Vikan


Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 8

Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 8
Wiitler bríhiúl fást í þrem stærðum. Einnig reiðhjól í öllum stærðum. Wlr Sr Spítalastíg 8 — Sími 14661 — Pósthóif 671 Frímerki Utvegum frímerki frá Stóra-Bretlandi og samveldislöndunum. Sömuleiðis fyrsta dags umslög. Látið okkur vita hvers þér óskið og við munum gera okkar bezta. Ný þjónusta í Bretlandi fyrir frímerki og fyrsta-dags umslög. Collector Gallery 42 Market Jew St. Penzance, Cornwall. Sími PZ 4604 England. MIG DREYMDI Próf og einkunnir Kæri draumráðandi! Mig langar að biðja þig um að ráða fyrir mig eftirfarandi draum. Mér fannst ég vera stödd í herbergi með skólasystrum min- um, og við vorum að ná í ein- kunnir okkar; það var núna í vor. Ein af okkur kom til mín og sagði að við værum allar fallnar, og þetta er síðasti vetur- inn í þessum skóla. Kennarinn kom inn og lét okkur fá einkunnabækurnar. En þegar við fórum að skoða þær, sá ég að við vorum fjórar með háar einkunnir. Ég hafði fengið 8,5, ein fékk 7,35, önnur 7,20 og þriðja fékk 7,15. Svo var það ein bezta vinkona mín í bekknum sem hafði fengið 5,0. Draumur þessi var svo ekki lengri. Ég vona að hann verði ráðinn áður en prófin eru búin (þann 25. maí). Virðingarfyllst, G. B. Vegna prófanna reynum við að ráða þennan draum í logandi hvelli. Annars verður það að segjast því miður, að við getum ekki ráðið nema lítið brot af þeim draumum, sem okkur ber- ast. Við vonum samt, að enginn hætti við að senda okkur draum þess vegna. Okkur er sönn ánægja að fá svo mörg bréf frá lesendum okkar og halda sem beztu sambandi við þá. Og við reynum að gera okkar bezta í draumráðningunum og ráða þá sem allra flesta, ef við getum, þó sumir þurfi kannski að bíða í nokkuð langan tíma. — Þessi draumur stafar auðvitað af því, að þú hugsar stöðugt um próf og einkunnir dag út og dag inn. Líklega er draumurinn fyrir því, að þér gangi prýðilega í prófun- um og reyndar öllum vinkonum þínum líka, þér þó langtum bezt. En bezta vinkona þín verð- ur mjög óheppin, ekki í öllum prófunumí heldur í einhverju einu fagi. Það gerist eitthvað fjarska óvenjulegt og slysalegt í sambandi við prófið hennar í þessari grein. Tæplega getur það þó haft þau áhrif á aðaleinkunn hennar, að hún fái ekki nema fimm. Hvítklædd kona í kirkju Kæri draumráðandi! Ég ætla að skrifa þér draum, sem mig dreymdi að mig minn- ir 9. janúar. Ég er að verða ell- efu ára. En mér fannst ég vera 14- 15 ára í draumnum. Hér kemur svo draumurinn: Ég var stödd í kirkju ásamt tveimur öðrum stúlkum. Þetta er kirkja, sem ég hef komið í áður. Það var trégólf þarna og nokkr- ir bekkir, sem við röðuðum sam- an og lágum á. Við sáum ekki fram í kirkjuna. Svo var það, þegar við vorum búnar að vera þarna nokkra stund, að til okk- ar kom hvítklædd kona. Þessi kona var móðir stúlknanna, sem með mér voru. Stúlkurnar urðu hræddar, því að þær höfðu misst móður sína fyrir nokkrum ár- um. Þær þögðu, en ég talaði við konuna. Hún spurði hvernig manninum sínum liði. Ég vissi ekki hver maður hennar var og spurði hvað hann héti. Hún sagði mér það (en þegar ég vaknaði mundi ég ekki nafnið). Hún sagði mér um leið, að þau hefðu átt heima á neðstu hæð í húsinu hjá mér, og þá varð ég hissa. Við hættum svo samtalinu og konan hvarf. Við fórum heim og töluðum ekkert um þetta, sem gerðist í kirkjunni. Þá sagði ég mömmu frá því og spurði hana hvort hún vissi eitthvað um þetta fólk. Hún svaraði neitandi. Daginn eftir fórum við aftur í kirkjuna, lágum þar nokkra stund og þá kom konan aftur. Þegar hún þurfti að fara, sagði hún, að hún ætlaði að taka yngri stúlkuna með sér, því að hin gæti séð fyrir sér sjálf. í sama bili og hún var að hverfa, þá kallaði ég á eftir henni hvort ég hefði ekki mátt segja mömmu frá þessu. En konan anzaði ekki, og hvarf með stúlkuna. Lengri varð draumurinn ekki. E. Á. A. Yfirleitt er það fyrir einhverju slæmu að dreyma kirkju, og það sama er að segja um látið fólk. Því vil ég ráða draum þinn þannig að innan skamms lendir vinkona þín, sú yngri, í eln- hverjum alvarlegum vadræðum, verður jafnvel alvarlega veik, og er það að nokkru leyti undir þér komið hvernig hún kemst frá því. Það sem bendir til þess, þó ekki svo að hægt sé áð fullyrða nokkuð, að allt fari giftusam- lega á endanum, er hvíti klæðn- aðurinn sem móðir stúlknanna var í. Annars er draumurinn heldur óljós og erfitt að segja mikið til um þetta, en hefðir þú munað nafnið á manninum hefði málið liorft öðruvísi við. 8 VIKAN 23-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.