Vikan - 26.10.1967, Blaðsíða 22
Árið sem þau giftu sig, fóru Husscin konungur
og Dina drottning, í opinbcra heimsókn til Eng-
lands. Hér á myndinni sjást þau með Elisabeth
drottningu, Philip prins, Charles prins og Önnu
prinsessu.
|ISx JH! 1 y I' P
% 1 ' Æ. '
Árið 1955 var gcrt brúðkaup þeirra Husseins og
Dinu, sem var ein af fegurstu konum Egypta-
lands. Það var greinilega skynsemishjónaband.
Árið 1963 fékk Dina að hitta dóttur sína. Það
var á sjöunda afmælisdegi Alyiu. — Það var ein
af hamingjustundum lífs míns, segir Dina.
Dina, fyrrverandi drottning í Jordan, tekur á móti
okkur í einbýlishúsi foreldra sinna í Kairo, klukk-
an níu um morgun.
Mér þykir leiðinlegt að ómaka yður svona
snemma dags, en þetta var eini tíminn sem ég
hafði. Ég er nefnilega að fara til Beiruth klukkan tíu.
Ég ætla að hitta dóttur mína.
Og hún brosir, angurværu brosi, sem þó ekki nær til
augnanna, eða gefur nokkuð til kynna hvað hún hugsar.
Sjáið þér, endurtekur hún, dálítið vandræðalega,
eins og til að tjá sig, — ég hitti ekki dóttur mína svo
oft. Dóttir mín heitir Alyia, og hún er ellefu ára.
Dina drottning bendir á mynd, sem stendur í glugga-
kistunni, mynd frá hamingjudögunum, þegar hún var
gift Hussein konungi, og Alyia situr hreykin á handlegg
föður síns.
— Sjáið þér til, ég fæ að hitta hana við og við, hún
var reyndar hér, fyrir skömmu síðan.
í þetta sinn nær brosið til augnanna, en það er eins
og hún sé feimin, hún horfir á hendur sínar, eins og
vandræðaleg skólastúlka.
MENNTUÐ, RÍK OG FÖGUR.
Einu sinni hét hún Dina Abdul Hamid al-Aun, og var
ein af fegurstu stúlkum í Egyptalandi. Hún er af einni
elztu og virðulegustu fjölskyldu Egyptalands, og fékk
nýtízkulegt uppeldi og góða menntun, sem var mjög
sjaldgæft í Egyptalandi. Hún var einkabarn auðugra
foreldra, sem voru það vel upplýst, að þau elskuðu þessa
dóltur sína, engu siður en að hún hefði verið sonur.
Dina var alin upp í ást og umhyggju, og það er meira
en hægt er að segja um flestar kynsystur hennar í
Egyplalandi.
Þegar hún var luttugu og þriggja ára tók hún meist-
aragráðu í sögu og enskum bókmenntum. Seinna kenndi
hún þessi fög við háskólann í Kairo.
Dina var nútímastúlka og mjög falleg. Hún var þess-
utan vel ættuð og átti von í nokkuð miklum arfi.
En þótt hún væri nútíma kona, þá hafði hún ekki
ákvörðunarrétt um gjaforð sitt, það voru foreldrarnir
sem ákváðu það. Án hennar vitundar hafði það verið
til umtals í mörg ár að hún giftisl Hussein, sem þá var
ríkiseríingi í Jordan.
Einu sinni var hún drottning í Jordan, vei menntuð kona, á
vestræna vísu. En þar sem Dina gat ekki fætt konungi son,
til að tryggja ríkiserfðir, var hún einfaldlega látin fara, að
hætti Austurlandabúa. Nú býr hún ein, heima í Egypta-
landi, og lifir fyrir það eitt, að fá einstöku sinnum að hitta
dóttur sína.
1 SKUGGA MORÐA.
Hussein var sjö árum yngri en Dina, og ólst upp við ;
stöðugar morðhótanir, ýmist frá afturhaldssinnuðum eða
uppreisnarsinnuðum stjórnmálaflokkum. Árið 1951, þeg-
ar hann var aðeins 15 ára, var afi hans myrtur, fyrir
augunum á honum, og prinsinn bjargaðist, vegna þess
að kúlan, sem átti að bana honum, stöðvaðist í vemd-
argrip, sem hann bar um hálsinn.
Faðir hans var veiklaður, og 17 ára gamall varð
Hussein að taka við völdum í þessu órólega Bedúina
ríki.
Hann þurfti því sannarlega á því að halda að hafa
þroskaða og vel upplýsta konu sér við hlið. Fjölskylda
hans hafði fyrir löngu valið Dinu, honum til handa.
Þau voru svo gefin saman í hjónaband, með mikilli við-
höfn, árið 1955.
Það var stofnað til þessa hjónabands af skynsemis
ástæðum, og konungurinn var allt of ungur til að kvong-
22 VIKAN 43-tw-