Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 6
MIOA
PREIMTUIM
HILMIR HF
SKIPHOLTI 33 - SÍMI 35320
RÍÖ-tríóið
Kæri Póstur!
Getur þú gefið mér heimilis-
föngin hjá þeim Helga Péturs-
syni og Ólafi Þórðarsyni í Ríó-
tríóinu?
Svo þakka ég fyrir allt gott í
blaðinu; það mætti vera meira
af góðum smásögum — ekki eins
og þeim sem hafa verið undan-
farið.
Svaraðu fljótt.
Tvær vinkonur á Akureyri.
P.S. Hvernig er skriftin?
Ólafur á heima að Skálaheiði
3 í Kópavogi og Helgi á Digra-
nesvegi 117, Kópavogi.
P.S. Ekki nógu falleg, en þó
vel læsileg.
RÍO enn . . .
Kæri Póstur!
Getur þú sagt mér eitthvað um
hann Helga Pétursson í Ríó-tríó-
inu? Hvað er hann gamall?
Með fyrirfram þökk,
Þcrey.
P.S. Hvernig er skriftin?
Það er í hauninni erfitt að
segja þér „eitthvað", en þó get-
um við frætt þig á því að Helgi
er rúmlega tvítugur, fæddur 28.
maí, 1949.
P.S. Alveg ljómandi falleg!
. . . o? enn . . .
Kæri Póstur:
Við viljum fyrst og fremst
þakka þér fyrir allt gamalt og
gott; við höfum skrifað þér áð-
ur og fengið mjög gott svar. Nú
vonumst við til að fá jafn gott
svar og síðast.
Okkur langar til að fá að vita
eitthvað um þá félaga í Ríó-tríó-
inu. Hvenær þeir eru fæddir,
hvort þeir séu í skóla og HVORT
ÞEIR SÉU BUNDNIR?
Viltu segja okkur allt sem þú
veizt um þá. Við óskum þeim alls
hin bezta í framtíðinni.
Tvær 17 ára skvísur.
P.S. Hvernig getum við haft
samband við þá án þess að fara á
böll þar sem þeir leika fyrir
dansi?
Sömu skvísurnar.
Vinsældir piltanna aukast jafnt
og þétt, dag frá degi og hér rign-
ir bókstaflega yfir okkur bréfun-
um.
Eins og segir í bréfinu hér á
undan er Helgi fæddur 28. maí,
1949, Ólafur er fæddur 16. ágúst
1949, og Ágúst, sem er nýi með-
limurinn í tríóinu, er fæddur 12.
júlí, 1950 — hann á heima í
Heiðargerði 37. Ólafur er trúlof-
aður en hinir ekki, og hann og
Ágúst eru í Tónlistarskólanum
en Helgi í fjórða bekk Kennara-
skóla íslands.
P.S. Þú getur alls ekki haft
samband við þá þar sem þeir
„leika fyrir dansi“, því þeir leika
aldrei fyrir dansi; koma aðeins
fram sem skemmtiatriði.
Svar til einnar að
norðan
í 42. tbl., 1969, er viðtal við frú
Maríu Dalberg, eiganda Snyrti-
stofunnar Maju, og þar geturðu
fengið allar upplýsingar um
snyrtingu — en bezt er að hafa
samband við snyrtistofurnar
sjálfar.
Nýstárleg
klúbbhugmynd
Kæri Póstur.
É'g er einn af þeim ótalmörgu
sem hafa mikinn áhuga á alls-
kyns stjörnuvísindum, ég les
alltaf stj örnuspárnar í Vikunni
og las líka greinarnar um
stjörnumerkin, sem þið birtuð
fyrir skömmu. Ég veit að margir
setja upp merkissvip þegar á
svona nokkuð er minnst og segja
að þetta sé heimskulegt og ekk-
ert að marka það, en mér vitan-
lega hefur það ekki sannast. Hinu
er ekki hægt að neita að margt
í þessum stjörnuspádómum kem-
ur fram, og oft passa lýsingamar
á stjörnumerkjunum ótrúlega vel
við fólk, sem fætt er í merkjun-
um.
f síðustu Viku las ég grein um
ball, sem fólk fætt í sporðdreka-
merkinu hélt, Richard Burton,
Grace prinsessa í Monaco og eitt-
hvað fleira frægt fólk. í sam-
bandi við þetta datt mér í hug
nokkuð sniðug hugmynd. Hvern-
ig væri að fólk fætt í hinum
ýmsu merkjum tæki sig saman
og stofnaði klúbba, til að kynn-
ast og skemmta sér og svo fram-
vegis? Svoleiðis hefði kannski
ekki mikið gildi, en gæti þó ekki
væri annað fjörgað upp á félags-
lífið, sem er frekar dapurlegt og
þvingað hér í höfuðstaðnum, eða
svo finnst mér og fleirum. Þetta
yrðu auðvitað að vera lokaðir
klúbbar og auk þess beinlínis að
skemmta sér og kynnast gætu
þeir vel, ef þokkalega tækist til,
staðið fyrir einhverjum félags-
og menninearmálum. Það væri
lika fróðlegt að sjá í hvaða átt
starfsemi þessara klúbba beind-
G VIKAN
4. tbl.