ur, og þess vegna fannst mér
einkunnir mínar miklu lægri en
ég átti skilið. Einu sinni gerðist
ég svo djarfur að skrifa grein í
skólablaðið gegn prófunum, en
það var bara hlegið að mér.
En það ber sem sagt ekki allt
upp á sama daginn, og mikið
varð ég glaðpr þegar ég las frétt-
ina af þessari stórmerkilegu ráð-
stefnu í útlandinu. Fyrst svona
háir herrar eru búnir að kom-
ast að þessari niðurstöðu, hvern
ig væri þá, að skólaspekingarn-
ir okkar settust á rökstóla til
þess að ræða málið?
Góða Vika! Komdu þessu á
framfæri fyrir mig. Öll skóla-
börn landsins fagna því, ef horn-
grýtis prófin verða loksins lögð
niður.
Einn á móti prófum.
FJÓRAR LÍFSREGLUR.
Hæ, Póstur!
Fyrir nokkrum árum las ég í
einhverju erlendu blaði fjórar
lífsreglur fyrir fólk, sem þjáist
af stressi og annarri taugaveikl-
un. Þær festust svo rækilega í
mér og hafa gefizt svo vel í að-
skiljanlegum æsingi, svo að mér
datt í hug, hvort þú vildir ekki
birta þær almenningi til sálu-
hjálpar. Svona er orðanna hljóð-
an:
1. Horfizt í augu við vanda-
málin.
2. Sættið ykkur við orðinn
hlut.
3. Gefið dauðann og djöfulinn
í ailt saman.
4. Látið tímann líða. Allt tek-
ur enda.
Bless,
M.
Við þökkum kærlega fyrir
þessi fjögur boðorð. En ætli
vandamál taugaveiklunar nútím-
ans sé ekki flóknara en svo, að
það verði leyst með svona ein-
földu pennastriki?
ÞRJÁR OF FEITAR.
Kæri Póstur!
Ekki myndir þú vera svo góð-
ur að segja mér, hvaða ávexti
er óhætt að borða, ef maður ætl-
ar í megrun? Þú veizt sjálfur
hvað það er ljótt að sjá þykkt
kvenfólk, og ég er ekki það ásjá-
leg að ég megi við því að vera
feit. Ég vona svo, að ég fái svar
fljótt, því að fyrr get ég ekki
andað rólega.
Ein of feit.
P. S. Vikan er eina blaðið sem
ég les á íslenzku, svo að vonlaust
er fyrir mig að leita annars stað-
ar. Gætir þú líka sagt mér hvað
forsetinn í Sviss heitir?
Sama.
Þetta bréf kemur alla leið frá
Sviss svo að segja má, að Ies-
endur Vikunnar séu víða stað-
settir á hnettinum. Að því er við
bezt vitum er þér óhætt að borða
appclsínur, grape fruit og aðra
slíka ávexti, en þú mátt helzt
ekki borða banana og epli. — í
Svi.ss er skipt árlega um forseta.
1 fyrra hét hann Spúhler, en við
höfum ekki ennþá frétt hvað sá
nýjasti heitir. Annars ætti að
vera hægara fyrir þig en okkur
að komast að því! — Og hér
kemur svo annað bréf um offitu:
Kæri Póstur!
Við erum hérna tvær stelpur
og erum í hræðilegum vandræð-
um, vegna þess að við erum svo
fjandi feitar fyrir neðan mitti,
en passlegar fyrir ofan mitti. Þó
að við megrum okkur minnka
rassinn og lærin ekkert. Af því
að þú hefur svarað svo miklum
og góðum spurningum, þá hlýtur
þú að geta svarað þessari líka.
Við bíðum og bíðum eftir svari,
en það verður nú verra, ef þetta
bréf lendir í ruslinu. En við vilj-
um enga útúrsnúninga.
Tvær sem hugsa
um línurnar.
Það eru til óteljandi aðferðir
við að megra sig og ekki treyst-
um við okkur til að gera upp á
milli þeirra. Þið verðið að snúa
0 VIKAN 43-tw-