Vikan - 16.01.1969, Page 24
tfTH?
ANDRÉS INDRIÐASON
Mick Jp.sser og Marianne Faitfull hafa bæði snúiö
sér r.ð kvikmyndaleik.
Ringó Starr lék í kvikmyndinni „Candy“ ásamt Ric-
hard Burton og öðru frægu fólki. Hér dansar hann
við Elísabetu.
VINSÆLIR SÖNGVARAR í
KVIKMYNDUM
Þeir, sem starfa að gerð kvikmynda, sjá
oft hag sinn í því að fá vinsæla og
þekkta söngvara eða jafnvel heilar hljóm-
sveitir til að koma fram í myndunum, oftast
að visu sem innskotsnúmer í sjálfan sögu-
þráðinn og þá til þess eins að laða unga fólk-
ið, aðdáendurna, að myndinni. Á síðari árum
hafa kvikmyndagerðarmenn treyst pop-fólk-
inu fyrir viðameiri hlutverkum og hafa til
dæmis heilar kvikmyndir verið sniðnar fyrir
vissar hljómsveitir. Þegar um slíkt var að
ræða áður fyrri, voru þessar myndir harla
ómerkilegar og lítið í þær spunnið, en nú á
þessum ísðustu tímum bregður svo við, að
víða bregður fyrir skemmtilegum og jafnvel
listrænum tilþrifum í þeim myndum, sem
gerðar eru í kringum pop-fólkið. ylttla má,
að Bítlarnir hafi hér riðið á vaðið. Myndir
þeirra, „A Iiard Days Night“ og „Help“ þóttu
um margt athyglisverðar og þær voru sann-
arlega góð auglýsing fyrir poppið út á við.
Á þessu ári hafa margar þekktar hljómsveit-
ir og þó einkum söngvarar og söngkonur
leikið í kvikmyndum. Nefna má Cillu Black,
Cill?. Black og David Warner leika aðalhlut-
verkin í kvikmyndinni „Work is a four letter word“.
Elvis og Nancy Sinatra í kvikmyndinni „Speedway“.
Teiknimynd Bítlanna þótti misheppnuð.
24 VIKAN 3 tbl