Vikan - 18.01.1968, Page 21
r
Til gamans höfum við leitað til nokkurra manna og fengið að líta á, hvernig þeir pára á blað,
á meðan þeir eru að tala í síma eða bíða eftir einhverju. Menn pára með mjög margvíslegu
móti, svo að það getur verið býsna erfitt að sálgreina þá eftir forskriftinni, sem birt er á síð-
unni hér á móti. Við skulum samt gera tilraun til þess og sjá hvernig gengur:
Björnsson
er þekktastur fyrir þátttöku
sína í Savannahtríóinu, en
starfar sem leikmyndasmiður
sjónvarpsins. Hann párar ævin-
lega 1 líkingu við það sem
myndin er af. Þær eru auðvitað
alltaf í laginu eins og sjónvarps-
skermur. Hann kemst næst
fjórða flokknum hér að framan.
Hann er tilfinninganæmur og
viðkvæmur fagurkeri, og ekki
alltaf raunsær.
r "\
Guðmundur
Guðjónsson
söngvari, teiknaði fyrir okkur
hús innan í andliti. Hann kveðst
mjög oft rissa eitthvað í þessa
áttina. I>að er erfitt að heim-
færa pár hans undir neinn af
flokkunum sjö. En það bendir
til þess, að hann hafi frjótt
ímyndunarafl. Ef til vill táknar
þessi samsetningur húss og
manns, að hið veraldlega og
andlega, kannski listin og
brauðstritið, heyi harða baráttu
innra með honum.
Rolf
Johansen
forstjóri, teiknar ævinlega litla
hringi og tengir þá saman með
strikum. Pár af þessu tagi má
sjá hvarvetna á minnisblöðum
á skrifborði hans. Hann kemst
að okkar dómi næst þriðja
flokknum. Hann er raunsær og
býr yfir miklum dugnaði og
áræði. Hann er metnaðargjarn,
gerir áætlanir fram í timann og
hefur ekkert á móti því að taka
á sig ofurlitla áhættu.
Jónas
Kristjánsson
ritstjóri Vísis, teiknar alltaf litla
ferninga og fléttar þá saman
skáhallt hvern niður af öðrum.
Það er merki þess, að hann
hafi yndi af því að stjórna og
skipuleggja og gera áætlanir
langt fram í tímann. Hann flan-
ar aldrei að neinu, vill hafa
jörð til að ganga á og teflir
ekki í tvísýnu nema brýna
nauðsyn beri til.
V
V
J
V.
r v
j
Klemens
Jónsson
leikari og leikstjóri, teiknar
gjarnan þríhyrninga og strik,
en einnig párar hann oft tölur
og orð og orð á stangli, ef hann
talar í síma. Þetta bendir til
reglusemi og skapfestu og til-
hneigingu til að vanda sérhvert
verk eins vel og mögulegt er,
hvort sem það er stórt eða
smátt.
v________________________y
ritstjóri, teiknar lausa ferninga
og strik og gerir gjarnan ramma
í kringum íerningana. Hann er
því mitt á milli þriðja og
fimmta flokksins. Hann er
raunsæismaður og segir gjarn-
an meiningu sína hreinskilnis-
lega. Hann hefur megna andúð
á allra yfirborðsmennsku og
falsi. Hann girnist ekki þau
verðmæti, sem mölur og ryð fá
grandað. Hann er í stöðugri
leit að nýjum sannindum.
V________________________________/
Sigvaldi
Hjálmarson
Andrés
Indriðason
sjónvarpsmaður. teiknar saman-
tengda ferninga, líkt og Jónas
Kristjánsson. Hann kemst því
næst þriðja flokknum. Hann
hugsar rökrétt og skipulega og
gerir áætlanir fram í tímann.
Röð ferninganna er hins vegar
ekki eins regluleg og hjá Jón-
asi. Það bendir til þess, að hann
sé gæddur ríku hugmyndaflugi,
sé hrifnæmur og talsvert list-
hneigður.
V________________________________/
/ \
Kristján Bersi
Ölafsson
ritstjóri, párar strik, sem sker-
ast þvers og kruss, og gjarnan
tvær hliðar af þríhyrningi, en
vantar þá þriðju. Þetta bendir
til skipulagsgáfu, sem hann hef-
ur tileinkað sér, en er í raun-
inni ekki mjög rík i eðli hans.
Hann er viljasterkur og fast-
heldinn; myndar sér ákveðnar
skoðanir á mönnum og málefn-
um og hvikar ógjarnan frá
þeim, nema hann neyðist til
þess.
V____________________________________/
s. tbi. VIKAN 21