Vikan


Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 18

Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 18
ISLAND - Landið bar sem láloir lifi Sænskur blaðamaður, Rune Pár Olofsson að nafni, var nýlega staddur hér á landi og hefur nú skrifað um þá ferð í kvennablaðið Husmodern, sem gefið er út í Stokkhólmi. Fjallar greinin einkum um launspekihneigð íslendinga, en ef trúa má Olofsson er allt svo- leiðis nú svotil útdautt hjá Svíum sjálfum. Allt öðru máli gegnir um ísland, segir Olofsson. Á Sögueyjunni virðist önnur hver manneskja sýsla með einhvers konar kukl og meira en helmingur prestanna spjallar við anda þeirra látnu. Á íslandi eru andarnir ekkert spaug, þeir eru jafn eðlilegt og hversdagslegt fyrirbrigði og Nató-hermenn — nei, auðvitað miklu eðlilegri. Svíi þessi er ekki frá því að ísland sé svo mengað allrahanda dul- aröflum að útlendir gestir, jafnvel slíkir efnishyggjuþrælar sem Sví- ar, ánetjist þeim jafpskjótt og þeir koma til landsins. Til dæmis um það segir hann frá reynslu sinni í ökuferð austur að Geysi. Einhvers staðar á leiðinni hemlaði hann snögglega — án þess að gera sér grein fyrir hvers vegna í ósköpunum hann gerði það, því að engin hindr- un var í vegi. En á næsta andartaki geystist stóreflis hrútur yfir veginn þvert fyrir bílinn, svo nærri að hann reif af sér nokkur kíló af ull á stuðaranum. Olofsson var ekki í vafa um að hefði hann hemlað þó ekki hefði verið nema andartaki síðar hefði hann drepið eða stórskaðað hrútinn. í skrifum sínum lætur Olofsson þess raunar getið að fsland eigi fleiri furður en dultrúna eina. Sem dæmi um það nefnir hann það stórvirki, sem þessi vesalings litla þjóð upp á ein tvö hundruð þús- und hafi ráðizt í með því að koma sér upp eigin sjónvarpi en láta sér ekki duga Kanasjónvarpið á Keflavíkurflugvelli. Svíinn má varla vatni halda af aðdáun á íslenzku þjóðarstolti er hann segir frá því að ofan í kaupið heimti fólk að sendingarvídd Kánasjónvarpsins verði dregin saman, svo að íslendingar geti ekki séð það! Ástæðan sé sú, að íslendingar vilji ekki láta viðgangast að Andrésar-andarmenn- ing og pang-pangkvikmyndir Ameríkana kæfi þeirra eigin þjóðar- sérkenni. Næstum eins furðulegt finnst Olofsson það tiltæki íslendinga að byggja sér alúmínverksmiðju, þótt ekki finnist flís af alúmíni í fjöllunum þeirra. Og ofan á það ætla þeir að sækja alúmínið til Ástralíu! Sem eitt undrið enn nefnir Olofsson bjórleysið. Hann segir orð- rétt: „Á íslandi fæst aðeins óáfengt öl (láttöl).... Ölgerðin (sem bruggar það) heitir Egill Skallagrímsson. Það hljómar eins og grín: Egill drap mann fyrir það eitt að hann bauð hetjunni upp á vont öl.“ Hér ruglast Rune Pár að vísu svolítið í fræðunum; Agli varð bumbult í veizlunni hjá Bárði af því að honum var gefið öl ofan í skyr, en hins vegar stendur ekkert um það í Eglu að það öl hafi verið annað eins skolvatn og hér á landi er framleitt og burðast við að kalla bjór. En sem sagt: það er anda- og dultrú íslendinga sem er aðalefni skrifa Olofssons. Hann byrjar með því að segja frá þekktum atburði frá því í byrj- 18 VIKAN 23-tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.