Vikan - 06.11.1969, Síða 7
sér ekkert athugavert við J»að,
þótt karlmenn eigi sér vinkon-
ur og skrifist á við þær, en þeg-
ar bréfin eru orðuð á þann hátt,
sem þú segir frá, þá fer málið
óneitanlega að vandast. Hvernig
væri, að þú létir reyna á hug
hans til þín með því að gjalda
honum í sömu mynt? Þú gætir
til dæmis farið að skrifast á við
einhvern og komið því svo fyr-
ir, að hann rækist á bréfin. Það
væri fróðlegt að vita, hvernig
hann mundi bregðast við slíku.
Björgvin, Björgvin,
Björgvin
Kæra Vika-
Gætir þú ekki birt viðtal við
vinsælasta söngvarann og pop-
stjörnu ársins, Björgvin Hall-
dórsson? Og gaman væri líka að
fá litmynd af honum á forsíð-
una. 'Ég er ákveðin í að ramma
hana inn og setja upp á vegg
fyrir ofan rúmið mitt.
Bless.
Solla.
Okkur hafa borizt margar beiðn-
ir um myndir af þessari vinsælu
stjörnu, Björgvin Halldórssyni.
Og við getum glatt hina mörgu
aðdáendur hans með því, að inn-
an skamms birtist langt viðtal
v>ð hann hér í Vikunni með ót-
almörgum myndura, þar á með-
al forsíðumynd í litum.
Helgi og Jón Þór
Kæri Póstur:
Fyrst af öllu langar mig til að
þakka þér kærlega fyrir allt
gamalt og gott sem þitt ágæta
blað hefur birt; mér finnst VIK-
AN hafa batnað til muna nú í
seinni tíð.
En ástæðan fyrir þessu bréfi
er einfaldlega sú, að mig langar
til að biðja þig til að koma þökk-
um fyrir mig til þeirra Helga
Péturssonar og Jóns Þórs Hann-
essonar, fyrir útvarpsþáttinn
þeirra. f allt sumar hef ég hlust-
að á hann og aldrei fengið nóg.
Þess vegna held ég að mér sé
óhætt að segja að þáttur þeirra
félaga var með því bezta út-
varpsefni sem ég hef nokkru
sinni hlustað á. Fór þar saman
einstaklega gott lagaval og stór-
skemmtilegar kynningar.
Beztu þakki, Helgi og Jón Þór.
Kveðja,
el Hamid.
Pósturinn er alveg sammála og
kemur þessu á framfæri.
Nútímabörn
Heiðraða Vika:
Hvernig er það, er söngflokk-
urinn Nútímabörn hættur að
syngja? Ef svo, af hverju og
hvað eru meðlimirnir farnir að
gera?
Vonast eftir svari.
Fólkus.
Jú, Nútímabörn munu vera
hætt, og skeði það um mánaða-
mótin ágúst/september. En fljót-
lega er væntanleg 12 laga hljóm-
plata með söng þeirra, og svo
getum við lilustað á þau syngja
hér og þar. Og okkur hefur skil-
is< að allir meðlimir flokksins
séu eitthvað að syngja ennþá:
Ágúst Atlason er í Ríó-tríóinu,
Snæbjörn Kristjánsson er í Fiðr-
ildi, Sverrir Ólafsson er i Árið
2000 og daman, Drífa Kristjáns-
dóttir hefur verið að syngja á
Keflavíkurflugvelli með íslenzkri
hljómsveit.
Strætó
Ágæta blað:
Ég hefi nokkrum sinnum orð-
ið var við að fólk hefur verið að
þrasa út af framkomu strætis-
vagnabílstjóra í dálkum þínum.
Vel má vera að sitthvað sé til í
þessu nöldri, en ég veit um und-
antekningu, og sjálfsagt eru til
fleiri. Á morgnana fer ég í vinnu
klukkan 9, og tek þá venjulega
leið nr. 20. Sá bílstjóri (venju-
lega sá sami) er slíkur séntil-
maður að fátítt er. Hann er akkú-
rat eins og starfsmenn S.V.R.
eiga að vera. Viltu skila kveðju
til hans frá mér.
J.H.
Þetta var ánæg.iulegt bréf, og
Pósturinn kemur hér með þess-
ari kevðju á framfæri svo og
kveðju til allra „strætókalla.“
Það sem
sannara reynist
Kæri Póstur:
Ég var að enda við að lesa í
blaðinu hjá ykkur að James De-
an hefði dáið í kappakstri, en
það er bara ekki rétt. Hann var
að koma af kappakstri og var á
vörubíl þegar hann keyrði út af.
Þið hefðuð kannske gaman af
að vita það, að nokkrir fram-
takssamir náungar tóku sig til
og keyptu bílflakið og seldur það
í smábútum sem minjagripi.
Auðvitað græddu þeir, og á end-
anum voru þeir búnir að selja
30—40 bílflök —- sem það eina
og sanna er James Dean lét líf
sitt i.
Afsakið ónæðið,
Danni.
Kg ætla ekki að þræta fyrir
sannleiksgildi bréfs þíns, en í
öllum opinberum yfirlýsingum
um dauöa Dean's var sagt að
hann hefði látið lífið í kapp-
akstri. Ef til vill hefur hann
verið í kappakstri við sjálfan
sig á vörubílnum . . .
Strákurinn, sem 6g er með,
gaf mór minnsta kveikjara sem
ég hef séS — svo lítinn að ég tn
varla nógu litla stelna ( hann.
Annar strákur gaf mér kveikjara,
sem hann keypti ( siglingu
— honum er fleygt þegar
hann er tómur. Ekki man ég,
hvorn ég lét róa fyrr,
kveikjarann eða strákinn.
Ég er ailtaf aS kaupa
eldspýtur, en þaar misfarast
meS ýmsum hastti.
En eld þarf ég aS hafa.
Hver vill
gefa mér
RONSON?
Mig langar svo í einhvern af þessum
Adonls gas kveikjari
Empress gas kveikjari
Milady gas kveikjari
Comet gas kveikjari
Til gefenda RONSON kveikjara: ÁfylHngtn tekur
5 sekúndur, og endist svo mánuSum skiftir. Og
kveikjarinn. — Hann getur enzt aS eilifu.
RONSON
Einkaumboð:
I. Guðmundsson t Co. hf.
45. tw. yiKAN 7