Vikan - 26.10.1967, Page 39
um að úða húsið, það verður ekki
hjá því komizt. Segðu honum að
DDT sé til að verjast lúsum og
taugaveiki, og segðu honum frá
öllu veika fólkinu í þorpinu. Segðu
honum að við gerum stúlkunni ekk-
ert mein. Segðu honum þetta.
Læknirinn andvarpaði og fór svo
að tala. Hann talaði blíðlega, og
gamli maðurinn virti hann vand-
lega fyrir sér, meðan hann talaði,
stúlkan bærði ekki á sér og dreng-
urinn glápti, með opinn munn. Við
vorum blautir af svita og einkenn-
isbúningar okkar voru óhreinir. Við
vorum með alvæpni og ruddalegar
duftpumpur og við vorum aurugir
upp fyrir ökkla. Og þegar ég leit
á skínandi hvitan búning gamla
mannsins og stúlkuna, svo fagur-
lega klædda, krjúpandi á silki-
kodda, þá fannst mér ekkert skrít-
ið að þau gátu ekki skilið hrein-
lætisráðstafanir okkar, þetta hlaut
að vera þeim jafn óskiljanlegt og
mál þeirra var mér.
Loksins hafði læknirinn lokið
máli sínu, og nú tók gamli maður-
inn við. Hann benti [ áttina til stúlk-
unnar og svo á okkur, og hristi
höguðið. — Allt í lagi, sagði lækn-
irinn, — ég held að það sé allt I
lagi með að úða DDT, en hann seg-
ir að stúikan sé hrein, hún þvoi
líkama sinn daglega, hér séu eng-
ar lýs og engin taugaveiki. Húsið
hreint, segir hann. Stúlkan ósnert.
Enginn maður nokkru sinni snert
hana. Ef einhver, sérstaklega út-
lendingur, snerti blúðarklæðnað
hennar, þá geti hún ekki gifzt. Hann
segir að það sé allt í lagi með DDT,
en hann ætlar sjálfur að úða því.
Þið getið úðað drenginn, hann ætl-
ar nð horfa á og læra, svo úðar
hann sjálfur stúlkuna.
Undirforinginn andvarpaði. —
Það er þá í lagi, sagði hann.
Drengurinn stóð upp, eftir skip-
un frá föður sínum. Undirforinginn
tók pumpuna og gekk að flötum
steini við veröndina. Drengurinn
kom til hans og hann úðaði duft-
inu inn undir föt hans, eftir regl-
unum. Við hvert handtak, sneri
hann drengnum varlega, svo gamli
maðurinn gæti séð hvernig hann
fór að þessu. Drengurinn pírði aug-
un og beit saman vörunum; en
stúlkan hreyfði sig ekki. Þegar und-
irforinginn hafði lokið þessu, rétti
hann gamla manninum pumpuna.
Hann hélt henni öfugri og tautaði
eitthvað fyrir munni sér.
— Hann er mjög hryggur, hann
segir að hún sé svo hrein, og ekk-
ert veik. Hann heldur að þetta duft
geti kannski verið vont fyrir svona
saklausa stúlku, ekki gott fyrir
brúði.
Nú varð rödd undirforingjans
ákveðin. — Segðu honum að þetta
geri henni ekkert mein, og ef
hann ekki gerir það sjálfur, neyð-
ist ég til að gera það. Og hann ýtti
við rifflinum, eins og til að beina
athvgli gamla mannsins að honum.
Gamli maðurinn virti undirfor-
ingjann fyrir sér, kinkaði svo hægt
'kolli og gekk fram fyrir stúlkuna.
Orðin streymdu df vörum hans, —
langar setningar, og hann virtist
bogna í herðunum. Við biðum. Og
þá, með hæglátri, hreyfingu, reis
stúlkan upp, [ fullri hæð. Hún var
jafnvel hærri en faðir hennar. Svart
hárið féll niður fyrir mitti, skín-
andi og svalt að sjá, og Ijósrauð
böndin bærðust til. Lítið, rautt blóm,
eins og þau sem voru ! blómsveign-
um á húsveggnum, datt úr kjöltu
hennar á gólfið. Líkami hennar var
hulinn efnismiklum kjólnum, en
mjúkar línur axlanna og hálsins
sýndu greinilega æsku og yndislega
fegurð, sem töfraði okkur. Við viss-
um að hún fann að við störðum á
hana, og það var eins og hún vildi
verja sig fyrir þessum starandi aug-
um. Þótt hún stæði þarna, róleg,
hávaxin og grönn, var eins og hún
væri reiðubúin til að leggja á flótta,
ef einhver okkar nálgaðist hana,
eða jafnvel að líða í burtu með ein-
hverjum töfrum. Ég heyrðl aftur
fuglakvakið, og nú var það nær,
mér fannst jafnvel að það kæmi
innan úr húsinu.
Gamli maðurinn sagði eitthvað
og siúlkan lyfti örmum sínum í átt-
ina til föður síns, Gamli maðurinn
var vandræðalegur, þegar hann
mundaði stútinn á pumpunni undir
aðra ermalíninguna, og horfði á
undirforingjann, og hann kinkaði
kolli. Maðurinn fumaði eitthvað
við handfangið og deplaði augun-
um vandræðalega, en ekkert skeði.
