Vikan


Vikan - 26.10.1967, Side 32

Vikan - 26.10.1967, Side 32
ONSON KIIEIKJARAR Vanti ykkur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. Einkaumboð: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89, Reykjavík. % Hrútsinerkið (21. marz — 20. aprí!): Þú hefur ekki gott yfirlit með útgjöldum þínum, en þú gerir þér ljóst að einhversstaðar er veikur hlekk- ur. Þú verður vitni að leiðinlegu atviki, en þér tekst fljótt að bæta nokkuð úr. Vogarmerkíð (24. september — 23. október): Ef þú átt frídaga núna ertu heppinn. Vikan virðist bjóða upp á margvíslegar skemmtanir og frístunda- gaman. Þú átt góða daga, án þess að kosta miklu til. Heillalitur er blár. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú verður nokkuð útsláttarsamur, en það er afsak- anlegt vegna þess hve þú veitir þér lítið. Taktu þátt í því félagslifi sem þér býðst og sérstaklega ef því fylgir útivera. Heillatala er fjórir. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Nú er rétti tíminn til að sinna viðskiptamálum. Farðu gætilega í umferðinni. Það verður frestur á áríðandi máli, en það þarf ekki að þýða tap fyrir þig. Þú skalt njóta samvista vina þinna. ff fvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Skapgerð ákveðinnar persónu truflar þig svo þú ert ekki alveg eins og þú átt að þér. Sökum þess hve ónæmur þú ert fyrir ýmsu þá kemur sannleikurinn ver við þig en ella. Þér er nauðsynlega að breyta til. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Athugaðu nýja möguleika í sambandi við atvinnu þína, án þess þó að taka afgerandi ákvarðanir. Fyrri hluti vikunnar verður ekki notadrjúgur og það ger- ir þér gramt í geði. Vertu á verði á föstudag. # Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí); Mikilvægu verkefni hjá þér seinkar talsvert, en þú skalt vera við því búinn. Stilltu útgjöldum í sam- bandi við ferðalög og aðrar skemmtanir mjög í hóf. Leggðu áherzlu á starf þitt. Steirigeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Frestaðu öllum ferðalögum, svo framarlega sem þau eru ekki nauðsynleg. En ef svo er, skaltu fara vel yfir allan undirbúning og gefa þar ekkert eftir. Treystu tillögum þinna nánustu, þær eru hollastar. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Taktu þér frí frá daglegu amstri um tíma ef þú getur. Næsta vika verður mjög skemmtileg og við- burðarrík fyrir þig. Þú ert of eyðslusamur, leggðu umframfé þitt á banka, það er örugg geymsla. Vatnsberamerkið (21. janúar - 19. febrúar): Þú færð smá gjöf sem veldur meiri breytingum en þú hafðir ímyndað þér. Gamall fjölskylduvinur ger- ir sér erindi við þig. Þú færð mann til að vinna ákveðið verk fyrir þig. %Lfi Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Þú dvelur að líkindum um stund fjarri alfaraleið. Þú ert í góðu jafnvægi og lítur suma hluti öðrum augum en áður. Kvöldin geta orðið einkar notaleg, ef þú ert þannig stilltur. Fiskamerkið (20. febrúar - 20. marz): Þú ert ekki vel hress, en ef þú tekur hlutina réttum tökum þá færðu meira upp'úr krafsinu. Ef þú hefur kost á útiveru þá notaðu þér það. Deilugjarnir að- ilar hafa truflandi áhrif á þig. 32 VIKAN 43 tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.