Vikan - 06.05.1970, Side 9
/ síðasta blaði birtum við mynstur af þrem fuglum,
hér koma þrír aðrir. Þeir eru eins og áður var
sagt saumaðir í hör með krosssaum og aftursting
ÞISTILFINKA (til hægri)
1 spor tekur yfir tvo þræði í efninu. Á skýringamyndinni eru aðeins nefnd
númer litanna. Litur, sem merktur er með einni tölu er saumaður með
samlitum þráðum. en ef tvö númer eru, þá eru tveir þræðir í nálþræði.
Kringum augun er afturstingur með hvítu garni, tveim þráðum, aftur-
stingur á stélinu með svörtu garni og afturstingur á þistlinum er brúnn,
litnúmer 829.
SILKITOPPA (undir)
1 spor yfir tvo þræði í efninu. Litur sem merktur er með einni tölu er
saumaður með samlitum þráðum, en ef tvö númer eru, þá eru tveir litir
í nálþræði. Kringum augun er afturstingur með hvítu garni. Berjastilk-
arnir eru saumaðir með brúnu garni, litnúmer 829.
LYNGFINKA (undir til hægri)
1 spor yfir tvo þræði í efninu. Litur, sem merktur er með einni tölu er
saumaður með samlitum þráðum, en ef númer eru tvö, þá eru tveir litir
í nálþræði. Hvítur afturstingur kringum augun. Beriastilkarnir saumaðir
með ólífulitu garni, litnúmer 733.
19. tbi. VIKAN 9