— Fastar, sagði undirforinginn,
kreppti hnefann og rak hann út í
loftið. Faðirinn tautaði eitthvað,
sem líktist blótsyrði og stóð gleiður,
um leið og hann hamaðist á pump-
unni. Við sáum hvernig hvítt duft-
ið I eyttist inn ( gula silkiermina,
en stúlkan stóð hreyfingarlaus. —
Gamli maðurinn horfði á okkur, og
augu hans voru vot, svo dró hann
djúpt andann og tók til við hina
ermina. Læknirinn sneri sér snögg-
lega við og fór að skoða miða á
pilluglasi sem hann hélt á. En við
hinir vonuðum að stúlkan myndi
snúa sér við, gátum ekki haft af
henni augun.
Þegar hann hafði lokið við erm-
arnar, sneri gamli maðurinn. sér
við og horfði biðjandi á okkur, en
undirforinginn benti honum á
buxnastrenginn og hálsmálið. And-
artak virti gamli maðurinn undir-
foringjann fyrir sér, eins og hann
væri að vega og meta, svo talaði
hann blíðlega við stúlkuna. Hand-
leggir hennar féllu niður og við
sáum beltið þrengjast að baki henn-
ar, þegar hún tók það út að fram-
an. Faðirinn horfði yfir öxl dóttur
sinnar, eins og hann gæti minnkað
sekt sína, með því að telja trén að
baki hennar,- en hann hélt áfram
að úða eins og vélrænt.
Nú hefði sagan vel getað endað
þar.na. Við vissum allir að þessi
úðun á stúlkunni var alls ekki nauð-
synleg, og undirforinginn hefur ör-
ugglega ekki hugsað út í það, hve
mikið lagt var á þetta fólk, þegar
hann skipaði þetta fyrir. Nú hafði
hann gert skyldu sína og hefði get-
að hætt við svo búið; við biðum
allir í ofvæni eftir því að sjá and-
lit stúlkunnar.
Þegar faðirinn horfði á okkur
aftur, benti undirforinginn á bak
stúlkunnar og svo á bakið á sér.
Nú var gamli maðurinn í rhikl-
um vanda; annað hvort varð hann
að láta stúlkuna snúa sér við, eða
hann varð sjálfur að ganga í kring-
um hana. Hann hugsaði sig um,
svo hvlslaði hann einhverju að
henni. Mjúklega, eins og hún væri
á hreyfanlegum palli, sneri brúð-
urin sér við og sneri andlitinu að
okkur, hár hennar Ijómaði [ sólinni.
Andlitið var ótrúlega smágert,
og yfir því hvíldi einhver eilíf ró,
hún var lifandi fyrirmynd fdabeins-
myndanna, sem svo víða fást í
Austurlöndum. Þetta var ótrúlega
ungt andlit, silkimjúk húðin var
gullin í sólinni. Rakar varirnar,
rauðar eins og blómið, sem hún
hafði haldið á, voru hálfopnar, en
hún vissi að það var hættulegt að
brosa til ókunnugra á brúðkaups-
daginn. Frá rökum, brúnum augum
hennar, sem voru galopin, djúp og
heiðrík, streymdi tær andblær, sem
fleytti okkur inn í eitthvert óþekkt
töfraland, land pagodanna og ó-
skiljanlegrar hljómlistar, sem við
þekktum aðeins af bókum. Mér
fannst ég heyra í musterisklukkum,
og í draumi augnabliksins, sem
hún horfði á mig, fannst mér sem
aldrei hefði verið hleypt af byssu,
aldrei verið til neitt stríð, hvorki
hér eða annars staðar. En svo fjar-
aði þetta augnablik töfranna út.
Hún leit frá okkur, einum af öðr-
um, eins og við værum alls ekki
til, og við stóðum þarna á öndinni,
klaufalegir og smáir, ( litla þorpinu
! dalnum.
Þetta skeði allt á örskammri
stund. Stúlkan stóð hreyfingalaus
og þolinmóð, meðan faðir hennar
úðaði niður með fötum hennar;
grannar, mjúkar hendurnar héldu
fellingum kjólsins saman. En áður
en hún kraup aftur horfði hún yf-
ir höfuð okkar, og þá heyrði ég
enn einu sinni í fuglinum. Stúlkan
heyrði það líka, vottur af brosi
kom fram á varir hennar, og hún
sagði eitt orð.
— Hvað er hún að segja, sögð-
um við allir í einu.
— Fuglinn, sagði læknirinn, —
fuglinn, — hvað er það nú annars
sem þið kallið hann? — Næturgali,
held ég, Hún sagði næturgali, ..
Aftur talaði stúlkan, og í þetta
sinn horfði hún á okkur.
— Hún spyr hvort það séu næt-
urgalar f landi ykkar.
— Næturgalar? sagði undirfor-
inginn, undrandi.
— Nei, sagði ég, — segðu henni
að það séu engir næturgalar í landi
okkar.
FYRSTIR með STÆRRA rými
320 lítra DJÚP-
FRYSTIRINN
Ákaflega vinsæll — langtum
STÆRRA geymslurúm, mjög
vandaður, ryðfrír, öruggur í
notkun,slær sig ekki að utan...
fljótvirkasta og bezta
frystingin!
KPS-djúpfryst er
ÖRUGGLEGA djúpfryst.
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
VERZLUNIN BÚSLÓÐ
v/ Nóatún.
BALDUR JÓNSSON SF.
Hverfisgötu 37.
43. tbi. VIKAN 43