Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 7
ykkur til einhvers fegrunarsér-
fræðings. Kannski lætur hann
ykkur sofa í plastpoka eða eitt-
hvað þess háttar. Gangi ykkur
vel!
KROSSGÁTUR.
Kæn Póstur!
Ég hef verið að velta svolitlu
fyrir mér, en ekki komizt að
neinni niðurstöðu. Og þar sem
enginn hefur getað sagt mér það,
þá hef ég ákveðið að leggja þetta
undir þig, Póstur góður. — En
vandamálið er þetta: Hver eru
undirstöðuatriðin í gerð kross-
gálna? Ég hef hugsað gat á haus-
inn á mér, en ekki fundið svarið.
Getur þú hjálpað mér?
Krossgáluunnandi.
P. S. Það er ekki að marka
skriftina. Ég er svo taugaóstyrk,
vegna þess að það á að setja
skólann í dag og ég fer í fjórða
bekk. Fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Sama.
Það er anzi dapurlegt að vera
krossgátuunnandi og hafa ekki
hugmynd um hvernig krossgátur
eru! En þannig er þetta í þessu
bíessuðu lífi: Maður dáir mest
það sem maður þekkir ekki. —
Annars getur verið býsna
skemmtilegt að ráða krossgátur.
Að minnsta kosti er það reynsl-
an, að þeir sem byrja á því verða
hreinlegar krossgátuóðir. í stuttu
máli eru krossgátur þannig gerð-
ar, að gefin eru upp orð og allur
galdurinn er að finna önnur orð,
sem hafa sömu eða líka merk-
inu og passa í tiltekna reiti. Ef
gefið er upp orðið peningur, get-
ur Jausnin til dæmis verið fé eða
krónur eða aurar eða eitthvað í
þá áttina.
SJÓNVARP OG DÝRAVERND.
Kæra Vika!
Mig langar lil að biðja þig að
koma á framfæri svolílilli um-
kvörtun í póstinum þínum, sem
ég les alltaf og veit að fleiri gera.
Ég vil byrja á því að taka það
fram, að ég er einlægur aðdá-
andi íslenzka sjónvarpsins, þótt
ég gæti alls ekki séð plottið í
því að loka fyrir Keflavíkursjón-
varpið og láta það íslenzka vera
eitt á sjónvarpsmarkaðinum. Það
var einmitt svo gotl fyrir slrák-
ana að hafa Keflavíkursjónvarp-
ið til samanburðar og uppfyll-
ingar svona fyrstu árin. En hvað
um það. Nú kem ég að efninu:
Um daginn var sýnd íslenzk
kvikmynd um einhverjar fugla-
veiðar í Vestmannaeyjum. Ég
hef aldrei séð annan eins við-
bjóð á ævi minni, nema ef vera
kynni þegar sýnd var (líka í
sjónvarpinu) hvernig Færeying-
ar slátra fé sínu. Mér finnst að
þessar myndir báðar hefði átt að
banna fyrir börn engu síður en
hina flóknu, frönsku ástarhistor-
íu am Jules og Jim. Sú ágæta
mynd var þannig gerð, að börn
botnuðu hvorki upp né niður í
henni, sem betur fer. Stundum
hafa börn verið staðin að því að
misþyrma dýrum. Slíkt athæfi
hefur verið fordæmt og gert veð-
ur út af því í blöðunum eins og
vera ber. En þegar fullorðið fólk
fer með fugla eins og gert var í
Vestmannaeyjamyndinni, er þá
ekki ástæða til að þagga slíkt
niður? Hvað segir Dýraverndun-
arfélagið um það?
Með þökk fyrir birtinguna og
allt gamalt og gott.
Dýravinur.
Við viljum aðeins skjóta því
inn í, að hér var um heimildar-
kvikmynd að ræða til þess að
sýna hvernig fuglaveiðar fóru
fram hér áður fyrr, þegar lífs-
bjargarviðleitnin knúði menn til
þess að stunda þær. Nú eru menn
sem betur fer hættir þessu. Við
erum farnir að fá mörg bréf sem
fjalla um cinstaka liði í dagskrá
sjónvarpsins. — Sést bezt á því
hversu sjónvarpið er orðið snar
þáttur í daglegu lífi manna.
— Heyrðuð þér ekki veðurfrétt-
irnar í morgun, herra lögreglu-
þjórrn?
x, eg
KÝS
Bauerup
HRÆRIVEL
Hún hjálpar mér vEð að
HRÆRA — ÞEYTA
SKRÆLA — RÍFA
MÓTA — BORA
HNOÐA — HAKKA — SKILJA
PRESSA — MALA — BLANDA
BÓNA — BURSTA — SKERPA
Ballerup
'BaMsUo—
stærðir
Ballerup
HAND-
hrærivél
Fæst með
standi og skál.
Mörg aukatæki
ow
*FALLEGAR
bVANDAÐAR
*FJÖLHÆFAR
0.
MILLI-
STÆRÐ
Fæst í 5 litum.
Fjöldi tækja.
Ballina
Á NÝ |y
r af H LNÝ BRAGI RÆ R 1V Í AFBRA' ÖS 1 ðÐS J
TÆKNI Jj
STÓR-hrærivél
650 W. Fyrir
mötuneyti, skip
og stór heimili.
ÁBYRGÐ
OG TRAUST
VIÐGERÐAR-
ÞJÓNUSTA
* Elektrónisk hraðastilling * Sama afl ó öllum hröS-
um * Sjólfvirkur tímarofi * Stálskól * Hulin raf-
magnssnúra: dregst inn í vélina * Mjög öflugur 400
W mótor * Yfirálagsöryggi * Beinar tengingar allra
aukatœkja * Tvöfalt hringdrif.
SÍMI 24420 - SUÐURGÖTU 10 - REYKJAVÍK.
Sendið undirrit. mynd af Ballerup hrærivél
með nánari upplýsingum, m.a. um verð og greiðsluskilmála
NAFN........................................................
‘ HEIAAILI..................................................
TIL Fönix S.f. pósthólf 1421, Reykjavík
I r
43. tbi. viican 7