Vikan


Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 34

Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 34
(H) NÝTT FRÁ RAFHA NÝ ELDAVÉL GERÐ HE6624. 4 hellur, þar af 1 með stiglausri stillingu og 2 hraðsuðuhellur, stór ofn, 56 lítra, yfir- og undirhiti fyrir steikingu og bökun, Ijós í ofni. Fæst með eða án glóðar- steikar elements (grill). — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - SÍMI 10322 ATHIJGIÐ Ef þú ert aS byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. STJÓRNUSPfl*^ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apr(l): Verk, sem þú leggur mikið kapp á að koma írá þér, er nú senn á enda sökum óvæntrar og drengilegrar aðstoðar félaga þíns. Þú hefur vel efni á því núna að taka þér nokkra hvíld og gera þér dagamun. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí); Þú verður að gæta þess að halda fast fram mál- stað þínum í ákveðnu máli, hvernig svo sem aðrir reyna að telja um fyrir þér. Leggðu allt kapp á að leysa verkefni þín sem bezt af hendi. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júnf): Það væri ekki rétt af þér að gefa spark í vissan aðila eins og málin standa. Sökum forfalla einhvers verður þér trúað fyrir nokkurri ábyrgð sem að öll- um líkindum mun auka á hróður þinn. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí); Það mun nokkuð reyna á þolinmæði þína og skap- styrk í vikunni. Temdu þér því að fara rólega að öllum málefnum, þótt nokkuð liggi á. Föstudagur- inn er að líkindum bezti dagur vikunnar. Ljónsmerkið (24. júl( — 23. ágúst): Þú munt velta mikið fyrir þér fjármálum og kynna þér nokkuð ýmsa viðskiptahætti. Slakaðu nokkuð til um kröfur þínar á vinnustað, því yfirboðarar þínir eru ekki rétt stemmdir eins og er. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Farðu að öllu með gát. Þú munt þurfa að taka ákvarðanir í persónuiegu og viðkvæmu máli. Vertu ekki mikið að heiman, reyndu heldur að koma ýmsum hlutum í verk sem enn hafa orðið útundan. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Reyndu að hrista af þér deyfðina með því að atast í einhverju sem kemur þér í gang. Leti er mikill ókostur og samræmist alls ekki eðli þínu. Seinni partur vikunnar mun færa þér ný viðhorf. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Það mun verða óvenju skemmtilegt og margt um að vera hjá þeim sem eru fæddir milli 5. og 13. nóvember. Þú verður að þola einhverja skapraun vegna prakkarastriks sem þú varst þátttakandi í. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Það er hætta á að þú verðir fyrir einhverjum von- brigðum á vinnustað, en þú skalt Vera vel á verði og halda við kröfum þínum til bættrar aðstöðu. Þú ferð í ferðalag, líklegast í verzlunarerindum. Steingeitarmerkið (22. desember — 20 janúar): Það verður meira um að vera þessa dagana en undanfarið, en þú munt ekki nota þér tilbreyting- una neitt sérstaklega. Þú eyðir nokkrum tfma með ættingja þínum sem er búsettur fjarri þér. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Það er heppilegt fyrir þig að gera alls konar samn- inga sem bundnir eru við lengri tíma. Það verður einhver ósátt milli þín og góðs kunningja, en tím- inn læknar allt þvílíkt, taktu það ekki nærri þér. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Persóna sem þú hefur nokkurn áhuga á virðist alls ekki hafa þörf fyrir félagsskap þinn eins og er. Helgin er mjög vel fallin til stuttra ferðalaga. — Reyndu að vera sem mest útivið. 34 VIKAN 23. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.