Vikan - 06.05.1970, Page 27
ið tuttugu ára
Litla sviðið í Lindarbæ var
þarfur viðauki starfsemi
leikhússins og var meðal
annarra verka fært upp
þar Hrólfur eftir Sig-
urð Pétursson, sem er tal-
ið fyrsta leikrit skrifað á
íslenzku. Á myndinni eru,
talið frá vinstri: Auðunn
(Árni Tryggvason), Hrólfur
(Bessi Bjarnason), Sigríður
(Anna Guðmudnsdóttir),
Margrét (Þóra Friðriksdótt-
ir) og Una (Margrét Guð-
mundsdóttir).
4
My Fair Lady, söngleikur-
inn frægi sem gerður er
eftir Pygmalion Shaws, var
færður upp í Þjóðleikhús-
inu í marz 1962 og gerði
ekki síður lukku þar en
annars staðar. Á myndinni
eru Vala Kristjánsson og
Róbert Arnfinnsson sem El-
iza Doolittle og Pichering
ofursti.
4
Leikárið 1965—‘66 var Mutt-
er Courage Brechts trúlega
viðurhlutamesta viðfangs-
efni hússins. Með aðalhlut-
verkið fór Helga Valtýs-
dóttir af eftirminnilegri
snilld. Og ekki var frammi-
staða hennar síðri í Gísl og
Hver er hræddur við Vir-
giníu Woolf.
i
í Skálholti eftir Guðinund
Kamban, eitt hinna virðu-
legri meðal íslenzkra leik-
húsverka, var einnig sýnt
þetta ár. Daða og Ragnheiði
léku þá Erlingur Gíslason
og Kristbjörg Kjeld.
Hrollvekja framúrstefnumannsins
lonescos, Nashyrningarnir, sem
sýnt var á tólfta leikári Þjóðleik-
hússin^, 1960—‘61, er hiklaust í
röð merkustu og minnisstæðustu
verka sem þar hafa verið færð
upp. Á myndinni er Lárus Pálsson
í hlutverki Berengers. — Auk
starfs síns sem leikari annaðist
Lárus stjórn tuttugu og fimm
leikrita í Þjóðleikhúsinu, eða
fleiri en nokkur annar leikstjóra
þess á sama tímabili.
Nú á sumardaginn fyrsta átti Þjóðleikhús íslendinga
tuttugu ára afmæli. Þarf varla að fjölyrða hvílík lyfti-
stöng starfræksla hússins hefur verið fyrir leikmenn-
ingu okkar, og leitun mun vera á meiri happadegi í
menningarsögu þessa lands en sumardeginum fyrsta
fyrir tuttugu árum. Fyrsta apríl síðastliðinn var heildar-
tala sýningargesta leikhússins orðin 1.817.528, en heild-
artala sýninga var komin hátt á fimmta þúsund. Flestar
urðu sýningarnar leikárið 1964—‘65, eða 303, en 1952
—‘53 urðu sýningargestir flestir, 109.605. — Vikan tek-
ur fvrir sitt leyti undir hamingjuóskir alþjóðar Þjóð-
leikhúsinu til handa og birtir í tilefni afmælisins nokkr-
ar myndir úr fáeinum þeirra mörgu leikhúsverka, er-
lendra sem innlendra, sem það hefur skemmt lands-
mönnum með á áratugunum tveimur.
Annað sýningarkvöld hússins var flutt Fjalla-Eyvind-
ur Jóhanns Sigurjónssonar, sem af flestum mun talið
merkast allra íslenzkra leikrita. Þá fóru Róhert Arn-
finnsson og Inga Þórðardóttir með aðalhlutverkin,
Kára og Ilöllu.
„Ilorfðu undir hönd mér“. Áslaug álfkona (Þóra Borg)
og Guðrún (Bryndís Pétursdóttir) í Nýársnóttinni eftir
Indriða Einarsson. Þessi hugljúfi ævintýraleikur var
fyrsta sýningarverk hússins, og myndin sjálf má telj-
ast táknræn fyrir þá framtíðardrauma, sem þjóðin batt
við lcikhús sitt.