Vikan - 26.10.1967, Page 23
Dæturnar eru raunar viðurkenndar innan fjölskyldunnar, en þegar konungsríki eru í veði,
eru það aðeins synirnir, sem reiknað er með. . «
Næsta alvarlega árásin á Hussein konung var gerð haustið 1956. Þá var tilkynnt í heimsblöð-
unum að hann væri látinn. En sprengjan, sem átti að drepa konunginn, drap forsætisráðherr-
ann og 11 manns, sem stóðu hjá honum. Konungurinn kom of seint á fundinn og slapp.
Þá varð Dina drottning að taka virkan þátt í stjórninni. Hún var skipuð forsætisráðherra,
og varð að sinna því starfi, þangað til nýr forsætisráðherra var skipaður.
En óeirðirnar héldu áfram í landinu, og sýnilega líka innan konungsfjölskyldunnar.
HVERSVEGNA SKILDU ÞAU?
Það hefur enginn fengið að vita allan sannleikann í því máli. Gat Dina ekki eignazt fleiri
börn? Var það aldursmunurinn, sem eyðilagði hjónabandið? Voru það síendurteknar morðtil-
raunir á konungsfjölskylduna, eða einhverj-
ar aðrar ytri ástæður, sem að lokum gerði
það að verkum, að konungur útskúfaði
drottningunni; það er eina aðferðin sem Ar-
abar nota í skilnaðarmálum.
Vinir hennar í Kairo halda að það hafi
verið aldursmunurinn, sem réði úrslitum í
þessu máli;
Konungurinn var of ungur og óþrosk-
aður. í dag hefðu það verið meiri möguleik-
ar á því að hjónabandið hefði blessazt.
Nú er Hussein kvæntur enskri stúlku, —
Toni Gardiner, sem hefur verið látin skipta
um nafn, og er nú kölluð Muna prinsessa.
Hún hefur fætt konungi synina tvo, sem
Dina aldrei eignaðist, og nú er það Muna,
sem stendur við hlið konungs, í þessum síð-
ustu hörmungum hans.
Dina varð að yfirgefa Jordan. Hún fékk
að taka eigur sínar með sér. En það eina,
sem skipti hana nokkru máli, dótturina Aly-
iju, varð hún að skilja eftir.
Enginn veit hversvegna. Hvaða ánægju
gat Hussein haft af dótlur sinni? Hún gat
aldrei orðið ríkiserfingi, og hann hafði aldr-
ei tíma til að sinna henni; hún bjó ekki einu
sinni í höllinni, heldur var hún alin upp af
enskum og frönskum kennslukonum, sem
bjuggu með henni í einbýlishúsi.
Það getur verið að Dina og Hussein viti
sjálf ástæðuna fyrir þessu furðulega fyrir-
komulagi, en enginn af vinum þeirra hefur
hugmynd um hana.
NÁBÚI EYÐIMERKURLÖGREGLUNNAR.
Dina drottning flutti heim til foreldra
sinna, sem búa í einbýlishúsi, í hinni fögru
útborg Maadi, fyrir utan Kario, og byggð
er á vin. Húsið er líkast lítilli höll, og
næstu nábúar eru eyðimerkurlögreglan. Gat-
an, fyrir utan húsið er skírð í höfuðið á Dinu
Drottningu. En það er ekki löng gata, við
hana standa aðeins nokkur hús.
Kringum húsið er stór skrautgarður, og
þegar við ökum inn úr hliðinu, kemur fjöld-
inn allur af hundum og köttum á móti okk-
ur. Bak við húsið sjáum við bundinn asna
og ennþá fleiri ketti.
Dina di-ottning ýtir nokkrum þeirra úr
vegi, og tekur upp í lófa sinn ósköp lítinn
og óásjálegan hvolp. Hann er ekki stærri en
egypzku rotturnar, og hengir hausinn, þeg-
ar hún strýkur hann.
— Við fundum þennan fyrir nokkrum dög-
um. Hann var svo hræðilega aumur, ljótur
og einmana, að ég varð að miskunna mig yf-
ir hann. Svo hræðilega einmana....
STUNDUM ER ÉG HRÆDD . . .
Dóttir mín á asnann. Hann heitir ekki
neitt, við skírum aldrei asna, og . . . já,
dóttir mín sér hann ekki oft.
Framhald á bls. 40.
43. tbi. VIKAN 23