Vikan - 18.01.1968, Page 32
ONSON
KVEIKJARAR
Vanti ykkur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson
kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en
nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum.
Einkaumboð:
I. GUÐMUNDSSON & CO. HF.
Hverfisgata 89, Reykjavík.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Það yrði sjálfum þér og öðrum til ánægju, ef þú
létir loks verða af þeim kaupum sem þú hefur velt
fyrir þér í fleiri mánuði. Legðu meiri alúð við fegr-
un umhverfis þíns; það þarf ekki að kosta mikið.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú hefur lagt mikið á þig til að læra ákveðinn hlut
og mistekizt alloft. Nú aftur á rnóti færðu svo góða
tilsögn að þér gengur eins og í sögu að ljúka verk-
efninu. Væntanlega verðurðu ekki heima um helgina.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú verður að slaka á kröfum þínum, annars verð-
urðu óþolandi og miðar ekkert áfram. Komdu í lag
og ljúktu við ýmislegt sem þú hefur byrjað á, en
aidrei fullgert. Þú færð góðar fréttir.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú hefur fengið áminningu sem þú ert alls ekki
sammála að eigi rétt á sér. Það veldur þvi að þú
verður óánægður með umhverfi þitt og veltir fyrir
þér gagngerðum breytingum. Heillalitur er gulur.
IIJL
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú ert með verkefni sem þú ert smeykur við að
reynist þér ofviða. Þú ættir að gefa kunningjum
meiri gaum, svo þú missir ekki tengslin við þá. Um
helgina skeður eitthvað óvænt.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.):
Fjölskylda þin er fegin nærveru þinni og hjálpsemi.
Á þriðjudaginn kemur nokkuð fyrir sem veldur þér
miklum heilabrotum. Taktu virkan þátt í útilífi því
sem þér býðst, hvernig sem viðrar.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú ert í félagsskap manns sem reynist ekki góður
félagi, reyndu að stinga hann af, fyrir fullt og allt.
Þú hefur miklar framkvæmdir í huga, en þær drag-
ast af ófyrirsjáanlegum orsökum.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Vertu vel á verði, svo þú verðir ekki tældur til að
gera eitthvað sem gæti talizt vafasamt. Þér er nauð-
synlegt að ieita til kunningja þíns vegna ákveðins
verkefnis. Þér verður boðið út á föstudag.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Ef þú ert útsjónarsamur og notar þér hégómagirnd
annarra, þá gætirðu komið þér þægilega fyrir. Það
verður erfitt fyrir þig að vinna úr gögnum sem þú
hefur fengið um ákveðið mál.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Skemmtun sem verður um helgina verður þér mjög
minnisstæð, sökum eins.... Þú tókst þátt í hrekkj-
um um daginn, og stendur nú ráðþrota og varnar-
laus. Ósamlyndi á vinnustað kannt þú ekki við.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Ættingi þinn hefur komið sér í nokkra klípu og
verður þú, sem endranær, að liðsinna honum, þótt
það fari í taugarnar á þér. Helgin er vel fallin til
ferðalaga og alls kyns hreyfingar utan dyra.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Dvelstu heima við, þegar þú átt frí, reyndu að þroska
hæfileika þína og persónu. Félagar þínir eru ekki
allir af bezta taginu, þú skalt vera vandlátari. Heilla-
tala er fjórir.
32 VIKAN 3- tbl-