Vikan


Vikan - 19.09.1968, Page 45

Vikan - 19.09.1968, Page 45
Ernð þér aft byggja? Hafið þér munað eftir að brunatryggja húsið? Oft hafa eldsvoðar valdið stórspjöllum á húsum í smíð- um — þótt allt sé úr steini, eins og sagt er. Gleymið ekki þessari þýðingarmiklu vernd húsbyggjandans. ABYRGÐ býður hagkvæma brunatryggingu fyrir hús í smiðum í Reykjavík. ÁBYRGÐ tryggir aðeins fyrir bindindismenn. Þess vegna fá þeir ódýrari tryggingar hjá ÁBYRGÐ. Bindindi borgar sig. ÁBYRGDP TRYGGINGAFÉLAG fyrir bindindismenn Skúlagötu 63 - Reykjavík - Símar: 17455 - 17947 góna á vörur í búðargluggum, koma við á einhverjum ameríska barnum til að fó sér milkshake og reyna að drepa tímann, þangað til tedrykkj- an hefst í rökkrinu. Liðsforingjar og óbreyttir borgarar fara oft út með amerískum stúlkum, og það hefur verið stofnað til margra hjónabanda á þeim grundvelli (samband milli ógiftra kvenna og kvæntra manna er þó algengast í þeim hópi); en óbreyttir hermenn eiga eins erfitt með að ná kunningsskap við ame- rískar stúlkur í Vietnam, eins og vel menntaðar innfæddar stúlkur. Þeir kalla oft glaðlega til amerísku stúlknanna: „Halló, landi," en það verður sjaldan meira. Á baðströndunum við Vung Tau, rétt hjá Saigon, þar sem hermenn- irnir eru sér til hvíldar, er það al- geng og eiginlega raunaleg sjón, að sjó hópa af hermönnum, sem hafa hótt og drekka bjór, og veifa til amerískra og vietnamskra kvenna, sem ganga um ó bikini og haldast í hendur við vini sína. Framkoma hermannanna gagnvart vietnömskum stúlkum er töluvert harkalegri í sveitahéruðunum en í borgunum. Síðastliðið sumar kom það fyrir, að fimm hermenn réðust á konu, fimm barna móður, sem var kom- in ó fjórða mánuð með það sjötta. Þeir róku mann hennar og börn út, bundu konuna ofan f rúmfleti og þrír þeirra nauðguðu henni. Þessir menn höfðu aldrei brotið neitt af sér áður, og þeir hlutu allir fang- elsisdóma, fleiri mánuði upp í |ffs. tíðarfangelsi. Hrollvekjandi atburðir sem þessi eru, sem betur fer, mjög sjaldgæf- ir, en Saigon dagblöðin, — nokkur á vietnömsku, tvö á ensku, fimm á kínversku og eitt franskt, — segja daglega frá einhverjum leið- inda atburðum, allt frá áflogum drukkinna manna, í sambandi við vændiskonur, til alvarlegra glæpa, sem venjulega eru sprottnir af af- brýðisemi. Fyrir tveim árum myrti amerísk- ur hermaður einn af öryggisvörðun- um, en þeir voru báðir í ástasam- bandi við sömu konuna. Nýlega var vietnömsk barstúlka myrt, skotin til bana, við svipaðar kringumstæður. Eitt Saigonblaðanna sagði þannig frá þeim atburði: „Nágrannarnir sögðu að maðurinn sem skaut hana hafi verið vinur hennar. Þau bjuggu saman eins og hjón, án þess að vera gift, og það er mjög algengt í Vietnam. Morðið var framið í af- brýðikasti, „maðurinn hennar" hafði komið að henni allsnakinni með einum kunningja sinna." Það er nokkuð algenqt að mæð- ur ungra telpna kæri hermennina fyrir að tæla dætur þeirra, og viet- namskir hermenn hafa kært eigin- konur sínar fyrir það að búa með amerískum hermönnum. Lögrealan í Vietnam gerir oft húsleit í vændishúsum, sem her- mennirnir sækja. „Þá „frelsa" þeir oft barnungar stúlkur, sem hafa verið „pfndar" til að gerast vænd- iskonur, og ef hermennirnir eru gripnir á staðnum, þá eru þeir færðir til aðalstöðva hersins. Þeir sleppa venjulega með áminningu. Stúlkur í Vietnam, sem eru í vin- fengi við og ó einhvern hátt samn- ingsbundnar amerískum, óbreyttum hermönnum og liðsforingjum, og „tedrykkjustúlkurnar" í Saigon, fara að nokkru leyti eftir óskrifuðum lögum og verðlagsákvæðum. Flest- ar þessar stúlkur eru fiðrildi, sem fljúga frá einum til annars, og oft ganga þær að erfðum, þannig að sá sem fer heim að þjónustu lok- inni bendir kunningja sínum á fyrr- verandi vinkonu sína. Sumar þessar stúlkur eiga börn, ýmist með Ame- ríkumönnum eða löndum sínum. Þær koma þessum börnum fyrir á barnaheimilum og á einkaheimilum. Það kostar