Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 16
M
v
b
-?'
^ ^
t.......V....SMB
jjMMIig
\
WrnmWÆ',
\
■ -
^píÍ:
-. •; v:- '- :-;- : <
■MC
.-......;.;. >...-.-......
^fSliÉÍ
Milliþáttur
i Mexico
SMASAGA eftir
MONICA MUGAN
Reiðin skein úr augum henn-
ar. Hún kippti upp skrælnuðu
strái og beit í það, nísti hvítum
tönnunum. Frá stráþöktu eld-
húsinu heyrði hún þegar móðir
hans var að klappa hveitikök-
urnar til morgunverðar. Ambro-
sio kom upp stíginn frá ánni.
Hann var tígulegur i fasi og bar
léitilega stóra leirkrukku, fulla
af vatni, á höfðinu. Hann söng
glaðlega. Röddin var tær, hár
tenór. Hann var ekki í skyrtu og
Júlía sá sterklega vöðvana hreyf-
ast undir brúnu, mjúku hörund-
inu, og hann hló, þegar hann sá
Júlíu sitja á steininum undár
lárberjatrénu. Hún leit undan.
Fyrir sjö dögum hafði Júlía
farið frá flugvellinum í Mexico
City, ásamt Geoffrey, manninum
sínum. Þau fóru í einkaflugvél
sinni og voru glöð í skapi, því
að þau voru á leiðinni til Aca-
pulco til að skemmta sér. Með-
ferðis höfðu þau nóg af Martini
í kæliflösku, en ekki nægilegt
bensín.
Ógæfan henti þau, þegar
stormsveipur milli fjallanna
feykti þeim á fjallstind, svo vél-
in hrapaði niður í djúpa gjá:,
þar sem straumlygn á hríslaðist
milli steina. Móðir Ambrosios
hafði setið við ána og klappað
þvottinn sinn á steini, þegar hún
heyrði hávaðann. Hún öskraði
af hræðslu, hljóp upp brattann
og vakti hinn gamla, veðurbarða
eiginmann sinn af miðdegis-
blundinum.
Hundarnir geltu, hænsnin
gögguðu og allir íbúar litla býl-
isins veltust niður brekkuna, til
að sjá þegar hinn auðugi Geof-
frey Hutton skreið út úr flug-
véiarflakinu. Hann var náfölur
og hendur hans skulfu, þegar
hann dró konu sína út úr stjórn-
klefanum. Ljósa, síða hárið huldi
næstum lífvana andlitið. Þótt
undarlegt megi virðast, var mar-
tiniflaskan óbrotin, og Geoffrey
greip hana og hellti sterkri vín-
blöndunni milli vara hennar.
Hún hóstaði og stóð á öndinni
og opnaði augun.
Geoffrey fékk aftur eðlilegan
litarhátt. Mér þykir þetta
leiðinlegt, elskan. Rödd hans
skalf. — Heldurðu að þú sér’
brotin?
Júlía teygði úr löngum fó.
leggjunum og hreyfði armam
Hún staulaðist á fætur. — Þab
er allt í lagi með mig. Hún sá
fólkið frá býlinu standa þarna
16 VIKAN
19. tbl