Vikan


Vikan - 16.01.1969, Page 43

Vikan - 16.01.1969, Page 43
er komin til að búa hjá þér. Amma er dáin, og langt í burtu. — Manjane? Og þú vilt búa hjá mér? Velkomin! Ég er í fullri þörf fyrir hjálp þína. En hve þú ert falleg. Svo horfði hann á mig. — Hann heitir Arpad, sagði hún rólega. — Hann hefir verið mér góður. Móðurbróðirinn rétti mér höndina. Ég sá að þetta var góður maður. Hann muldi kaffi í mortélinu og hrærði það út í graut og bætti sykri í. Við borð- uðum það úr örsmáum bollum. Ég hafði aldrei borðað kaffi fyrr, og mér þótti það ekki gott. Ég var hissa á því að hann skildi láta Manjane sitja á veit- ingastofunni. Hann las hugsanir mínar og sagði: — Það kemur enginn hingað um þetta leyti dags. Kona, sem var nokkuð lík hon- um, gægðist gegnum tjaldið og sagði ísmeygilega: — Velkomin barnið mitt! Hún brosti. Hún var með þrjár hök- ur. Hún var eins og fjall af feiti og óhreinindum. En hún hafði einu sinni verið fegursta stúlkan í Bralavan. Hann hafði borgað föður hennar offjár fyrir hana. Ég hugsaði með mér: — Hún er ekki líkt því eins góð kona og hann er maður, og hún er ekk- ert hrifin af því að Manjane er komin til þeirra. Manjane lagði höndina á öxl mér, — þannig eru vinir kvaddir í fjöllunum, — og ég hneigði mig næstum því eins og herramaður, og flýtti mér út. Gyðingurinn Horovitch veifaði til mín. — Ertu komin til Bralav- an svona snemma? Komdu, ég ætla að sýna þér nokkuð! Af því að það ert þú, slcaltu fá þetta næstum gefins .. .. Ég hafði ekki hugsað mér að kaupa neitt fyrr en um haustið, en ég fór samt inn til hans. Hann var alltaf í góðu skapi, gat verið skemmti- legur og allir veiðimennirnir verzluðu við hann. Nú rétti hann mér fallegt vopn, riffil með greiptu skefti. Ég sagði honum að ég ætti þrjár byssur heima. Svo gekk ég um búðarholuna hans og rótaði í vörunum, skoð- aði vatnsrör og ýmislegt annað, sem ég hafði engin not fyrir. — Hvað er þetta? spurði ég. — Þetta er sjónauki, Arpad, sjónauki. Þú gætir notað hann þegar þú ert á veiðum, þegar þú ert að veiða fisk og skjóta end- ur, og þú skalt fá hann næstum því ókeypis. Ég gerði það með vilja að horfa í öfugan enda. Hann hló og sneri honum við. Ég sá langt yfir vatnið, fjöllin og jökullinn færðust nær. — Ég sé ekkert, sagði ég ergi- legur. Mér þótti gaman að stríða þessum gamla gaur. — Klaufi! öskraði hann. Hann horfði, skrúfaði, talaði og sló út örmunum, og svo nefndi hann hæfilegt verð. — Oh, sagði ég og sýndi á mér fararsnið. Hann elti mig. Það var örugglega enginn sem vildi kaupa sjónauka í Bra- lavan. Hann var reglulega góður og mig langaði mikið til að eiga hann. Að lokum komum við okk- ur saman um verðið, og ég lét hann geyma sjónaukann. Þetta var reglulega skemmtilegur leik- ur, maður á móti manni. Að öll- um líkindum hafði hann ekki borgað nema helming þessa verðs. Hann prúttaði af ákafa um skippund af þurrkuðum fiski, en ég sagði honum að það væiú til- gangslaust, hjá mér væri aðeins um eitt verð að ræða. Ég vissi að þegar liði að hausli myndi hann panta fimm til sex skip- pund. Fiskurinn minn var bein- laus, hvítur og þurr. Ég þvoði hann upp úr geitamjólk og þurrkaði hann vel. — Arpad, þú ert ræningi, öskraði hann. — Ætlarðu að flá vesalingings, fá- tækan kaupmanna inn að skinn- inu? Svo fórnaði hann höndum, sneri lófunum upp og yppti öxl- um, þóttist vera hrjáðastur af öllum mönnum. Ég hló og sagði: — Ég skal halda eftir einhverju af fiski handa þér. Lofaðu mér að sjá það tau sem þú hefir, ég þarf bæði vinnuföt og spariföt. — Ó, spariföt líka? Já, ég sá konuna sem þú varst með áðan, hún er falleg. Svo sýndi hann mér brosandi þau efni sem hent- uðu mér. Ég vildi fá víðar, gul- brúnar buxur, rauðan silkilinda um mittið, og stuttan jakka. Næstum allir veiðimennirnir áttu slík föt, en ég hafði aldrei eign- azt þau. Armeninn hinum megin við götuna tók af mér mál og þukl- aði á efnunum. Hann sagði þetta vera góð efni. Ég fékk líka að sjá myndir af fötunum í bók, og svo spurði ég: — Viltu fá pen- ingana strax? — Þú mátt borga þetta þegar þér hentar, svaraði hann. Ég borgaði strax, en það gladdi mig að hann sýndi mér tiltrú. Ar- menar eru mjg nákvæmir og þeir vita hvað þeir eru að gera. Hann pantaði líka fisk hjá mér, stuttlega og án þess að prútta. Hann vissi að fiskurinn var þess virði, sem ég setti upp. Teppakaupmað.urinn bjó i eld- gömlu steinhúsi, hinum megin við torgið. Hann ók vatni í stór- um kerjum heim til sín, og gras- ið kringum húsið hans var grænt og vel sprottið, þrátt fyrir þurrkana. Þegar ég kom inn til hans, klingdi í lítilli geitabjöllu, og hann kom strax fram. Húsið var stórt, mörgum sinnum stærra en húsið mitt. Meðfram veggjunum voru háir hlaðar af teppum, sem voru þaktir strámottum. Þetta voru teppabirgðir ríkasta manns- ins í Bralavan. Annars tók ég Hinar vinsælu bækur um Angelique eftir SERGE og ANNE GOLON, fást hjá næsta bóksala eða í næstu blaðasölu Angelique Angelique og kóngurinn Angelique og soldáninn í heftum. 3. tbi. yiKAN 43

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.