Vikan


Vikan - 16.01.1969, Qupperneq 48

Vikan - 16.01.1969, Qupperneq 48
Framhald af bls. 31. Hann þaut út og reif upp dyrnar á herbergi Fleur. Hún lá al- klædd í rúminu og Soames varð það ljóst að hún hafði verið á ferli. Hann hristi hana. — Málverkasalurinn er að brenna, hrópaði hann. — Vektu þjón- ustufólkið og sjáðu um að það verði hringt til slökkviliðsins, og flýttu þér nú! Hann stóð kyrr þangað til hann sá að hún var vöknuð, og hljóp svo upp aftur, með slökkvitæki í höndunum. Eldurinn hafði gripið um sig. Nú var hann kominn að David. Cox málverkunum, og var um það bil að ná til Co?rstabie-myndarinnar. Hann sleppti slökkvi- tækinu og hljóp að myndinni. Hann sveið í andlitið, meðan hann náði málverkinu niður af veggnum og reisti það upp í gluggakist- una. Salurinn var orðinn fullur af reyk, en honum lánaðist að koma slökkvitækinu í gang, og hann sá, sér til léttis, að það hefti út- breiðslu eldsins. Ilann ætlaði að bjarga Stevans málverkunum og Gauguin og Corot myndunum. Og Monet svolítið utar á veggnum. Það tæki örugglega tuttugu mínútur að koma slökkvitækjunum á staðinn. Hann æddi að Gauguin-málverki af nakinni Suðurhafseyjastúlku. Hann greip um vírinn, en hann var glóandi heitur, svo hann greip um rammann og kippti í. Málverkið losnaði af veggnum, en hann datt sjálfur aftur á bak. Svo stóð hann upp og setti málverkið upp að hinum við gluggann. Hvar var Riggs og hitt fólkið. Það varð, að setja teppi undir gluggann, svo hann gæti kastað málverkunum út. Hann sá að eldurinn var að komast í Monet-myndina, grteip hana og þaut að stiganum. Tvær dauðhræddar stúlkur voru á leið- inni upp stigann, klæddar kápum utan yfir náttklæðunum. —- Hérna, kallaði hann. — Takið við málverkinu og reynið að vera rólegar. Það er engin hætta á ferðum .... — Pabbi! Þarna var Fleur með slökkvitæki. — Farðu niður, farðu út. Það verður að strengja teppið, svo ég geti kastað málverkunum út, og í guðs bænum reynið að halda fast í teppið. Hann horfði á hana, þar til hún var komin niður. Þá flýtti hann sér inn í málverkasalinn aftur, með slökkvitæki í höndunum. Þarna var skrifborðið hans í logum. Hann beindi slökkvitækinu að því, en gat varla valdið þessum þunga hlut, og þegar hann fleygði því tómu frá sér, sá hann varla út úr augunum. En það hafði samt svolítið dregið úr eldinum. Bara að hann gæti nú haldið þetta út! Hann þaut meðfram lengsta veggnum, náði mynd eftir mynd nið- ur. En þá æstist eidurinn, þetta var eins og glóandi víti. Hann varð að ná í Daumier, líklega bezta málverkið sem hann hafði eignazt um ævina. Hann sleit það niður af veggnum. Ur gluggan- um sá hann fjórar stúlkur halda út teppinu. — Haldið þið fast, kallaði hann til þeirra og svo fleygði hann Daumier út. Þvílík meðferð á svo stórkostlegu listaverki. Teppið lét undan þunganum, en það hélt. Hann lét hvert málverkið eftir annað falla, og sá að stúlkurnar lögðu þau í grasið. Þegar hann sneri sér við, sá hann að eldur var kominn í gólfið í innsta horninu, og breiddist meðfram veggnum. Slökkviliðið kæmi líklega nógu snemma til að bjarga veggnum tii hægri, en sá til vinstri var eiginlega alelda. Hann varð samt að reyna. — Guð minn góður! í dyrunum fyrir aftan hann var Riggs loksins kominn og hált á tveimur slökkvitækjum. — Þegiðu, stundi Soames, — sprautaðu á vegginn, maður. Hann sá eidinn víkja undan bununni. — Þér verðið að koma niður, sagði Riggs, — annars neyðist ég til að draga yður niður. — Þegiðu, og hjálpaðu mér! Þá kom hann auga á Vendinia eftir Goya, málverkið sem honum hafði alltaf þótt svo vænt um, vegna þess að stúlkan á myndinni var svo lík Fleur. Hann greip það og bar það út að glugganum, en þá var hann að niðurfalli kominn og fann að hann gat ekki meir. Sterkir armar báru hann út undir bert loft. Þar komst hann til sjálfs sín, sitjandi í stól á veröndinni. Slökkviliðið var komið og Soames lokaði augunum og hlustaði á suðið, þegar vatnið náði logunum. Þeir gætu líklega bjargað því sem eftir var. Þetta hefði getað verið verra. En það, var líklega bezt að hann reyndi að taka við stjórninni aftur, þeir gerðu örugg- lega einhverja vitleysu. Allt þetta vatn gat auðvitað eyðilagt það sem eftir var. Soames stóð upp með erfiðismunum, til að sjá betur hvað væri að ske. Hvar var Fleur? Nú þarna stóð hún, en allt of nálægt hús- inu. Ó, þeir máttu ekki eyðileggja myndirnar með öllu þessu vatni, þessir asnar, það var svo sem eftir þeim. Þeir voru farnir að sprauta á heila vegginn gegnum gluggana. Það var þó sannarlega óþarfi. Hann staulaðist með veikum mætti til slökkviliðsmannanna. — Ekki sprauta á þennan vegg, það er enginn eldur þar. Þið megið ekki eyðileggja málverkin mín. Slökkviliðsmaðurinn sveigði sprautuna svo bununa stóð á gluggakarminn, rétt þar sem „Vendinia“ stóð. Málverkið hallaðist við vatnsbununa. Og Fleur, hún stóð undir málverkinu og horfði upp í loftið. Er. hún hreyfði sig ekki úr stað og því sló eins og eldingu niður í huga Soames að hún hefði hug á að farga lífi sínu... — Það er að detta! öskraði hann. — Varaðu þig! Honum fannst eins og hann sæi hana vera að kasta sér fyrir framan bíl á fullri ferð. Hann æddi til hennar og ýtti henni til hliðar með útbreiddum örmum — og datt. Málverkið. hitti hann og felldi til jarðar.. Soames var á lífi, en það var líka allt og sumt. í tvo sólarhringa hafði verið vakað yfir þessum líkama, sem allur var í umbúðum. Sérfræðingar höfðu kveðið upp sinn dóm, það var ekkert hægt að gera. Fjölskyldulæknirinn gaf út þá fyrirskipun að vakað skyldi yfir honum, og sagði að hafa skyldi gætur á augum hans. Ef einhver minnsta breyting yrði, átti að senda tafarlaust eftir honum. 48 VIKAN 3-tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.