Vikan


Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 9

Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 9
KVIKMYNDAHETJAN VIII KWENAST ETHEL KENNEDY Á hverjum sunnudegi fær Ethel Kennedy tvær tylftir af rauðum rósum frá þekktum aðdáanda. En hún er ekki ginnkeypt fyrir því.... i . ; >• . Á hverjum sunnudegi kemur sendiboöi með tvær tylftir af rauÖum rósum til Ethel Kennedy að Hickory Hill. Þetta er sannarlega enginn nafnlaus aðdáandi og hann fer ekki leynt með hver liann er. Það er kvikmyndaleikarinn Gary Grant. Hvað eftir annað hefir hinn þekkti leikari farið fram á að fá að tala við Etliel Kennedy, en fram að þessu liefir hún ekki orðið við beiðni hans. Hún segir alltaf. „Ein- hverntíma seinna“. Ethel Kennedy verður sjálf að hugsa um hin ellefu börn sín, sem nú eru föðurlaus. Gary Grant liefir ætíð yfirlýst að hann þrái það mjög að eiga mörg börn. En þrjú fyrstu hjónabönd lians, þar af var eitt með Barböru Hutton, voru barnlaus. Þegar hann var 62 ára kvæntist hann hinni ungu Dyan Cannon og eignaðist dóttur með henni. En eftir átján mánaða lijónaband krafðist Dyan sldlnaðar á þeim for- sendum að Gary væri LSD-neytandi og væri að gera hana að taugasjúkling. Hún sagði: — Hann elskar aðeins sjálfan sig og útlit sitt, sem hann er sjúklega liræddur um. Dyan var dæmdur rétturinn yfir dótturinn og töluvert fé i skaðabætur, — og Gary er því barnlaus. Hann hefir nú dregið sig eiginlega alveg í hlé frá kvikmyndum, enda liefir hann ráð á því, því sagt er að hann eigi um það bil milljarð króna. „Þegar ég verð ástfangin“ Vinir Ethel Kennedy lialda að iiún muni jafnvel geta lmgsað sér að giftast aftur, í fyrsta lagi vegna barnanna, og svo lika vegna þess að liún þarfnast einhvers „til að lialla sér að“. Ethel hefir látið Rose, tengdamóður sina og máginn Ted skilja það á sér að hún hefði ekkert á móti þvi að gifta sig aftur. — En slíkt skref stíg ég ekki, nema ég' verði ástfangin, og þá lielzt einhverjum, sem ættin samþykkir. Kennedy-fjölskyldan vill ekki fleiri hneykslanleg hjóna- bönd, lijúskapur Jacqueline og Onassis var nóg til að fylla mælinn. Það hefir kvisazt að Ethel liafi nrikinn hug á því að snúa sér sjálf að stjórnmálum. Það er liaft eftir vinum liennar að jafnvel nú í ár muni hún gefa kost á sér sem þing- mannsefni fyrir Virginiufylki. Hún hefir ekki hug á eldri mönnum Hún hefir nú tekið þátt í samkvæmislífinu unr hríð, og er eftirsólt meðal vina sinna, sem margir eru leikarar og aðrir listanrenn. En Grav Grant hefur líklega ekki nrilda möguleika til Jress að verða lífsförunautur hennar. Hann er (jf ganrall fyrir Ethel, senr er ótrúlega unglega, þrátt fyrir hinar nrörgu barneignir, og hún er ábyggilega lirifnari af jafnöldrum, eða þá sér yngri mönnunr. Sá senr þykir einna liklegastur er Bill van den Heuvel. Þau sjást oft sanran, og lrver veit? — kannski er hann sá rétti. Hún er að minnsta kosti sú rétta lranda honunr. Hann verður nú í franrboði til ríkisstjóra í New York fylki, og nreð haira sér við hlið, væri lrann líklega öruggur til sigurs. 4. tbi. VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.