Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 7
ist, skyldi það verða í samræmi
við þau áhugamál, sem sagt er
fólk í hinum ýmsu stjörnumerkj-
um hafi? Þannig eru ,,hrútarnir“
sagðir frumstæðir og tillitslausir
áhlaupamenn, „nautin“ nokkuð
kynferðisleg, „tvíburarnir" fjör-
ugir og „kommersíal“ og svo
framvegis. Ég vil hér með koma
þessari hugmynd á framfæri og
vona að hún fái einhverjar undir-
tektír.
Þinn J.S. Reykjavík.
P.S. Eftir á að hyggja, skyldu
vera til nokkur lög, sem hægt
væri að nota sem grundvöll til að
banna slíka klúbba? Maður get-
ur búist við öllu, eftir þennan
kjánalega hamagang gegn nætur-
klúbbunum í fyrra. Hvert er þitt
álit á hugmyndinni og möguleik-
unum á framkvæmd hennar,
póstur minn?
Okkur finnst þetta prýðileg
hugmynd og satt er það, að ekki
veitir af að reyna að lífga upp á
skemmtanalífið okkar svona í
svartasta skammdeginu. Við get-
um ekki séð neitt því til fyrir-
stöðu, að klúbbar af þessu tagi
fái að starfa, þ.e.a.s. ef þeir gera
ekki tilraun til að reka sitt eigið
hús eða slíkt. Hér eru margir
klúbbar starfandi, sem halda
fundi sína reglulega á veitinga-
húsum eða öðrum stöðum, sem
leigðir eru út, og slíkt er að því
er við bezt vitum fullkomlega
löglegt og brýtur ekki í bága við
siðferðið á neinn hátt.
Alaska
Kæri Póstur.
Nýlega las ég grein í Vikunni
um olíuævintýrið í Alaska og
áður hafði ég lesið grein um sama
efni í Úrvali. Nú langar mig til
að fá sem ýtarlegastar upplýsing-
ar um betta, því ég er að hugsa
um að bregða mér til Alaska og
freista gæfunnar. Ég hef alltaf
verið veikur fyrir allri áhættu,
þar sem til mikils er að vinna, ef
vel tekst og heppnin er með. Auk
þess er ég atvinnulaus þessa
stundina að minnsta kosti og
finnst miklu frumlegra og ævin-
týralegra að fara alla leið til
Alaska, heldur en að bregða sér
aðeins til Svíþjóðar eins og svo
margir gera.
En sem sagt í fullri alvöru: Ég
væri þakklátur fyrir sem ítarleg-
astar upplýsingar um Alaska og
væntanlega för mína þanaað.
Með fyrirfram þakklæti,
H.R.S.
Þú ert ekki fyrsti maðurinn,
sem færð þá hugmynd að fara til
Alaska í „gullævintýW" okkar
daga. Áður hafa tveir menn
hrinert til okkar veena umræddr-
ar greinar og beðið um upplýs-
ingar. Því miður getum við eng-
ar slíkar gefið, en Upplýsinga-
þjónusta Bandaríkjanna er vafa-
laust sá aðilinn, sem snúa ber sér
til í von um góða fyrirgreiðslu.
Við ráðleggjum þér að liafa sam-
band við Upplýsingaþjónustuna,
en hún er til húsa í Bændahöll-
inni.
Áramótakveðja
Kæra Vilca
Ég skrifa þér nú bara svona til
að óska þér gleðilegs ára og vil
þakka um leið fyrir gamla árið.
Þú birtir margt gott og skemmti-
legt efni á liðnu ári; t.d. grein-
arnar um Ibsen, sögur, viðtöl og
margt fleira.
Mér er minnisstætt viðtalið við
blessaða kerlinguna hana Hesta-
Siggu (afsakið uppnefnið). Það
var bara eins og blessuð gamla
konan væri ljóslifandi komin; svo
nákvæmt voru orðatiltæki henn-
ar eftir höfð og myndirnar góð-
ar. Svo er það kolkrabbasálfræð-
ingurinn ykkar sem virðist hafa
vakið mikla athygli. En í alvöru
talað, er ekki fremur vafasamt
að prenta stóru letri á forsíðu:
LÖGGJÖFIN HEFUR ÖFUG
ÁHRIF? Er þetta ekki eins og
áróður? Sumir eru þannig að
þeir gleypa allt hrátt, ef það er
nógu áberandi og hugsa ekki við
hvað er átt eða hvað liggur á
bak við fyrirsagnir og auglýsing-
ar. Það er til fólk sem tekur slag-
orð bókstaflega og gerir þau að
sínum einkunnarorðum.
En þetta er víst orðið nógu
langt, Vika mín, ég vænti alls
góðs af þér á nýja árinu og bið
þér blessunar.
Þín Halla.
Við þökkum innilega fyrir
þetta ágæta bréf og hlýjar óskir
okkur til handa. f rauninni höf-
um við litlu við þetta að bæta,
en þó er ekki úr vegi að taka það'
fram að okkur þætti fyrir því ef
fólk hefur tekið þessa fyrir-
sögn sem áróður; það átti hún
ekki að vera. En það er svo erfitt
að gera öllum til hæfis....
— Ekki alveg strax, Emma, mér
finnst blessaður blærinn svo
hressandi!
Strakurinn, sem ég er með,
gaf mér minnsta kveikjara sem
ég hef séð — svo lítinn að ég fæ
varia nógu litla steina í hann.
Annar strákur gaf mér kveikjara,
sem hann keypti ■ siglingu
— honum er fleygt þegar
hann er tómur. Ekki man ég,
hvorn ég lét róa fyrr,
kveikjarann eða strákinn.
Ég er alltaf að kaupa
eldspýtur, en þær misfarast
með ýmsum hætti.
En eld þarf ég að hafa.
Hver vill
gefa mér
RONSON?
TILVALINN TIL TÆKIFÆRISGJAFAR
Comet gas kveikjari
Adonis gas kveikjari
Empress gas kveikjari
Milady gas kveikjari
Til gefenda RONSON kveikjara: Áfyllingin tekur
5 sekúndur, og endist svo mónuðum skiptir. Og
kveikjarinn — hann getur enzt að eilífu.
RONSQN
Einkaumboð:
I. Guðmumtsson i Co. hf.
4. tbi. vikaN 7