um það bil 50 dollara á mánuði. Þrátt fyrir vandræði, sem skap- ast af langri hersetu, eru Ameriku- menn yfirleitt vel látnir og hafa á sér heiðarleikaorð. Ein Mama-san (forstöðukona vændishúss) sagði: — Bandaríkjamenn eru miklu heiðar- legri í viðskiptum en þeir sem áð- ur hafa haft hersetu hér, eins og Frakkar, Kínverjar og Japanir." Venjulegustu samningar eru að stúlka sem heldur við hermann fær um 150 dollara á mánuði. Fyrir það hugsar hún um lítið hús, (sem hann leigir fyrir 100 dollara á mónuði), e'dar fyrir hann, þjónar honum og er auðsveipur rekkjunautur. Stund- um skipta tveir hermenn á milli sín bæði stúlkunni og reikningnum, og það hefur heyrzt að jafnvel fjór- ir til fimm hermenn séu í félagi með sömu stúlkuna. Vikulega fær stúlkan „eiginmanninum" (eða „eig- inmönnunum") lista yfir það sem hún þarfnast til hússhaldsins, og það kaupir hann í PX (hermanna- verzlunum). Hann fær líka annan lista yfir það sem hún sjálf þarf að nota, vörur sem hún selur ná- grönnum eða selur í gegnum Ma- ma-san eða miðlara, sem flestir eru í lögreglunni eða eru njósnarar fyrir Vietcong. Ágóðinn af þessari verzlun (vörurnar eru oft stolnar) rennur í hennar eigin vasa. Ef hún verður barnshafandi fær hún pen- inga til að láta evða fóstrinu, en oft finnast börn á götunum, eða fljótandi í Saigonánni. Hermenn sem búa með „eigin- konu", hafa alveg fastmótaða áætl- un, sem þeir fara eftir. Þeir fara til bragga sinna um hádegið, láta hreinan fatnað niður í tösku, (þess- ar töskur eru kallaðar RON; sem þýðir „remain over night") sem þeir hafa með sér, og fara svo beint frá vinnu sinni til vinkonunnar, þar sem þeir dvelja til næsta morguns. Það er töluvert um það að þess- ar stúlkur haldi fram hjá. Stúlkur í Vietnam eru töluvert fyrir það að veðja, oa þegar þær tapa, eða kom- ast á einhvern hátt í peningahrak, gera þær annað hvort; að selja sjálfa sig á daginn eða stunda njósnir, sem þær fá borgað fyrir. Það eru menn frá Vietcong og lög- reglan sem nota þessar stúlkur til njósna, og þótt upplýsingar sem þær gefa séu ekki alltaf mikils virði, þá eru þær oft notaðar til fjárkúg- unar. Reglur og félagskerfi barstúlkn- anna í Saigon og öðrum borgum, eru mjög fastmótaðar. Flestar eru á árssamningi, og það er mikið til- lit tekið til starfsaldurs. Hver stúlka fær númer hjá Mama-san, og það er sett á hvern reikning yfir „te", sem hún selur hermanni eða öðrum viðskiptavini. Þótt þær skipti tekj- unum með Mama-san, þá leggja þær 15% af tekjum kvöldsins, í einskonar tryggingarsjóð, en fá það oftast greitt eftir ársstarf. Ef ein- hver stúlka missir nótt úr, þá verð- ur hún að borga 1.500 pjastra (12 dollara) í sjóðinn, og það fær hún stundum endurgreitt. Flestar stúlk- urnar hafa herbergi, sem þær borga 50 dollara á mánuði fyrir, og þang- að fara þær með fylgdarmenn sína. Þær senda líka svipaða upphæð manaðarlega til foreldra sinna. I byrjun hvers mánaðar er það al- geng sjón að sjá þær í biðröðum við pósthúsin, þar sem þær ganga frá peningasendingum sínum. Stúlkurnar hafa líka félag með sér til tryggingar. Ef hermaður fer frá einni stúlku til annarrar, þá er hann vinsamlega beðinn um að fara eitthvað annað. Stúlkurnar múta oft lögreglunni til að láta þær hafa tvö nafnskírteini. Þá skrifa þær sig „testúlkur" á annað og nemanda á hitt. Þetta kemur sér oft vel, þegar þær lenda í vandræðum. Ef stúlka verður barnhafandi, eða lendir í ein- hverjum öðrum vandræðum, þá taka hinar saman höndum um að hjálpa henni og sjá til að hún njóti réttlætis. Þegar ný stúlka kemur á barinn, reyna þær að fá viðskipta- vinina til að verzla við hana, þang- að til hún er komin á græna grein. í seinni tíð hefir börum verið iokað (sumir eru búnir að opna aft- ur undir lögregluvernd), og þá urðu stúlkurnar að setjast að á ódýrum hótelum, og þar hafa þær orðið Framhald á bls. 48. 37. tbi. VIKAN 45

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.