Vikan


Vikan - 22.01.1970, Qupperneq 18

Vikan - 22.01.1970, Qupperneq 18
■ii OTIR LUPUS i “• t. Framsóknarflokk u rinn hef- ur mátt sín harla mikils á austurvígstöðvum íslenzkrai- stjómmálabaráttu allt frá stofnun sinni, og ræður mestu í því efni fylgi hans í Suður- Múlasýslu. Sveinn Ólafsson í Firði var kjörinn þingmaður þar 1916 eftir nokkrar harðar byltur, og þar með rann upp frægðaröld Framsóknar- flokksins í héraðinu. Ingvar Pálmason útvegsbóndi á Norðfirði varð samfylgdar- maður Sveins sem þingfulltrúi Sunnmýlinga 1923, og héldu þeir félagar hópinn áratug, án þess að nokkrum tjóaði að etja kappi við þá austur þar. Sveinn í Firði gekk svo til hvílu í kosningunum 1933, enda sjóndapur orðinn, heyrn- ardaufur og ellimóður. Eftir- maður hans varð Eysteinn Jónsson, sem þá var benja- mín Framsóknarfloklcsins og eins konar pólitískt undra- baxn. Hefur Eysteinn jafnan síðan komið eftirminnilega við sögu í keppninni um völd og áhrif meðal Austfirðinga, og enn telst hann atkvæða- mikilJ ]>ingskörangur, enda þótt flokkur lians hafi farið landstjórnar á mis langa hríð ETIIEIH undanfarið og eins og legið úti. Eysteinn Jónsson fæddist á Djúpavogi í Suður-Múlasýslu 13. nóvember 1906, sonur séra Jóns Finnssonar prests í Hofs- þingum í Alftafirði og konu han.s, Sigríðar Hansdóttur Beck. Ólst Eysteinn upp í for- eldrahúsum og þótti snemma framtakssamur, þó að hann sé hvorki hár í lofti né af- renndur að afli. Stundaði hann sjósókn frá Djúpavogi á imglingsárum og fram und- ir tvítugt, en réðst til náms við Samvinnuskólann 1925 og lauk burtfararprófi þaðan vorið 1927. Starfaði Eysteinn því næst um sinn í stjórnar- ráðinu og kenndi við Sam- vinnuskólann, en varð skatt- stjóri í Reykjavík 1930. Þótti hann óvenju svinnur í bók- færslu eftir nokkurra mánaða framhaldsnám í þeim fræðum erlendis og þá þegar skelegg- asti málsvari Framsóknar- flokksins í kappræðum um fjármál og þjóðarbúskap. Varð hann þingmaður Sunn- mýlinga 1933 sem fyrr getur aðeins tuttugu og sex ára gamall og fjármálaráðherra í fyrsta ráðuneyti Hermanns Jónassónar að unnum nýjum kosningasigri í átthögum sín- um ári síðar. Gegndi hann því embætti til 1939, en varð þá viðskiptamálaráðherra og skipaði þann sess til 1942, er hann vék úr stjórnarráðinu og veittti forstöðu prentsmiðj- unni Eddu fimm ár, en flutt- ist svo aftur í Hvíta húsið við Lækjartorg 1947 og sat þar sem menntamálaráðherra til 1949. Hann gerðist fjár- málaráðherra öðru sinni 1950 og rækti þann starfa, unz vinstri stjórnin lét af völdum undir árslok 1958. Þaðan ífrá hefur Eysteinn helgað sig flokksforustu auk þess sem hann er varaformaður í stjóm Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga og situr í mörg- um ráðum og nefndum. Hann var lengi ritari Framsóknar- flokksins en gerðist formaður hans 1962, er Hermann Jón- asson dró sig í hlé. Gegndi Eysteinn flokksformennsk- unni t.il 1968, en fékk hana þá Ólafi Jóhannessyni í hendur. Ber minna á lionum í seinni tíð en fyrrum var. Samt mun hann enn ráðríkasti leiðtogi Framsóknarflokksins og helzti garpur í deilum á málþingum. Kosningaúrshtin í Suður- Múlasýslu 1933 urðu þau, að Eysteinn Jónsson valdist fyrri þingmaður kjördæmisins. Sú saga endurtók sig 1934, 1937 og sumarið 1942, og Eysteinn og Ingvar Pálmason áttu vax- andi fylgi að fagna í héraðinu, unz frambjóðendur Sjálfstæð- isflokksins hlutu að una því að heita hálfdrættingar á við þá um atkvæðafenginn. Mál- ið vandaðist samt, þegar hlut- fallskosningar voru upp tekn- ar í tvímenningskjördæmun- um haustið 1942. Eysteinn hafði fengið 1106 atkvæði Sunnmýlinga um sumarið og Ingvar 1038, en Arni Jónsson frá Múla 538. Róðurinn hlaut því að verða þungur á haust- vertíðinni. Eysteinn var þó hvergi smeykur. Hann losaði Ingvar Pálmason við tvísýn- ina en réðst sjálfur í annað sæti framboðslistans og lagði sig allan fram. Honum varð líka að trú sinn. Framsóknar- flokkurinn hlaut 1257 atkv. og jók enn fylgi sitt, en Sjálf- stæðisflokkurinn hreppti 543. Hins vegar steðjaði ný hætta að yfirráðum sigurvegaranna með fylgisaukningu Sósíal- istaflokksins, sem fékk 548 18 VIKAN 4 tbl

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.