Vikan


Vikan - 19.09.1968, Síða 7

Vikan - 19.09.1968, Síða 7
syngja sitt síðasta, þótt það sé komið til ára sinna. í sumar kom Bill Haley ásamt hljómsveit sinni til Lundúna til þess að halda hljómleika í Al- bert Hall. Þeir sem álitnir eru hafa mest vit á dægurlagatón- list, spáðu honum hinum mestu hrakförum. Þeir töldu fráleitt að ætla að fylla Albert Hall með því að bjóða upp á ellefu ára gömul lög eins og „Rock around the Clock“. En reyndin varð önnur. Það var troðfullt á hljóm- leikunum og gífurleg fagnaðar- læti. Mörg lög sem vinsæl hafa orð- ið að undanförnu eru einnig mjög í ætt við rokkið. Paul Mc Cartney sagði nýlega, að eitt af nýrri lögum Bítlanna, „Lady Madonna" væri eins nálægt rokkinu og hægt væri að vera. Sumir spá því, að leðurjakk- arnir, sem voru í tízku þegar rokkið var upp á sitt bezta, fari brátt að skjóta upp kollinum í breyttri mynd. ☆ 'A Rússarnir cru í öngum sínum vegna þess að gcta ekki framleitt nóg af honum rándýra lúxusmat, kavíarnum. Orsakirnar cru þær að hin langa og horaða styrja er að hvcrfa úr fljót- unum, vegna rányrkju. Xil þess að bjarga þessu við er lagt til að leggja nú mikla rækt við að sctja styrju- seiði í stórfljótin x Sibiríu, eins langt frá verksmiðjum og mögulegt er. Rússarnir þykjast geta framleitt gervi- styrjuhrogn, en Vesturlöndin, sem kaupa mest af kavíarnum, neita að kaupa slíkan varning. Lola Falan, sem er mótleikari Sammy Davies í „Golden Boy“, sem nú gerir mikla lukku í London, hefur fengið 500 hjú- skapartilboð. Það er sagt að Sammy sé einn að biðlunum, en hann segist vera þreyttur á hjónabandi! En Lola og Sammy hafa töluvert saman að sælda í náinni framtíð, því að Lola á að leika i kvikmyndinni „Yes I can“, sem er tekin eftir bók Sammy Davies. HINAR VIÐURKENNDU ENGLISH ELECTRIC SJALFVIRKU ÞVOTTAVELAR 2 GERÐIR GERÐ 474 GERÐ 484 . Heilt eða kalt vatn til áfyllingar. • Xnnbyggður hjólabúnaður. • 8 þvottastillingar — skolun — vindun • Afkiist: 4,5 kg. • 1 árs ábyrgð • Varahluta- og viðgerðaþjónusta. (3KJ&.CO ^ Laugavegi 178 Sími 38000 ENGLISH ELECTRIC þurrkarann má tengja við þvottavélina (474) 37. tbi. VIKAN wjoisvoMsjnony©

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.