Vikan


Vikan - 06.11.1969, Qupperneq 37

Vikan - 06.11.1969, Qupperneq 37
— Hvers vegna ertu að væla? sagði hann. — Hvað ætlaðirðu þér með þessu háttalagi? — Ekkert, sagði hún vesældar- lega. — Mér er bara svo kalt á tánum. Og þá fór hann að hlæ|a. Hann hló, svo að henni fannst trén hlæja með honum, svo að snjórinn féll af þeim, og hún bjóst líka við að snjórinn bráðnaði og vorlaukarnir færu að stinga upp kollunum. — Af öllum litlum kjánum, ert þú alveg í sérflokki. Hann veifaði í leigubíl, sem nam svo fljótt staðar að það ískraði í hemlunum. Hann tróð henni inn í bílinn og sagði bílstjóranum heimilisfangið hennar. Þegar bíllinn bremsaði fyr- ir utan hliðið hjá henni, borgaði hann bílstjóranum og kom með henni inn. Hann ýtti henni inn í lyftuna og tók af henni lyklana. Þegar þau komu inn, hellti hún víni í tvö glös, og drakk út úr sínu, í einum teig. — Hvernig gengur það með tærnar? sagði hann. — Hvað kemur það þér við, sagði hún, og var nú orðin herská aftur. — Ég ætla að tala við þig, og drekka þetta vín, sem þú varst að bjóða mér upp á. Þú ert ekki svo örugg lengur. Það var ég ekki heldur, þegar þú komst á stefnu- mótið, með gljáandi nefið, og ekki batnaði það, þegar þú narraðir mig út í dýragarðinn, og varst nærri bú- in að gera út af við okkur bæði af kulda. — Ég hefði líklega átt að eyða tveim tímum í að bursta hárið og maka mig alla út til að þóknast þér. Ég hefði auðvitað átt að brosa blítt, eins og engill, og þakka for- sjóninni fyrir að annars eins karl- maður fyndist á þessari jörð, og hefði látið svo lítið að bjóða mér í bíó, auðvitað með einhverjum hlunnindum á eftir. Ég sagði. hlunnindum á eftir. Ég hefði... — Anna! sagði hann. — Veiztu hvað ég gerði, þegar þú varst bú- in að lofa því að koma með mér í bíó? Ég rakaði mig. Ég fór í bað. Ég vatnskembdi á mér hárið. Ég hugsaði í þaula um hvað ég ætti að tala við þig. Ég taldi peningana mína, til að vita hvort ég hefði ekki ráð á því að bjóða þér út að borða, já, ég hafði jafnvel hugsað mér glas af víni. Hún sat þögul og horfði niður á gólfteppið, fylgdi með augunum blárri rönd, þar til hún dó út í rauðum kanti. — Þannig er þetta, Anna, sagði hann svo. Þetta er kannski kjána- legt, en samt er þetta rétt og gott, það finnst mér að minnsta kosti. En þetta er aðeins byrjunin, en svo kemur sá tími að allt verður með eðlilegra móti. Við erum kannski feimin að láta í Ijós óskir okkar, og verðum óeðlileg þegar við reynum að dylja það. — Fyrirgefðu mér, sagði hún. Nú varð henni Ijóst hvernig hann var, þessi Tómas var að 'fá á sig mynd. En hún vissi ekki hug sinn ennþá, hún var svo utan við sig. — Ertu að spyrja hvort mér sé — Vitleysa, sagði hann. — Þú þarft ekki að biðja fyrirgefningar. Heldurðu ekki að ég hafi þúsund sinnum óskað þess að gera það sama sem þú gerðir, til að breyta eitthvað út af venjunni? Gefa dauð- ann og djöfulinn í háttbundnar venjur, og sjá hvað þá skeði. En ég hefði aldrei þorað að gera það gagnvart þér, ég var of hræddur um að missa af þér. Hún fann glóðina innra með sér, og ylinn sem sat eftir. ískaldur næðingurinn var horfinn. Nú voru litirnir bláir, sem vorblóm og gleiym-mér-ei. — En þú sagðist ekki vilja hátta hjá hverri sem væri, sagði hún, og streyttist ennþá við að vera köld. — Ég stend við það, sagði hann. — Og ég ætla ekki að fara frekar út í þá sálma nú. Ef þú getur ekki tekið gullhömrum, þá er það sjálfri þér að kenna. Það kemur allt á sínum tíma, Anna! Allt á sínum tíma, Anna! Loksins skildi hún hvað hann átti við. Þann- ig var það nú, á tímum hans og hennar. Með tímanum veit maður hvort neistinn er til staðar. Þetta var eins konar frumstæður dans. Vilt þú mig? Vil ég þig? Við verðum að læra að þekkja sálir hvors annars. Vil ég þig, Tómas? Vilt þú mig, sem er kölluð Anna, og sem er fá- vís stúlka, sem ekki veit hvað er fyrir beztu. Þau vissu það hvorugt ennþá. — Svo er það þetta með mat- inn, stendurðu ennþá við boðið, eða iðrastu eftir það? — Alls ekki, sagði hann og bros hans yljaði henni. Veizt þú um ein- hvern notalegan og rólegan stað, þar sem við getum fengið okkur að borða, og rabbað saman; þar sem andrúmsloftið er skemmtilegt og rómantískt? Henni datt í hug lítil kjallara- veitingastofa, þar sem dúkarnir voru rauð og hvítköflóttir og kerta- Ijós á borðunum. Þar vildi hún sitja með Tómasi, einmitt með Tómasi og engum öðrum. — Fáðu þér glas í viðbót, það getur tekið mig nokkuð langan tíma að gera mig þokkalega, settu plötu á fóninn. Nú vil ég vera fín þín vegna, hugsaði hún, eins og þú vildir taka þig vel út fyrir mér, þótt ég skildi það ekki. Og þú sem ert eins og mjóvaxin dvergfura, Tómas. Og ég yrði ekk- ert hissá á því þótt mér fari að þykja dvergfurur fallegar, ☆ r----------------n HafMathahiit INNI OTI BÍLSKÚRS SVALA HURÐIR JfhHi- & Íftikurlir H □. VIUHJÁLMSSDN RÁNARGÖTU 12 SÍMI 19669 V r---- ----------------'n Wiitker bríhiel fást í þrem stær&um. Einnig reiðhjól í öllum stærðum. 45. tbi. VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.