Vikan


Vikan - 22.01.1970, Side 43

Vikan - 22.01.1970, Side 43
vera kominn upp aftur. Komi hann svo ekki upp á réttum tíma, er neyðarkall sent út til allra hellnakannaða í nágrenn- inu. Við erum allir sem ein stór fjölskylda — verði einhver okk- ar illa úti, flýtum við hinir okk- ur á slysstaðinn til að taka þátt í björgunarstarfinu. Moss hafði farið niður í mjög hættuleg göng og átti að vera kominn aftur eftir klukkustund — klukkan tíu þennan sunnu- dagsmorgun, Þegar klukkan var fimm mínútur yfir þrjú sást enn ekkert af honum. Þá var neyðar- kall sent út. Bezti vinur Neil Moss, John Sandall, fór fyrstur niður í hol- una. En Sandall var engu óþreknari en Moss, og hann komst ekki inn í enda gangn- anna þar sem Moss lá fast- klemmdur. Sandall kom upp og tilkynnti að við yrðum að senda niður smávaxinn klifrara, svo grannan að hann kæmist gegn- um skrúfukaflann. Ég er ekki nema einn sextiu og átta á hæð og veg fimmtíu og fjögur kíió. Klukkan hálffjögur hringdi síminn heima hjá mér, og hálf- tíma síðar var ég lagður af stað. Ég hafði margsinnis farið niður í Peak Cavern. þó aldrei svo djúpt og Moss var nú kominn. Frá sjálfum inngangi hellisins er næstum tveggja kílómetra spölur unz komið er að gangi svo þröngum, að ekki er lengur hægt að ganga upprét.tur. Eftir hundr- að metra í viðbót er ekki einu sinni hægt að ganga á hnjám, heldur verður að krafla sig áfram eftir göngum, sem eru sums staðar ekki nema fjörutíu sentimetra undir loft. Að loknum þessum kafla, sem er um hundr- að og fimmtíu metra langur, tek- ur við leðjuborinn halli. Upp hann verður að skríða aftur á bak unz komið er upp á klettastall nokkurn. Þar getur maður setzt á hækjur sér og sér þá aðra klöpp, þakta hálli leðju. Þegar maður hefur mjakað sér þar framhjá verður að halda varlega áfram niður að tjörn nokkurri, og er vatnið í henn:i grænt og slímugt. Tjörnin er næstum kringlótt og er níu eða tíu metra í þvermál. Vatnið er um hálfan annan meter á dýpt. Framhjá tjörninni kemst maður eftir mjórri syllu rétt ofan við vatns- borðið, og síðan er haldið áfram fimmtíu metra í viðbót unz göngin víkka. Þar getur maður staðið uppréttur. Við fætur manns er opið á „reykháfi and- skotans" Þegar ég kom til hellisins voru þar þegar fyrir yfir hundrað manneskjur. Hellakönnuðir frá öllu Suður-Englandi höfðu kom- ið á vettvang og von var á enn fleirum. Sjö höfðu þegar sigið niður í holuna svörtu. Aðeins einum þeirra hafði tekizt að komast svo nærri Moss að hann VXKAN ER HEIMILISBLAÐ OG f ÞVÍ ERU GREINA B OG EFNI FYRIR ALLA Á HEIMILINU, — UNGA OG GAMLA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNHt, FRÓÐLEIKUR, FASTIR ÞÆTTIR O.FL., O.FL, Vinsamlegast sendiö mér Vikuna í áskrift n i i i 4 TÖLUBLÖÐ Kr. 170.00. Hvert blaS 6 kr. 42.50. 3 MÁNUÐIR . 13 tolubl. - Kr. 475.00. Hvert blaS 6 kr. 36.58. 6 MÁNUÐIR . 26 tolubl. - Kr. 900.00. Hvert blaS 6 kr. 34.62. Gjalddagar fyrir 13 tölubl. og 26 tölubl.: 1.' febrúar — 1. maí — 1. úgúst — 1. nóvember. SkrifiS, hririgiS eSa komiS. ■j [PÓ! mm PÓSTSTÖÐ VIKAN SKIPHOLTI 33 PÖSTHOLF 533 REYKJAVfK SÍMAR: 36720 - 35320 n i i i PÉR SPARIÐ MED ÁSKRIFT ÞÉR 6ETIÐ SPARAÐ FRÁ KR. 7.50 TIL KR. 15.38 MEÐ ÞVf AÐ GERAST ÁSKRIFANDI AÐ VIKUNNI OG ÞÉR ÞEKKIÐ EFNIÐ: 4. tw, VIKAN 43

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.