Vikan


Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 5

Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 5
Dósaorgel Þrír nemendur við tækniskóla í Kanada fengu þá flugu í höf- uðið dag nokkurn, að gaman væri að búa til orgel úr blikk- dósum. Og þeir létu ekki sitja við orðin tóm, heldur hófustþeg- ar handa. Eftir fjóra mánuði hafði þeim tekizt að búa til ó- venjulegt orgel, þar sem ein- tómar blikkdósir eru notaðar í staðinn fyrir pípur; fáar dósir fyrir lága tóna, en margar fyrir háa. Það fylgir sögunni, að hljómurinn úr þessu dósaorgeli hafi verið afar sérkennilegur — en hvort hann hefur verið fall- egur eða ekki — þess er ekki 'getið. Bílstjórinn sneri við frá líkhúsinu Kemur í skólann á þyrlu Kicki Lindholm býr á afskekktri eyju í Svíþjóð, Gallnö, og það er engan veginn auðvelt fyrir hana að ganga í skóla. Næsti skóli er í 40 kílómetra fjarlægð og þarf að fara yfir gríðarstórt vatn. Hún hefur oft átt í mestu brösum með að komast í skólann, sérstaklega á veturna. En vandamálið leystist, þegar pósturinn á eynni fékk sér þyrlu. Nú flýgur hann með Kicki á hverjum mánudagsmorgni. Eyja- skeggjar hafa heldur betur tekið tæknina í sína þjónustu. Faðir Kicki á til dæmis vélknúna snjó- þotu, og bíður eftir Kicki sinni á hverjum laugardegi ,og ekur henni heim á snjóþotunni um leið og hún stigur út úr þyrlu póstsins. Hin 23 ára gamla Hydeh Java- her hafði tekið inn of mikið af svefntöflum á hóteli í Brighton. Læknirinn, sem kom að henni, úrskurðaði, að hún væri látin, hringdi á sjúkrabíl og gaf bíl- stjóranum fyrirskipun um að fara með stúlkuna í líkhúsið, En á leiðinni tók bílstjórinn eftir ofurlítilli hreyfingu í einum vöðva stúlkunnar. Hann brást fljótt við, sneri þegar í stað bíln- um við frá líkhúsinu og hélt til næsta sjúkrahúss. Eftir mán- aðar tíma var ungfrú Hydeh orð- in heil heilsu, og hið fyrsta sem hún óskaði eftir var að fá að hitta manninn, sem hafði bjarg- að lífi hennar. Hann reyndist vera 53 ára gamall, Ted Eliott að nafni. Á meðfylgjandi mynd sjáum við, þegar þau hittust. Tólf fingur og tólf tær Brezka fjölskyldan Streeton er að i því leyti til óvenjuleg, að meðhmir hennar hafa svo lengi sem vitað er, allir fæðzt með tólf fingur og tólf tær. Fyrir tveim- ur árum brá þó skaparinn út af þessu, en þá fæddist réttskap- aður drengur í fjölskyldunni — með tíu fingur og tíu tær. Það var ekki laust við, að foreldr- arnir yrðu súrir á svip, því að þetta hefur verið einkenni fjöl- skyldunnar í áraraðir og hún hefur verið stolt af því frem- ur en hitt. En í fyrra fædddist nýr einstaklingur í fjölskylduna og hann hafði til að bera aðals- merki ættarinnar; tólf fingur og tólf tær ... Hafa karlmenn Ijóta fætur? Því hefur oft verið haldið fram, að karlmenn hefðu ljóta fætur. Roaylity Theatre í Lon- don hefur tekið að sér að af- sanna þetta. Eitt vinsælasta atr- iði revíunnar, sem leikhúsið hef- ur sýnt að undanförnu, er lappa- sýning karla, sem klæddir eru eins og fegurðardísir. Og eftir meðfylgjandi mynd að dæma verður ekki annað sagt en „döm- urnar“ séu girnilegar ásýndum. Og fætur þeirra eru síður en svo ljótar — eða hvað? Allavega hafa leikhúsgestir látið blekkj- ast og ekki trúað sínum eigin augum, fyrr en grímurnar voru látnar falla og í ljós kom, að hér var um karlmenn að ræða. • vísur vikunnar Nú syngja hér fuglar suðrænna þróunarlanda og sólfar er meir en áður, um hádegisbilið frá heiðum til yztu stranda er hitinn um átta gráður. Þótt flestir yfirleitt uni vel sínum högum, er afleitt til þess að vita, að þeir eru til á þessum vorbjörtu dögum sem þjást af kosningahita. 23. tbi. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.