Vikan


Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 7

Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 7
annað. Hvað portrettljósmyndun snertir er einkum um að ræða andlitsmyndir, eins og nafnið bendir til. . 4. Fjögur ár. Þér hefði verið nær að spyrja um skriftina, hún er dáfalleg, að vísu ekki laus við tilgerð. Bréf- ið er ekki villulaust, og sem stíl- ista ætti þér að geta farið fram. Allt of stór brjóst Kæri Póstur! Segðu mér hvernig hægt er að losna við feita kálfa eða vöðva- mikla. Og alltof stór lafandi leiðinleg brjóst. Einnig ef þú kannt góð ráð til að losna við ofsalega stóran botn (rass) og læri. Annað en megrunarkúr. ■—■ Skriftin er ferleg, ég veit það. Ein í vanda. Fyrir skömmu var í Vikunni sagt frá stofnun sem ber heitið Heilsuræktin og er til húsa í Ár- múla 14, Reykjavík. Meðal ann- ars ágæts starfs sem Heilsu- ræktin leysir af hendi er að hjálpa fólki til að ná af sér of miklum holdum, hvar sem þau safnast fyrir á líkamanum. Við sjáum ekki betur en að upplagt væri fyrir þig að snúa þér þang- að. Skriftin er mjög viðvanings- leg, en hreint ekki ljót. Hárgreiðsla og andlitssnyrting Kæri Póstur! Fyrst ætla ég að þakka þér og Vikunni fyrir margt skemmtilegt efni, sem þið hafið birt. Ég ætlaði líka að gera eitt- hvað annað en að þakka ykkur efnið. Mig langar að spyrja þig nokk- urra spurninga um eitt og ann- að. Ég ætla að forvitnast um hár- greiðslunám og andlitssnyrtingu, svo sem hvað maður þarf að vera gamall og hvað þetta er langt nám og bara allt sem þú veizt um þetta. Hvernig passa saman merkin bogmaðurinn og ljónið og svo bogmaðurinn og steingeitin? Ég vonast eftir góðu svari og það sem allra fyrst, með þökk fyrir birtinguna. Kær kveðja. Brynja. P.S. Hvernig er skriftin og stafsetningin? Lágmarksaldur í hárgreiðslunám er sextán ár, en átján ár í and- litssnyrtingu. Hárgreiðslunámið tekur þrjú ár og er verklegt, og jafnframt því er bóklegt nám í iðnskóla. — Til þess að komast í snyrtinámið þarf gagnfræða- próf eða hliðstætt. Þar er náms- tíminn eitt til þrjú ár, eftir því hvernig náminu er hagað. Margt er líkt með bogmann- inum og ljóninu, enda takast samhönd þeirra að jafnaði vel. Þeim lætur mjög vel að vinna saman þegar mikið er færzt í fang og misskilningur þeirra á milli er tiltölulega sjaldgæfur. Með bogmanninn og steinbukk- inn gengur það öllu erfiðlegar, en oft geta þeir þó hjálpað dug- lega upp á hvorn annan. Þeim tekst bezt upp þegar þeir starfa saman að eirihverju, sem skipu- lagt er langt i'ram í tímann. Skriftin er skýr og þokkaleg og allt í lagi með stafsetninguna. Ég sagði honum upp Kæri Póstur! Ég vil byrja á að þakka þér fyrir allt gamalt og gott. En mig langar til að biðja þig að svara þessu bréfi fyrir mig, en enga útúrsnúninga. Ég er 16 ára, og ég var með strák fyrir tveim árum (ég sagði honum upp). En ég er ennþá svo hrifin af hon- um, að það kemst ekkert annað í hausinn á mér. En, kæri Póst- ur, getur þú gefið mér ráð. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. Ein einmana. P.S. Hvernig er skriftin? Ósköp voru á þér að segja drengnum upp, fyrst þú færð hann ekki með nokkru móti út úr hausnum á þér. — Hvað bréf- ið þitt snertir, þá er það of fá- tækt af upplýsingum til að ráð þau, sem við gefum þér, geti þyggzt á öðru en ágizkunum. Þú segist hafa sagt honum upp. Fyrst það var ekki öfugt, dettur okkur í hug að hugsanlegt væri að drengurinn tæki guðsfeginn við þér aftur, ef þú léðir máls á þvi. Þér ætti ekki að verða nein skotaskuld úr því, fyrst þú varst nákunnug honum áður. Skriftin er skýr og vel læsi- leg, en viðvaningsleg. Svar til Bþ, Búðum S-Múl. Algengast mun að stúdents- próf þurfi til að komast í nám það, sem þú spyrð um, og í há- skóla tekur það varla skemmri tíma en fjögur ár. Hugsanlegt er þó að hægt sé að komast í ein- hver námskeið í þessari fræði- grein án þess að hafa stúdents- próf, og þau myndu þá áreiðan- lega taka miklu skemmri tíma. Við ráðleggjum þér að skrifa eða hafa á annan hátt samband við Háskóla fslands, en þar gætirðu áreiðanlega fengið allar nánari upplýsingar þessu viðvíkjandi. Skriftin er skýr, en nokkuð stafastór og viðvaningsleg. A EVUKLÆÐUM EINUM I UDEN EN TRÆVL) Hin margumrædda og æsidjarfa metsölubóR á Norð- urlöndum, eftir norska rithöfundinn Jens Björneboe, er nú fáanleg í islenzkri þýðingu. Bókin, sem er bönnuð i heimalandi höfundar, lýsir flestum stigum kynlýfsreynslu ungrar stúlku í mörgum stórborgum meginlandsins á frjálslegri, opinskárri og teprulaus- ari hátt en tíðkast. og hefur nú þegar verið kvik- mynduð. Bókin verður aðeins seld til áskrifenda, á meðan hið takmarkaða upplag endist, og geta þeir sem óska að eignast hana, gerzt áskrifendur með því að útfylla greinilega meðfylgjandi pöntunarseðil og senda hann ásamt áskriftargjaldinu i ábyrgðarbréfi í Giro-reikn- ing númer 65 við Útvegsbanka Islands í Reykjavik og öllum útibúum hans. Ef bókin hefur ekki borizt yður innan þriggja vikna frá pöntun, þá látið vinsámlegast Giro-þjónustu Útvegs- bankans strax vita. UTGEFANDI ------------------------------------------------------------1 Gíró-reikningur númer 65 í Útvegsbanka fslands: Ég undirrit óska aö gerast áskrifandi að bókinni I A EVUKLÆÐUM EINUM, og sendi hér með greiðsl- I una kr. 400.00. Bókin sendist mór burðargjaldsfrítt. ■ Nafn ................................................ | Heimili....................................... S____________________________________________________________! Ungir og aldnir njóta þess að borða köldu Royal búðingana. Brag’ðtegundir: — Súkkulaði. karamellu. vanillu og jarðarberja. 23. tbl. VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.